Átta ára hark á enda Ágúst Orri Arnarson skrifar 4. mars 2026 11:30 Andrea Jacobsen hefur jafnað sig af meiðslunum sem hrjáðu hana í síðasta landsliðsverkefni. vísir / BJARNI Landsliðskonan Andrea Jacobsen er á heimleið eftir að hafa spilað síðustu átta ár erlendis. Hún segist komin með nóg af fjárhagslega harkinu sem fylgir því að vera atvinnukona í handbolta.
Andrea hefur gengið frá samningi við ÍBV og mun spila með liðinu í Olís deild kvenna á næsta tímabili. „Ég er búin að vera úti í átta ár og finnst ég orðin mett af þessum atvinnumannapakka. Ekki það, ég held áfram og framlengi þetta aðeins í Eyjum, en núna fannst mér tími fyrir mig að prófa eitthvað nýtt, vera nær fjölskyldunni og kærastanum. Þessi tímapunktur kemur alltaf á endanum og mér fannst þetta réttur tími fyrir mig núna að snúa heim“ sagði Andrea í viðtali fyrir æfingu íslenska landsliðsins á Ásvöllum í gær. Klippa: Andrea heil heilsu og á heimleið eftir átta ára hark „Þetta er bara hark. Öðruvísi en fyrir þær sem spila hérna heima og eru í fullri vinnu með því. Ég hef verið í aðeins öðruvísi pakka og öðruvísi harki, fjárhagslega. Það er pressa á að standa sig vel og við erum að ferðast um alla Evrópu. Ég er búin að prófa þetta allt núna finnst mér, er mjög sátt en fannst tími til að prófa eitthvað nýtt“ bætti hún við. Þessa stundina er Andrea þó ekki að einbeita sér að félagsliðum heldur með fullan fókus á landsliðinu sem mætir Svartfjallalandi í kvöld og á sunnudag. „Við verðum eiginlega að fá eitthvað út úr þessum leikjum til að koma okkur áfram og ég held að við séum allar staðráðnar í að sýna betri frammistöðu en við gerðum gegn Svartfjallalandi á síðasta stórmóti.“ Andrea tók ekki þátt í þeim leik eða öðrum á HM. Hún sleit liðband í ökkla skömmu fyrir mót en segist komin aftur á gott skrið. „Ég er aftur kominn í spilform, verkjalaus og klár í þetta, hlakka mikið til að leggja mitt af mörkum. Ég fékk góðan tíma eftir stórmótið til að ná mér og hef spilað marga leiki með Blomberg í Þýskalandi. Ég myndi segja að þetta væri bara komið, búið og gleymt“ sagði Andrea um meiðslin sem hrjáðu hana á HM.
Landslið kvenna í handbolta EM kvenna í handbolta 2026 Olís-deild kvenna ÍBV Þýski handboltinn Tengdar fréttir Fleiri breytingar á landsliðinu: Alexandra kemur inn fyrir Ölfu Alfa Brá Oddsdóttir Hagalín hefur dregið út úr íslenska kvennalandsliðinu í handbolta vegna meiðsla. Alexandra Líf Arnarsdóttir hefur verið kölluð inn í landsliðshópinn í hennar stað. 3. mars 2026 14:26 Mest lesið Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Körfubolti Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Körfubolti Arteta kenndi „jólatré“ Nottingham Forest um vandræðin Enski boltinn Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Körfubolti „Hann sagði já takk“ Fótbolti Sjötta lífveran nefnd eftir Lionel Messi Fótbolti Refsing Ronaldos opinberuð og hún er sérstök Fótbolti Vill taka upp „Steindavísitölu“ í íslenskum íþróttum Sport „Markmið að ná Íslandsmeistaratitli“ Sport Gummi Ben: Matthías aðstoðar Rúnar Pál í Stjörnunni Íslenski boltinn Fleiri fréttir Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Sjá meira
Fleiri breytingar á landsliðinu: Alexandra kemur inn fyrir Ölfu Alfa Brá Oddsdóttir Hagalín hefur dregið út úr íslenska kvennalandsliðinu í handbolta vegna meiðsla. Alexandra Líf Arnarsdóttir hefur verið kölluð inn í landsliðshópinn í hennar stað. 3. mars 2026 14:26