Skammtímahugsun og langtímaafleiðingar Hafdís Hanna Ægisdóttir, Hjördís Sveinsdóttir og Silja Elvarsdóttir skrifa 11. mars 2026 14:01 „Fljótlegt og ódýrt” heyrist oft þegar áherslur um húsnæðisuppbyggingu á höfuðborgarsvæðinu eru til umræðu. Húsnæðisskorturinn er svo knýjandi að sumum finnst ekki svigrúm til að huga að gæðum, fagurfræði eða umhverfisáhrifum. Þrátt fyrir þetta eru teikn á lofti um breytingar. Aukin umræða um gæði byggðar og mannlega þáttinn í byggðu umhverfi hefur vakið fólk til umhugsunar. Þetta var einmitt kveikjan að viðburðinum „Byggjum fyrir fólk” sem var haldinn í Norræna húsinu í janúar. Viðburðurinn var annars vegar kynning á mótsvari við óbreyttu ástandi, New European Bauhaus, og hins vegar ákall eftir róttækri hugarfarsbreytingu í íslenskum byggingargeira. Byggingar eru ekki einnota Tölum tæpitungulaust: Byggingargeirinn er einn stærsti valdur losunar gróðurhúsalofttegunda og sóun auðlinda á heimsvísu og þetta gildir einnig hér á landi. Byggingar standa í áratugi, jafnvel árhundruð, og ákvarðanir sem teknar eru í dag móta kolefnisspor og gæði byggðar langt inn í framtíðina. Það er ekki lengur ásættanlegt að umhverfisleg sjálfbærni sé aðeins höfð að leiðarljósi í „framúrstefnulegum” verkefnum á meðan stór hluti uppbyggingar velur ódýrustu leiðina á kostnað umhverfisins. Endurskoða þarf ferla á öllum stigum, meðal annars þá rótgrónu venju að niðurrif sé fyrsta val til að greiða fyrir uppbyggingu. Við þurfum að spyrja okkur hvort það sé skynsamlegt að meðhöndla byggingar eins og hverja aðra neysluvöru, að nota þær og henda, í stað þess að líta á þær sem hluta af sögunni og kanna möguleika á endurnýjun. Fjölmörg dæmi eru um vel heppnuð umbreytingarverkefni þar sem virðing er borin fyrir auðlindum og sögu. Hvað er raunverulega fallegt? New European Bauhaus skilgreinir fegurð ekki sem einhvern einn byggingarstíl eða skraut á byggingum, enda er smekkur fólks fjölbreyttur. Raunveruleg fegurð felst í því að skapa áhugaverðar byggingar sem vekja tilfinningar og næra andlega og líkamlega heilsu fólks. Fegurð snýst einnig um að skapa rými sem ýta undir jákvæð samskipti og samheldni. Jafnframt þarf að huga að því samhengi sem byggingin er í, hvort sem það er áþreifanlegt, menningarlegt eða samfélagslegt. Bygging sem einhverjum gæti þótt ljót, getur til að mynda haft mikið menningarlegt eða félagslegt gildi fyrir ákveðna hópa eða notendur. Ekkert um okkur án okkar Þátttaka er rauði þráðurinn í New European Bauhaus. Hönnun bygginga getur ekki farið fram í lokuðum herbergjum sérfræðinga án raunverulegs samráðs við notendur. Byggingar snerta líf okkar allra og öll höfum við mismunandi sjónarmið sem er mikilvægt að fái að heyrast. Þátttaka snýst ekki um að kynna fullmótaðar byggingar fyrir notendum, heldur um að þróa þær með þeim frá fyrsta degi. Mikilvægt er að fá sérfræðinga úr ólíkum fagsviðum að borðinu, en ekki síður að tryggja notendur úr jaðarhópum. Byggingar eru jú fyrir okkur öll, ekki bara sum. Hvað tekur við? Skammtímahugsunin sem einkennir svo margt í dag mun skilja eftir sig langtímaafleiðingar, sem erfitt, jafnvel ómögulegt, verður að leiðrétta. New European Bauhaus veitir okkur verkfærin til að sameina umhverfislega sjálfbærni, fegurð og samvinnu. Spurningin er ekki hvort við höfum efni á að byggja betur, heldur hvort við höfum efni á að gera það ekki? Samtalið er hafið. Verkfærakassinn er fullur. Nú er verk að vinna. Hafdís Hanna er forstöðumaður Sjálfbærnistofnunar HÍ, Hjördís er verkefnastjóri hjá Grænni byggð og Silja er verkefnastjóri hjá Norræna húsinu. