Um ákvörðun Kjartans og Mörtu Þórir Garðarsson skrifar 7. mars 2026 14:02 Það verður eftirsjá af Kjartani Magnússyni og Mörtu Guðjónsdóttur í borgarstjórnarflokki Sjálfstæðisflokksins. Þau hafa starfað lengi fyrir flokkinn og unnið ötullega að borgarmálum í þágu íbúa Reykjavíkur. Eðlilegt er að þau hafi viljað halda áfram á þeim vettvangi. Fyrir kjörnefnd Sjálfstæðiflokksins í Reykjavík lágu skýr skilaboð um að veruleg endurnýjun þyrfti að eiga sér stað á framboðslistanum. Niðurstaðan er sú að í fyrstu tólf sætum eru átta nýir frambjóðendur. Sumum í grasrót flokksins finnst sú endurnýjun ganga of langt, á meðan aðrir hefðu viljað ganga enn lengra. En þetta var niðurstaðan og hún var samþykkt með yfirgnæfandi meirihluta fulltrúaráðsins flokksins, aðeins tveir voru á móti. Andstaðan við Borgarlínuna er stefna flokksins Það er miður að sjá Kjartan og Mörtu yfirgefa flokkinn frekar en þiggja sæti í baklandi hans. En ég tel mig vita að ákvörðun kjörnefndar snerist ekki um andstöðu þeirra við Borgarlínuna. Sú andstaða er í raun stefna Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. Á Reykjavíkurþingi flokksins í nóvember síðastliðnum kom grasrót flokksins saman og lagði línurnar fyrir komandi borgarstjórnarkosningarnar. Þar var einróma samþykkt að hafna Borgarlínunni og jafnframt gerð krafa um að samgöngusáttmálinn yrði endurskoðaður. Í framhaldi af því var auglýst eftir frambjóðendum á lista flokksins. Ljóst er að þau sem sæktust eftir sæti á listanum voru tilbúin að vinna að þeirri stefnu sem grasrót flokksins hafði samþykkt. Ég óska þeim Kjartani og Mörtu velfarnaðar á nýjum vettvangi hjá Miðflokknum. Þar munu þau hitta fyrir margt gott fólk sem, líkt og Sjálfstæðisflokkurinn í Reykjavík, hefur lýst skýrri andstöðu við Borgarlínuna. Höfundur er stjórnarmaður í Félagi Sjálfstæðismanna í Grafarvogi Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Þórir Garðarsson Sjálfstæðisflokkurinn Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson Skoðun Hún þekkir mig með hjartanu Thelma Jónsdóttir Skoðun Alþjóðadagur friðarmenningar 21. september Gunnar Hersveinn Skoðun Hvalveiðum er lokið... í bili Sigurlaug Knudsen Stefánsdóttir Skoðun Samsköttun hjóna – allt annar hlutur? Gunnar Ármannsson Skoðun Heilbrigð skynsemi Einar Bárðarson Skoðun Hvers vegna hrynur námsárangur á Íslandi en ekki á Englandi? Guðrún Sævarsdóttir Skoðun Pólland setur jurtaríkið á matseðilinn Ingrid Kuhlman Skoðun 37% og reikningskúnstir Viðskiptaráðs Hjálmar Bogi Hafliðason Skoðun Hver borgar? — Seinni hluti: Já 2026 Gestur Valgarðsson Skoðun Skoðun Skoðun Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson skrifar Skoðun Alþjóðadagur friðarmenningar 21. september Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun 37% og reikningskúnstir Viðskiptaráðs Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hvers vegna hrynur námsárangur á Íslandi en ekki á Englandi? Guðrún Sævarsdóttir skrifar Skoðun Heilbrigð skynsemi Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samsköttun hjóna – allt annar hlutur? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tæknin í okkar þágu – ekki öfugt Halla Tómasdóttir skrifar Skoðun Pólland setur jurtaríkið á matseðilinn Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Hún þekkir mig með hjartanu Thelma Jónsdóttir skrifar Skoðun Hvalveiðum er lokið... í bili Sigurlaug Knudsen Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hver borgar? — Seinni hluti: Já 2026 Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Parkour skúrinn - Síðasta vígið Davíð Már Sigurðsson, Tommi Thor Guðmundsson,Viktor Yngvi Ísaksson skrifar Skoðun Þú, ég og dildóinn Eva Pandora Baldursdóttir skrifar Skoðun SÁÁ, milljarðarnir og aðhaldið sem vantar Kristín I. Pálsdóttir skrifar Skoðun Sheeran og Gaza Arnar Eggert Thoroddsen skrifar Skoðun Sameinumst um 2,5 prósent markmið Seðlabankans Bragi Bjarnason skrifar Skoðun Lestur er meira en ein aðferð Guðmundur Engilbertsson skrifar Skoðun Hver skilgreinir svarið? