Og svo eru flokkar sem byggja á reiði Birgir Orri Ásgrímsson skrifar 10. mars 2026 10:45 Í lýðræðissamfélögum eru margar leiðir til að byggja stjórnmálahreyfingu. Sumir flokkar byggja upp stofnanir og móta stefnu sem þarf að standast raunveruleikann. Aðrir reyna að mynda breiðar samstöður sem geta tekist á við flókin verkefni nútímasamfélaga. Og svo eru flokkar sem byggja á reiði. Á Íslandi hefur Miðflokkurinn að stórum hluta valið þá leið. Pólitík sem byggir á reiði virkar öðruvísi en pólitík sem byggir á ábyrgð. Þegar flokkur hefur ekki þurft að bera raunverulega ábyrgð á erfiðum ákvörðunum, þegar hann hefur ekki þurft að byggja kerfi sem þarf að virka á hverjum degi, þá er einfalt að eyða tíma sínum í að gagnrýna allt sem gert er til að halda landinu gangandi. Lausnirnar virðast alltaf til staðar, en þær hafa aldrei þurft að standast raunveruleikann. Flókin vandamál fá einfaldar skýringar. Þessi aðferð er ekki ný. Hún hefur birst aftur og aftur í sögunni. Undanfarin ár hefur hún þó styrkst víða, bæði í Evrópu og Bandaríkjunum. Hún byrjar gjarnan á sömu hugmyndinni: að samfélagið hafi farið úrskeiðis vegna þess að eitthvað hafi breyst of hratt. Að heimurinn hafi einhvern tíma verið einfaldari, réttlátari og skýrari. Slík fortíðarþrá er öflug. Hún talar beint inn í það óöryggi sem margir finna fyrir í heimi sem breytist hratt. En þá vaknar spurning sem sjaldan er spurð: Fyrir hvern virkaði sá heimur sem sumir vilja snúa aftur til? Samfélagið hefur breyst mikið á síðustu áratugum. Minnihlutahópar hafa fengið aukin réttindi. Fólk sem áður var á jaðri samfélagsins hefur fengið meiri rödd og meiri virðingu. Það hefur ekki gerst á einni nóttu og ekki alltaf átakalaust. En þetta er hluti af eðlilegri þróun lýðræðissamfélaga. Við höfum að mestu tekist á við þessar breytingar með hefðbundnum hætti: með málamiðlunum, rökræðum og stefnumótun. Þetta ferli er stundum hægt og oft ófullkomið, en það er líka það sem gerir lýðræði stöðugt. Popúlismi snýr þessu á hvolf. Hann einfaldar flókin mál, persónugerir vandamál og finnur oft einhvern til að kenna um þau. Oft eru það minnihlutahópar sem verða skotmarkið. Þá virðist lausnin einföld: losum okkur bara við þá. Innflytjendur, hinsegin fólk eða aðrir hópar verða þannig að skýringunni á vandamálum sem í raun eiga miklu flóknari rætur. Nú vill Miðflokkurinn mála sig upp sem einhvers konar foringja nýrrar þjóðernishyggju í íslenskum stjórnmálum. Boðskapurinn er einfaldur og kunnuglegur: Ísland eigi að loka sig meira af, útlendingar séu vandamál sem þurfi að takmarka og þjóðin geti best staðið ein og sér ef hún hætti að treysta á heiminn í kringum sig. Þetta er pólitík sem byggir á þeirri hugmynd að íslenskt samfélag sé undir stöðugri ógn utan frá og að vandamál okkar stafi fyrst og fremst af fólki sem kemur hingað, af alþjóðlegum tengslum eða af breytingum sem fylgja opnu samfélagi. En þessi orðræða verður óhjákvæmilega að mæta einni spurningu. Hver talar? Sami stjórnmálamaður og hefur sett sig í hlutverk varnarmanns hins hreina þjóðarhags hefur sjálfur verið tengdur aflandsfélögum og skattamálum sem vöktu gríðarlega umræðu eftir birtingu Panamaskjalanna. Þar kom fram að eignir höfðu verið færðar í aflandsstrúktúr á sama tíma og hann gegndi embætti forsætisráðherra, mál sem varð til þess að hann sagði af sér árið 2016. Þetta fólk setur hvorki þig né Ísland fyrst. Athyglinni er beint frá raunverulegum lausnum með látum og einföldum slagorðum á sama tíma og byggð er pólitík sem þjónar fyrst og fremst þeirra eigin völdum. Aðferðin er kunnugleg. Hún hefur sést víða síðustu ár, ekki síst í bandarískum stjórnmálum: að beina reiði fólks að minnihlutahópum eða utanaðkomandi áhrifum til að draga athyglina frá því sem raunverulega skiptir máli, hvernig