Til skoðunar hvort um hryðjuverk sé að ræða Lovísa Arnardóttir skrifar 8. mars 2026 11:42 Lögregla rannsakar vettvanginn. Vísir/EPA Enginn hefur enn verið handtekinn vegna sprengingar við sendiráð Bandaríkjanna í Osló í nótt. Lögregla segir sprenginguna hafa verið ætlaða sendiráðinu og að það sé til skoðunar hvort að um hryðjuverk sé að ræða, og hvort tengsl séu við stríð Bandaríkjanna og Ísraela í Íran. Norskir ráðherrar hafa verið í sambandi við sendiherrann en sendiráðið hefur ekkert gefið út um sprenginguna. „
Sprengingin var líklega af völdum einhvers konar sprengibúnaðar,“ sagði Frode Larse, yfirmaður sameiginlegrar rannsóknar- og leyniþjónustudeildar, við NRK að loknum blaðamannafundi klukkan 11 og að lögreglan telji að árásin hafi beinst að sendiráðinu. Hann segir eina tilgátu lögreglu að um hryðjuverk sé að ræða. Á myndinni eru Grete Lien Metlid, yfirmaður sameiginlegrar aðgerðadeildar, og Frode Larsen, yfirmaður sameiginlegrar rannsóknar- og leyniþjónustudeildar, á blaðamannafundinum. Vísir/EPA „Ein af tilgátunum er að þetta sé hryðjuverk, en við erum ekki alveg fastheldin á það. Við verðum að vera opin fyrir því að það geti verið aðrar ástæður fyrir því sem gerðist,“ sagði hann í samtali við blaðamann NRK. Á blaðamannafundinum sagði hann ekki hægt að líta fram hjá öryggisástandi í heiminum. Brotið gler á húsnæði bandaríska sendiráðsins í Osló.Vísir/EPA „Það er eðlilegt að líta á sprenginguna við sendiráðið í samhengi við öryggisástandið,“ sagði Larsen. Á blaðamannafundi lögreglunnar klukkan 11, 12 að staðartíma, kom fram að enginn væri grunaður að svo stöddu en að leitað væri að einum eða fleiri gerendum. Sprengingin varð klukkan eitt í nótt fyrir utan sendiráðið. Frode sagði sprenginguna líklega hafa orðið af völdum „einhvers konar sprengibúnaðar“. „Þetta er alvarlegt atvik,“ segir Grete Lien Metlid, yfirmaður sameiginlegrar aðgerðadeildar. Hún segir að þau séu með sýnilega viðveru við bandaríska sendiráðið. Samkvæmt umfjöllun norska miðilsins VG vinnur norska lögreglan að málinu í samvinnu við sendiráðið. Samkvæmt frétti VG er búið að rannsaka vettvanginn með aðstoð hunda og dróna auk þess sem leit hefur farið fram með þyrlum. Fram kom í fréttum um atvikið í morgun að öryggislögregla hefði kallað út aukamannskap vegna atviksins og að sprengjusveit lögreglunnar hafi verið við vinnu í nótt og í morgun. Svæðið var girt af í um 700 metra radíus og er, samkvæmt VG, þungvopnuð lögregla á svæðinu. Lögreglan hefur engan handtekið á sunnudagsmorgun en telur samt sem áður enga hættu steðja að almenningi. Eins og má sjá eru skemmdir á húsnæði sendiráðsins. Vísir/EPA Astri Aas-Hansen dómsmálaráðherra Noregs sagði atvikið alvarlegt í samtali við fjölmiðla og þá hefur einnig komið fram að Aas-Hansen og utanríkisráðherrann Espen Barth Eide hafi verið í sambandi við Eric Meyer, staðgengil sendiherra, í bandaríska sendiráðinu á sunnudag. „Öryggi erlendra sendiskrifstofa er okkur mjög mikilvægt og málið er nú í rannsókn hjá lögreglunni og PST,“ sagði Eide í yfirlýsingu til VG en fjölmiðillinn segir að sendiráðið hafi vísað öllum spurningum þeirra til bandaríska utanríkisráðuneytisins. Michael Dellemyr, sem stýrir rannsókninni, segir lögreglu telja sig vita hvað hafi ollið sprengingunni en að það verði ekki gefið upp að svo stöddu. „Við höfum hugmynd um hvað olli því en við viljum ekki fara út með það núna,“ er haft eftir Dellemyr í frétt VG. Þar kemur einnig fram að framkvæmd hafi verið leit í um sjö kílómetra radíus við sendiráðið.
Noregur Bandaríkin Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Hryðjuverkastarfsemi Mest lesið Dýpsta októberlægð í rúm sextíu ár í uppsiglingu Innlent Óveður í aðsigi: Líklegt að flug raskist Innlent Segir kollega sína á þingi hafa framið húsbrot í fylleríisferð fyrir austan Innlent Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Veður Alls ekki á móti því að fólk hafi það gott Innlent Skaut konu sína, börn og barnabörn Erlent Hóta að stöðva vopnakaup fyrir Úkraínu Erlent Höfuðpaur Reykholtsmálsins fær átta ára dóm Innlent Dæmdur fyrir skattsvik vegna B Innlent Henda mat eftir tölvuárás hitaði kæla upp í fimmtíu gráður Erlent Fleiri fréttir Henda mat eftir tölvuárás hitaði kæla upp í fimmtíu gráður Gerðu húsleit hjá þingkonu sem Trump á sökótt við Verðlaunaðir fyrir að smíða hagstjórnartæki samtímans Skaut konu sína, börn og barnabörn Sektaður fyrir að geyma lík foreldranna í frysti í áratugi Hóta að stöðva vopnakaup fyrir Úkraínu Vonast til að leysa ráðgátuna um hvarf Ameliu Earhart Tígrisdýrið verður ekki aflífað Rússar ráðist á orkuinnviði þrátt fyrir yfirlýsingu Trumps Fær aukadag til stjórnarmyndunar Kom af fjöllum eftir tilkynningu Trump um orkuvopnahlé Nýtt flóð í Nepal hreif með sér brýr og hús Leó páfi á leið í aðgerð eftir að hnútur fannst á lunga Vara við því að fara um flugvelli í Sádí-Arabíu Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Hútar sagðir ábyrgir fyrir árás á flugvöll Útskrifuð af sjúkrahúsi og send aftur í fangelsið Vill nýjan Úkraínuforseta Lést eftir árás tígrisdýrs í dýragarði Níu létust eftir skotárás Þrjú börn meðal fimmtán látinna í árás á íbúðarblokkir Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Þúsundum gert að yfirgefa heimili sín vegna Isaias Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Skrúðgangan bönnuð eftir tveggja vikna pattstöðu Trump samdi við Pútín um dísel Vance biðlar til ungra reiðra manna Ætla að „binda enda“ á stríðsglæpadómstól Skólum lokað eftir árásir og tíu handteknir vegna hótana Sjá meira