Bærinn vilji taka hluta Smáralindar á leigu fyrir 1,5 milljarða Árni Sæberg skrifar 11. mars 2026 11:42 Theodóra er oddviti Viðreisnar í Kópavogi. Vetrargarðurinn er austast í Smáralind. Vísir Bæjarstjórn Kópavogs veitti í gær heimild til undirritunar leigusamnings um hluta Smáralindar, sem kallaður hefur verið Vetrargarðurinn, undir verkefnið Menningarmiðstöð í Smáralind. Fulltrúi minni hlutans segir samninginn hljóða upp á 1,5 milljarða króna fyrir tíu ára leigu. Bæjarstjórinn vísar því alfarið á bug. „
Bæjarstjórn samþykkir með sex atkvæðum, gegn atkvæðum Helgu Jónsdóttur, Kolbeins Reginssonar, Jóhönnu Pálsdóttur, Bergljótar Kristinsdóttur og Sigurbjargar E. Egilsdóttur að veita umbóta- og þróunarstjóra heimild til undirritunar leigusamnings við Heima vegna leigurýmis í Smáralind, ásamt umboði til áframhaldandi þróunar verkefnisins í samræmi við kynnta tillögu,“ segir í fundargerð fundar bæjarstjórnar Kópavogs í gær. Samkvæmt fundargerðinni var nokkuð hart tekist á um málið á fundi bæjarstjórnar en einnig á fundi bæjarráðs þann 5. mars síðastliðinn. Athugasemd: Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri Kópavogs, setti sig í sambandi við Vísi eftir að fréttin birtist og gerði verulegar athugasemdir við málflutning Theodóru. Þær má lesa í fréttinni hér að neðan. Þar kemur meðal annars fram að 1,4 milljarðar séu heildarkostnaður verkefnisins til tíu ára, ekki leiga sem greidd verður Heimum. „Chillout“ Theodóra S. Þorsteinsdóttir, bæjarfulltrúi Viðreisnar, ritar grein um málið á Vísi í dag undir yfirskriftinni Það er gott að vera Halldór Benjamín í Kópavogi: Hluti 1 af 4. Þar vísar Theodóra til Halldórs Benjamíns Þorbergssonar, forstjóra Heima. „Sjálfstæðisflokkurinn og Framsókn hafa nú samþykkt að Kópavogsbær taki að sér að reka Vetrargarðinn í Smáralind. Fyrir það er áætlað að bærinn greiði um 1,5 milljarð króna á samningstímanum. Um er að ræða tíu ára óuppsegjanlegan samning,“ segir hún en kynning á leigusamningnum á fundinum fylgir ekki fundargerðinni. Hún segir að áformað sé að rýmið verði menningarkjarni sem meðal annars hýsi bókasafn. Markmiðin séu að efla læsi og að auka áhuga barna og ungmenna á lestir. Efla félagslega velferð, auka menningarþátttöku, bæta aðgengi að menningu og styðja við geðheilsu og forvarnir fyrir börn og ungmenni. „Einnig á þetta að vera staður til að „bara vera“, eða „chillout“, eins og það var útskýrt. Rýmið á að geta tekið við „open mic“ pop-up viðburðum, smiðjum, tónleikum og óhefðbundnum uppákomum.“ Þróað af Heimum Þá segir Theodóra að hugmyndin hafi komið inn í bæjarstjórn og samþykkt á slíkum hraða að Halldór Benjamín hljóti að skrifa grein þar sem hann þakki Ásdísi Kristjánsdóttur, bæjarstjóra Kópavogs fyrir frábært samstarf, engar hindranir, skilvirkni og fagmennsku. „Eftirfarandi kom fram í Pinterest-glærunum við kynningu þessarar ákvörðunar: „Verkefnið er þróað af Heimum í samstarfi við Kópavogsbæ og styrkir Smáralind sem áfangastað verslunar og þjónustu þar sem matur og menning fléttast saman í heildstæða upplifun.““ Púkalegt að ræða fjárhaginn „En aðeins um fjármálin, því það hefur alls ekki verið gert ráð fyrir þessu Smáralindarævintýri í neinum fjárhagsáætlunum. Það var reyndar ekki vinsælt að fjalla um fjármálin í bæjarstjórn. Við þóttum púkaleg að skemma stemninguna fyrir þessari flippuðu hugmynd, eins og þau orðuðu hana sjálf,“ segir Theodóra. Samkvæmt áætlun eigi Kópavogsbær að skila 180 milljónum í afgang í ár og svipað næstu þrjú árin. Til þess að svo megi vera þurfi árlegar lántökur upp á að jafnaði þrjá milljarða króna. Veltuféð frá rekstri dugi ekki fyrir afborgunum lána og fjárfestingum. Það sé því ekki um neinn raunverulegan afgang að ræða. Bærinn sé rekinn á um fimm milljarða yfirdrætti á tíu prósent vöxtum og lausafé sé af skornum skammti. Það sé nú þegar búið að veita heimild til hækkunar á yfirdrættinum um einn milljarð og enn frekari lántökum á þessu ári. „Bæjarstjórinn hefur farið mikinn í að kynna hagræðingartillögur sínar í fjölmiðlum. Við höfum ekki enn séð neitt uppgjör á því hvernig til hefur tekist, nema að hún gleymdi reyndar að lækka laun kjörinna fulltrúa í tæpt ár, en það var einmitt aðalfréttin í hagræðingunni til að eiga fyrir bættum launakjörum kennara. Hún lagði m.a til að lækka akstursgreiðslur til þeirra sem sinna velferðarþjónustu en hafnaði tillögu okkar um að lækka hennar eigin akstursgreiðslur. Bæjarstjórinn þiggur fastan aksturstyrk upp á 1250 kílómetra á mánuði og hefur nú hafið framleiðslu á nýrri þáttaröð „Á rúntinum - Á trúnó með bæjó“.