völd eru notuð og hver nýtur þeirra. En þegar hávaðinn er tekinn út úr jöfnunni standa eftir staðreyndir sem eru miklu flóknari en slagorðin gefa til kynna. Íslenskt samfélag reiðir sig nú þegar að hluta á vinnuafl að utan, sérstaklega í lykilgeirum eins og ferðaþjónustu, byggingariðnaði og heilbrigðisþjónustu. Rannsóknir og reynsla úr sambærilegum hagkerfum sýna almennt að innflytjendur taka ekki störf til lengri tíma frá innfæddum, heldur bæta við vinnumarkaðinn og styðja við hagvöxt. Þeir gera okkur einnig kleift að ráðast í stærri innviðaverkefni og halda uppi þjónustu sem annars væri erfitt að manna í litlu samfélagi. Á sama tíma er ekki verið að líta fram hjá þeim áskorunum sem geta fylgt fólksflutningum. Nýtt frumvarp dómsmálaráðherra gengur einmitt út á að hægt sé að afturkalla vernd hjá þeim sem fremja alvarleg afbrot, teljast ógn við öryggi ríkisins eða brjóta ítrekað af sér þannig að það ógni almannaöryggi. Þar er verið að reyna að ná jafnvægi: að taka á móti fólki sem vill leggja sitt af mörkum til samfélagsins en setja skýr mörk þegar brotið er gegn því. Þetta er í raun það sem ábyrg stjórnmál snúast um: að takast á við flókin mál með raunhæfum lausnum, ekki einföldum svörum sem virka aðeins á fundarpöllum. Þess vegna er kannski mikilvægasta spurningin sem kjósendur ættu að spyrja einföld. Segjum sem svo að Miðflokkurinn komist til valda. Segjum að hann fái að framkvæma sín loforð. Segjum að landamæri verði hert, að fólki verði sent úr landi og að tengsl Íslands við umheiminn verði dregin saman. Hvað svo? Hvað gerist daginn eftir þegar það þarf að manna spítalana, byggja húsin, reka fyrirtækin og halda samfélaginu gangandi? Hver er langtímastefna flokksins í efnahagsmálum? Í menntun? Í uppbyggingu samfélagsins? Ekki vera hrædd við að gangast við því sem þið viljið raunverulega áorka. Ef lausnin sem Miðflokkurinn sér fyrir Ísland er að loka okkur meira af, draga úr tengslum við umheiminn og byggja pólitík á tortryggni gagnvart þeim sem eru öðruvísi, þá á flokkurinn einfaldlega að segja það skýrt. Lýðræði virkar best þegar fólk veit nákvæmlega hvað er verið að bjóða því. Miðflokkurinn verður að segja upphátt hver lokastefna flokksins er. Hvert er samfélagið sem hann vill byggja? Hvernig á Ísland að líta út eftir tíu eða tuttugu ár ef þessi stefna fær að ráða? Á landið að vera opið hagkerfi sem tekur þátt í alþjóðlegu samstarfi eða samfélag sem dregur sig til baka og reynir að standa meira eitt og sér? Þegar sú mynd liggur fyrir getum við átt raunverulega umræðu. Þá sjáum við hvort fylgið sem flokkurinn nýtur stafi af raunverulegri breytingu á gildum fólks í landinu eða hvort það byggist einfaldlega á því að þeir kunni að segja það sem fólk vill heyra, hvort sem það stenst nánari skoðun eða ekki. Höfundur er háskólanemi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Miðflokkurinn Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Seðlabankinn uppfærði matið: Það nýja hentar ekki sögunni sem stjórnvöld vilja segja Jón Helgi Egilsson Skoðun Við eigum að þora að sjá hvað aðildarsamningur gæti falið í sér Halldóra Sigríður Sveinsdóttir Skoðun Þegar sumarnámskeið eru ekki raunhæfur valkostur Aldís Sif Bjarnhéðinsdóttir Skoðun Það sem AGS tilgreindi en Dagur dregur ekki fram Sveinn Óskar Sigurðsson Skoðun Tækifæri sem kemur ekki aftur Árni Gunnarsson Skoðun Universities should not punish students for bureaucratic incompetence Colin Fisher Skoðun Samningsmarkmið Haukur Eggertsson Skoðun Hver er raunverulega ógnin við fullveldi Íslands? Vangaveltur um Evrópusambandið og framtíð okkar Már Másson Skoðun Evrópa eða Bandaríkin? Snorri Ásmundsson Skoðun Sóknarfæri í fullvinnslu - Hvers vegna ESB-aðild gæti opnað nýjar dyr Halldór Jörgen Olesen Skoðun Skoðun Skoðun Ég