Skólameistarinn fær ekki að leiða ráðherra til vitnis Kjartan Kjartansson skrifar 11. mars 2026 14:18 Eftir að ljóst varð að staða Ársæls Guðmundssonar hjá Borgarholtsskóla yrði auglýst greindi hann frá samskiptum sínum við Ingu Sæland vegna skópars sem barnabarn hennar glataði á göngum skólans. Hann telur að hann hafi ekki verið skipaður áfram vegna óvilar Ingu í hans garð. Vísir Héraðsdómur Reykjavíkur hafnaði beiðni fráfarandi skólastjóra Borgarholtsskóla um að leiða forsætis- og menntamálaráðherra til vitnis í dag. Lögmaður hans segir að úrskurðurinn verði kærður til Landsréttar.
Ársæll Guðmundsson lét lögmann sinn leggja fram svonefnda vitnaleiðslubeiðni til þess að knýja fram vitnisburð ráðherranna eftir að Guðmundur Ingi Kristinsson, þáverandi menntamálaráðherra, ákvað að auglýsa stöðu sem Ársæll hefur gegnt sem skólameistari Borgarholtsskóla í fyrra. Auk Kristrúnar Frostadóttur og Ingu Sæland vildi Ársæll að aðstoðarmenn Kristrúnar og Guðmundar Inga yrðu leiddir fyrir dóm til að bera vitni. Beiðnir af þessu tagi eru til þess að hægt sé að meta hvort dómsmál skuli höfðað í kjölfarið. Arnar Þór Stefánsson, lögmaður Ársæls, staðfestir að héraðsdómur hafi hafnað beiðninni í heild sinni með úrskurði í dag. Hann hafði þegar rætt við Ársæl þegar blaðamaður náði tali af honum og sagði að úrskurðurinn yrði „hundrað prósent“ kærður til Landsréttar. Fráfarandi skólameistarinn hefur haldið því fram að Inga Sæland hafi beitt sér fyrir því að skipunartími hans sem skólameistari yrði ekki endurnýjaður. Hann hefur annars vegar rakið það til uppákomu þar sem Inga hringdi í hann til að skammast yfir skóm sem barnabarn hennar og nemandi við skólann týnt annars vegar og gagnrýni hans á áform ríkisstjórnarinnar um breytingar á framhaldsskólastiginu hins vegar. Inga er nú menntamálaráðherra eftir að Guðmundur Ingi steig til hliðar vegna veikinda í fyrra. Þegar Vísir ræddi við Arnar Þór hafði hann ekki séð rökstuðning héraðsdóms fyrir því að hafna beiðninni um að kalla ráðherranna og aðstoðarmenn þeirra til vitnis. Í niðurstöðukafla úrskurðar héraðsdóms segir að samkvæmt gögnum málsins og málatilbúnaði aðila, verði að telja að þær upplýsingar sem liggja fyrir um málið ásamt framlögðum gögnum beri með sér að Ársæli sé unnt að leggja grunn að málsástæðum sínum taki hann ákvörðun um málsókn. Hann hafi að mati dómsins aðgang að nægjanlegum upplýsingum og gögnum til þess að geta lagt mat á það hvort hann láti verða af málshöfðun til heimtu skaðabóta vegna ákvörðunar mennta- og barnamálaráðherra að auglýsa stöðu skólameistara Borgarholtsskóla lausa til umsóknar. Með skírskotun til þess og í ljósi meginreglunnar um milliliðalausa málsmeðferð þyki Ársæll þannig ekki hafa rökstutt nægjanlega þá fullyrðingu sína að þörf sé á vitnaleiðslum nú til að taka ákvörðun um það hvort mál skuli síðar höfðað. Kröfu hans sé því hafnað. Fréttin var uppfærð eftir að Vísir komst yfir úrskurð héraðsdóms.
Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Skóla- og menntamál Dómsmál Mál skólameistara Borgarholtsskóla Framhaldsskólar Mest lesið Óveður gengur yfir landið Innlent Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Innlent Viðvaranir á viðvaranir ofan Veður Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent „Útlit fyrir að þetta sé allt að ganga eftir“ Innlent Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings Innlent Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Innlent Styður Repúblikana með tugum milljarða Erlent Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Innlent Tilkynnt um líkamsárás í miðbænum Innlent Fleiri fréttir Inga vill áfram banna atvinnumannahnefaleika Vatnið finni sér leið í gegnum sprungur Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings „Útlit fyrir að þetta sé allt að ganga eftir“ Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Tilkynnt um líkamsárás í miðbænum Óveður gengur yfir landið Kröfur sem einstaklingum er ómögulegt að uppfylla Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Heppin móðir á Suðurlandi vann 42 milljónir Hvetur verkalýðshreyfinguna til samstöðu Skuldar ekkert Fór úr bílnum og hljóp undan lögreglu Enn versnar spáin með nýjum viðvörunum Bandero leitar skjóls í Reykjavík Air Atlanta vinnur áhættumat vegna árása Húta Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings Baráttan um varaforsetana: Valdabrölt eða samsæriskenningar? Salmonella greindist í kryddi Kokku Frumvarp um Ríkisútvarp gagnrýnt harðlega í samráðsgátt Stjórnarandstaðan segir „forfallavírus“ ganga meðal ráðherra Vilja borga fyrir eftirlit með au pair Pawel tekur við af Sigmari sem þingflokksformaður Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Leita ökumanns sem ók á dreng á reiðhjóli „Þá tökum við auðvitað tillit til þess og hlustum“ Mögulegar rafmagnstruflanir í stórhríðinni Lægðin hefur alla burði til að verða söguleg Viðurkennir mistök við skipan Jafnréttissjóðs Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Sjá meira