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Þrír forstjórar sem margfalla á staðreyndaprófinu Jón Kaldal Skoðun Forréttindafólk sem segir nei Margrét Guðmundsdóttir Skoðun Baldur til Eyja og við borgum Sigríður Jóhannesdóttir,Sæþór Þorbergsson Skoðun Saga úr heilbrigðiskerfi okkar Íslendinga Magnea Gunnarsdóttir Skoðun Góðar fréttir af almenningssamgöngum Davíð Þorláksson Skoðun Saga frá Svíþjóð - Lífskjör mælast ekki í vaxtaprósentum Berglind Ragnarsdóttir Skoðun Byssur bæta ekki heiminn Ebba Margrét Magnúsdóttir Skoðun „Sprúttsalar“, lög sem gilda… þegar hentar Þráinn Farestveit Skoðun Nei eða já? Vilborg Gunnarsdóttir Skoðun Frekjukallar fyrr og nú Arnar Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Hin hagsýna húsmóðir ársins 2026 Alma Dóra Ríkarðsdóttir skrifar Skoðun Réttarríki fyrir lengra komna Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Hvað er að því að vera heimsborgari? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Nei eða já? Vilborg Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Þegar sauðfé verður á vegi okkar Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar Skoðun Það skiptir máli að velja rétta séreign Harpa Jónsdóttir skrifar Skoðun Svartir svanir á Reykjanesi Böðvar Tómasson skrifar Skoðun „Sprúttsalar“, lög sem gilda… þegar hentar Þráinn Farestveit skrifar Skoðun Byssur bæta ekki heiminn Ebba Margrét Magnúsdóttir skrifar Skoðun Með vinnuna í vasanum? Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Saga úr heilbrigðiskerfi okkar Íslendinga Magnea Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Baldur til Eyja og við borgum Sigríður Jóhannesdóttir,Sæþór Þorbergsson skrifar Skoðun Þrír forstjórar sem margfalla á staðreyndaprófinu Jón Kaldal skrifar Skoðun Góðar fréttir af almenningssamgöngum Davíð Þorláksson skrifar Skoðun Uppgjör við víkinga öld elítunnar - Hvernig siðmenntuð þjóð rís upp úr sjálfskaparvíti spillingar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Getur Evrópusinni af hugsjón sannfært hrædda þjóð? Sigurjón Ólafsson skrifar Skoðun Frekjukallar fyrr og nú Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Forréttindafólk sem segir nei Margrét Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Saga frá Svíþjóð - Lífskjör mælast ekki í vaxtaprósentum Berglind Ragnarsdóttir skrifar Skoðun Ekki nóg að telja milljarðana: Árangur verður að mælast Eyþór Eðvarðsson skrifar Skoðun Ljósmyndarinn á öld gervigreindar Kristján Logason skrifar Skoðun Þegar skattfé velur búsetu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Afmarkað vald er ekki endilega lítið vald Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Suðurland í sókn en Vegagerðin sker niður landsbyggðarstrætó skrifar Skoðun Þjóðarsjóðurinn okkar heitir Landsvirkjun. Erum við að ávaxta hann? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Lýðræði í skugga sérhagsmuna – sjálfseyðingarbarátta íslensks samfélags Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Björgum okkur frá þeim sem ætla að bjarga þjóðinni frá sjálfri sér Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Kristján Loftsson og stalínistarnir Arngrímur Stefánsson skrifar Skoðun Ríkisstjórnir og fjölmiðlar Evrópu – sameinaðir í stuðningi við þjóðarmorð Hlynur Már Ragnheiðarson skrifar Skoðun Að þýða texta er ekki það sama og að búa til námsefni Bogi Ragnarsson skrifar Sjá meira
„
Skoðun Uppgjör við víkinga öld elítunnar - Hvernig siðmenntuð þjóð rís upp úr sjálfskaparvíti spillingar Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Þjóðarsjóðurinn okkar heitir Landsvirkjun. Erum við að ávaxta hann? Sigvaldi Einarsson skrifar
Skoðun Lýðræði í skugga sérhagsmuna – sjálfseyðingarbarátta íslensks samfélags Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Björgum okkur frá þeim sem ætla að bjarga þjóðinni frá sjálfri sér Þórður Snær Júlíusson skrifar
Skoðun Ríkisstjórnir og fjölmiðlar Evrópu – sameinaðir í stuðningi við þjóðarmorð Hlynur Már Ragnheiðarson skrifar