ætlaði bara að reyna skilja hvað ég væri að kjósa um Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Um fullveldi og framsal þess Axel Kristinsson skrifar Skoðun Ævilangt ástarsamband við bláber Björg Árnadóttir skrifar Skoðun Engar varnir gegn dýrasjúkdómum – Óafturkræft slys Halldór Runólfsson skrifar Skoðun Við eigum að þora að sjá hvað aðildarsamningur gæti falið í sér Halldóra Sigríður Sveinsdóttir skrifar Skoðun Veljum að vita meira Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Tækifæri sem kemur ekki aftur Árni Gunnarsson skrifar Skoðun Hættum að giska: Fáum svörin á borðið Stefán Pettersson skrifar Skoðun Það sem AGS tilgreindi en Dagur dregur ekki fram Sveinn Óskar Sigurðsson skrifar Skoðun Seðlabankinn uppfærði matið: Það nýja hentar ekki sögunni sem stjórnvöld vilja segja Jón Helgi Egilsson skrifar Skoðun Universities should not punish students for bureaucratic incompetence Colin Fisher skrifar Skoðun Samningsmarkmið Haukur Eggertsson skrifar Skoðun Hver er raunverulega ógnin við fullveldi Íslands? Vangaveltur um Evrópusambandið og framtíð okkar Már Másson skrifar Skoðun Lækkum álögur og afnemum byggingarrétt af atvinnulóðum Bragi Bjarnason skrifar Skoðun Sóknarfæri í fullvinnslu - Hvers vegna ESB-aðild gæti opnað nýjar dyr Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Beðið eftir Godot? 83 dagar, 179 tölvupóstar Einar Bárðarson skrifar Skoðun Evrópa eða Bandaríkin? Snorri Ásmundsson skrifar Skoðun Þegar sumarnámskeið eru ekki raunhæfur valkostur Aldís Sif Bjarnhéðinsdóttir skrifar Skoðun Já til að sjá er af og frá Ólafur Hannesson skrifar Skoðun Ísland er í 1. sæti heims á lífskjaravísitölu SÞ - yrði hagur okkar raunverulega betri innan ESB? Elísabet Gísladóttir skrifar Skoðun Nýtt mat AGS á upptöku evru fyrir Ísland Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun „Þúsund þorskar á færibandinu...“ Óli Rúnar Ástþórsson skrifar Skoðun Sjá hvað? Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Geðþóttaákvörðun barna- og menntamálaráðherra? Kristín Björnsdóttir skrifar Skoðun Til hvers erum við að breyta námsmatinu? Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Komstu ekki með afmælisgjöf? Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Sleggjudómar ráðherra Sveinn Óskar Sigurðsson skrifar Skoðun Smæðin er samnefnarinn Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Dauði eða upprisa Jón Bragi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Þjóðin á síðasta orðið Erna Kaaber skrifar Sjá meira
Seðlabankinn uppfærði matið: Það nýja hentar ekki sögunni sem stjórnvöld vilja segja Jón Helgi Egilsson Skoðun
Við eigum að þora að sjá hvað aðildarsamningur gæti falið í sér Halldóra Sigríður Sveinsdóttir Skoðun
Hver er raunverulega ógnin við fullveldi Íslands? Vangaveltur um Evrópusambandið og framtíð okkar Már Másson Skoðun
Skoðun Við eigum að þora að sjá hvað aðildarsamningur gæti falið í sér Halldóra Sigríður Sveinsdóttir skrifar
Skoðun Seðlabankinn uppfærði matið: Það nýja hentar ekki sögunni sem stjórnvöld vilja segja Jón Helgi Egilsson skrifar
Skoðun Hver er raunverulega ógnin við fullveldi Íslands? Vangaveltur um Evrópusambandið og framtíð okkar Már Másson skrifar
Skoðun Sóknarfæri í fullvinnslu - Hvers vegna ESB-aðild gæti opnað nýjar dyr Halldór Jörgen Olesen skrifar
Skoðun Ísland er í 1. sæti heims á lífskjaravísitölu SÞ - yrði hagur okkar raunverulega betri innan ESB? Elísabet Gísladóttir skrifar
Seðlabankinn uppfærði matið: Það nýja hentar ekki sögunni sem stjórnvöld vilja segja Jón Helgi Egilsson Skoðun
Við eigum að þora að sjá hvað aðildarsamningur gæti falið í sér Halldóra Sigríður Sveinsdóttir Skoðun
Hver er raunverulega ógnin við fullveldi Íslands? Vangaveltur um Evrópusambandið og framtíð okkar Már Másson Skoðun