“ Staða fjármála í Kópavogi sé langt frá því að vera frábær og það sé lítið svigrúm fyrir gæluverkefni. Þvert á móti þyrfti að fara í verulega fjárhagslega tiltekt. Það verði verkefni nýrrar bæjarstjórnar í vor. Vildu ekki fresta Meðal þess sem kemur fram í fundargerðinni er tillaga minni hlutans um að fresta málinu, sem var hafnað. Theodóra segir að hún hafi viljað fresta málinu til að mynda til þess að spyrja skólasamfélagið í Kópavogi, stjórnendur og kennara, hvort það væri skynsamlegasta forgangsröðunin á fjármagni að opna bókasafn í Smáralind til þess að styðja við læsisáætlanir. „Mig langaði að taka opna umræðu um það hvort það væri hlutverk Kópavogsbæjar að reka Vetrargarðinn í Smáralind fyrir Heima og borga fyrir það á annað hundrað milljónir á ári? Öllum athugasemdum fulltrúa utan meirihlutans var mætt með skætingi. Ég er kannski ekki nógu flippuð fyrir pop-up og chillout á kostnað skattgreiðenda á sama tíma og við getum ekki sinnt velferðarþjónustunni og styrkt skólana til að hlúa að börnum með fjölþættan vanda.“ Í fundargerðinni segir eftirfarandi í bókun meiri hlutans um frestunartillögu: „Meirihlutinn fellst ekki á að fresta málinu. Mikilvægt er að hraða uppbyggingu menningar- og bókasafnsþjónustu sem íbúar efri byggða hafa beðið eftir um árabil. Það er í fullu samræmi við málefnasáttmála meirihlutans, Áttavita til árangurs. Traustur rekstur bæjarins undanfarin ár gerir bænum kleift að ráðast í þessa metnaðarfullu uppbyggingu sem mun efla menningu, mannlíf og samfélagið í heild. Fyrir liggja fullnægjandi gögn til að taka ákvörðun og eðlilegt er að nánari útfærsla haldi áfram samhliða verkefninu.“ Fréttin hefur verið uppfærð.
Kópavogur Smáralind Leigumarkaður Mest lesið Stefnir í fámennari Þjóðhátíð: „Við tökum þetta á langhlaupinu“ Innlent Notaði dulnefni og sveik út vörur fyrir tugi milljóna Innlent Mál Péturs slökkviliðsstjóra komið á borð lögreglu Innlent Gefa upp dánarorsökina vegna „ónákvæmra og rangra frétta“ af andlátinu Erlent Erfiðara og erfiðara að lifa mannsæmandi lífi á Íslandi Innlent Fór af hjólinu skömmu áður en það brann til kaldra kola á þjóðveginum Innlent Ógnvænleg hegðun daglegt brauð: „Það er orðin raunin í þessum bransa“ Innlent „Pólitísk ákvörðun“ hvort hraðinn verði 90 eða 110 Innlent Formaður Brunavarna Árnessýslu: Málið litið mjög alvarlegum augum Innlent Testósterónmagn kannað hjá öllum hermönnum 30 ára og eldri Erlent Fleiri fréttir Allt að fjörutíuföld mengun við skemmtiferðaskip Áfram Ísland með opinn fund á Skaganum Lýsa eftir Sæbjörgu Umferð beint annað vegna áreksturs undir Ingólfsfjalli „Þetta voru algjörlega mannleg mistök“ Endurskoða sparkvöll við Landakot Notaði dulnefni og sveik út vörur fyrir tugi milljóna „Við erum fyrst og fremst að varða leiðina heim fyrir Grindvíkinga“ Kalla inn próteinpopp „Pólitísk ákvörðun“ hvort hraðinn verði 90 eða 110 Ráðherra með „fráleita hótun“ Stærsti veðmálaviðburður sögunnar nær til ungs fólks Ógnvænleg hegðun daglegt brauð: „Það er orðin raunin í þessum bransa“ Formaður Brunavarna Árnessýslu: Málið litið mjög alvarlegum augum Einfaldur seðill flýtir ekki lokatölum Þúsundir Úkraínumanna mótmæla hrókeringum Selenskís Undirbúningur fyrir þjóðaratkvæði í fullum gangi og hækkun hámarkshraða rædd Klóraði lögreglumann og beit annan Ólafur ráðinn sveitarstjóri Skagastrandar Geri foreldra og börn að lögbrjótum Enginn framhaldsskólakennari meti stöðu nýnema mjög góða Mál Péturs slökkviliðsstjóra komið á borð lögreglu Almar nýr formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga Dró strætóbílstjóra úr sætinu og potaði í augu hans Kalla inn Voga ídýfu vegna vanmerkts ofnæmisvalds MAST hafi farið gegn áliti fagráðs um blóðmerahald Stefnir í fámennari Þjóðhátíð: „Við tökum þetta á langhlaupinu“ Lengja opnunartíma í Salalaug Ár liðið frá því síðast gaus á Reykjanesi Jafnvel brotist inn þegar fólk er heima Sjá meira