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Krónan varð eftir – nú þarf að láta hana virka Örn Sigurdsson skrifar Skoðun Grænlandssamningurinn Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Uppsagnir hafnar en ríkið er ekki tilbúið að taka við Sigrún Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Þegar faglegt sjálfstæði verður að neitunarvaldi Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Penelópa í Valhöll Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þegar „fjölmiðlastyrkir“ eru ekki fyrir alla fjölmiðla Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Litlar ákvarðanir geta leitt til fleiri heilbrigðra æviára Thor Aspelund skrifar Skoðun Ferðaskrifstofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Allt landið eitt kjördæmi Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég ætla ekki að verða sérfræðingur í salernispappír Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Ástæðan fyrir ástandinu hjá SÁÁ Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Hvers vegna er ég ekki kominn lengra? Sigurður Árni Reynisson skrifar Sjá meira
Það verður eftirsjá af Kjartani Magnússyni og Mörtu Guðjónsdóttur í borgarstjórnarflokki Sjálfstæðisflokksins. Þau hafa starfað lengi fyrir flokkinn og unnið ötullega að borgarmálum í þágu íbúa Reykjavíkur. Eðlilegt er að þau hafi viljað halda áfram á þeim vettvangi. Fyrir kjörnefnd Sjálfstæðiflokksins í Reykjavík lágu skýr skilaboð um að veruleg endurnýjun þyrfti að eiga sér stað á framboðslistanum. Niðurstaðan er sú að í fyrstu tólf sætum eru átta nýir frambjóðendur. Sumum í grasrót flokksins finnst sú endurnýjun ganga of langt, á meðan aðrir hefðu viljað ganga enn lengra. En þetta var niðurstaðan og hún var samþykkt með yfirgnæfandi meirihluta fulltrúaráðsins flokksins, aðeins tveir voru á móti. Andstaðan við Borgarlínuna er stefna flokksins Það er miður að sjá Kjartan og Mörtu yfirgefa flokkinn frekar en þiggja sæti í baklandi hans. En ég tel mig vita að ákvörðun kjörnefndar snerist ekki um andstöðu þeirra við Borgarlínuna. Sú andstaða er í raun stefna Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. Á Reykjavíkurþingi flokksins í nóvember síðastliðnum kom grasrót flokksins saman og lagði línurnar fyrir komandi borgarstjórnarkosningarnar. Þar var einróma samþykkt að hafna Borgarlínunni og jafnframt gerð krafa um að samgöngusáttmálinn yrði endurskoðaður. Í framhaldi af því var auglýst eftir frambjóðendum á lista flokksins. Ljóst er að þau sem sæktust eftir sæti á listanum voru tilbúin að vinna að þeirri stefnu sem grasrót flokksins hafði samþykkt. Ég óska þeim Kjartani og Mörtu velfarnaðar á nýjum vettvangi hjá Miðflokknum. Þar munu þau hitta fyrir margt gott fólk sem, líkt og Sjálfstæðisflokkurinn í Reykjavík, hefur lýst skýrri andstöðu við Borgarlínuna. Höfundur er stjórnarmaður í Félagi Sjálfstæðismanna í Grafarvogi
Skoðun Parkour skúrinn - Síðasta vígið Davíð Már Sigurðsson, Tommi Thor Guðmundsson,Viktor Yngvi Ísaksson skrifar
Skoðun Ferðaskrifstofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar