Býst að raforkuverð hækki samfara fyrirhuguðum skattabreytingum Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifar 28. febrúar 2026 14:01 Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra boðar breytingu á skattlagningu orkumannvirkja og leggur til að undanþága þeirra frá fasteignaskatti verði afnumin. Vísir/Vilhelm Innviðaráðherra boðar breytingu á skattlagningu orkumannvirkja og leggur til að undanþága þeirra frá fasteignaskatti verði afnumin. Markmiðið er að sveitarfélög fái meiri tekjur af mannvirkjunum. Ráðherrann býst við að breytingarnar muni fela í sér hækkun á raforkuverði. Veigamiklar breytingar eru kynntar á fasteignaskráningu stórra og flókinna mannvirkja á Íslandi eins og orkumannvirkja í frumvarpi innviðaráðherra sem fór í samráðsgátt stjórnvalda í síðustu viku. Þar kemur fram að afnema á undanþágu orkumannvirkja frá fasteignamati, að undanskildum þeim sem annast dreifingu raforku. Samkvæmt kynningu á vef Stjórnarráðsins er markmið frumvarpsins að tryggja að orkuvinnsla skili sanngjörnum hlut til samfélaga sem næst búa. Telur nýjan skatt réttlætismál Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra ætlar að mæla fyrir frumvarpinu í vor. „Við erum þarna að afnema undanþágu frá fasteignaskatti sveitarfélaga. Hingað til hafa fasteignaskattar á svokölluðum stöðvarhúsum verið um einn komma fjórir milljarðar króna á ári. Núna er fyrirhugað að taka fasteignaskatt af öðrum mannvirkjum eins og lónum, stíflum, fráveituskurðum og öðru. Við teljum að þetta sé réttlætismál fyrir sveitarfélögin en þetta er líka stórt og flókið mál. Málið er núna í Samráðsgátt en ég stefni á að mæla fyrir frumvarpinu í vor þegar það kemur úr samráðinu. „Þetta er náttúrulega hækkun, þetta er skattlagning á orkufyrirtækin. Hagfræðisstofnun Háskólans gerir ráð fyrir að orkufyrirtækin muni taka sextíu og níu prósent af hækkuninni en þrjátíu og eitt prósent hennar fari til neytenda.“ Aðspurður hvort slíkar hækkanir gætu ekki aukið verðbólgu svarar Eyjólfur. „Jú, við munum fara mjög varlega í þessi mál og ég geri ráð fyrir að breytingarnar verði lagðar fyrir í þrepum,“ segir Eyjólfur. Frestur að senda umsögn eða ábendingar um frumvarpsdrögin er til og með 6. mars. Orkumál Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Flokkur fólksins Sveitarstjórnarmál Skattar, tollar og gjöld Mest lesið Enn þykknar upp hjá SÁÁ Innlent Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Látin jafngömul og móðir hennar sem var myrt af föðurnum Erlent „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Innlent „Ekkert sem gat bjargað þessu“ Erlent Lokuðu einni mikilvægustu olíuleiðslunni Erlent Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Innlent Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Innlent Umhleypingar næstu daga Veður Fleiri fréttir Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Sjá meira
Veigamiklar breytingar eru kynntar á fasteignaskráningu stórra og flókinna mannvirkja á Íslandi eins og orkumannvirkja í frumvarpi innviðaráðherra sem fór í samráðsgátt stjórnvalda í síðustu viku. Þar kemur fram að afnema á undanþágu orkumannvirkja frá fasteignamati, að undanskildum þeim sem annast dreifingu raforku. Samkvæmt kynningu á vef Stjórnarráðsins er markmið frumvarpsins að tryggja að orkuvinnsla skili sanngjörnum hlut til samfélaga sem næst búa. Telur nýjan skatt réttlætismál Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra ætlar að mæla fyrir frumvarpinu í vor. „Við erum þarna að afnema undanþágu frá fasteignaskatti sveitarfélaga. Hingað til hafa fasteignaskattar á svokölluðum stöðvarhúsum verið um einn komma fjórir milljarðar króna á ári. Núna er fyrirhugað að taka fasteignaskatt af öðrum mannvirkjum eins og lónum, stíflum, fráveituskurðum og öðru. Við teljum að þetta sé réttlætismál fyrir sveitarfélögin en þetta er líka stórt og flókið mál. Málið er núna í Samráðsgátt en ég stefni á að mæla fyrir frumvarpinu í vor þegar það kemur úr samráðinu. „Þetta er náttúrulega hækkun, þetta er skattlagning á orkufyrirtækin. Hagfræðisstofnun Háskólans gerir ráð fyrir að orkufyrirtækin muni taka sextíu og níu prósent af hækkuninni en þrjátíu og eitt prósent hennar fari til neytenda.“ Aðspurður hvort slíkar hækkanir gætu ekki aukið verðbólgu svarar Eyjólfur. „Jú, við munum fara mjög varlega í þessi mál og ég geri ráð fyrir að breytingarnar verði lagðar fyrir í þrepum,“ segir Eyjólfur. Frestur að senda umsögn eða ábendingar um frumvarpsdrögin er til og með 6. mars.
„Þetta er náttúrulega hækkun, þetta er skattlagning á orkufyrirtækin. Hagfræðisstofnun Háskólans gerir ráð fyrir að orkufyrirtækin muni taka sextíu og níu prósent af hækkuninni en þrjátíu og eitt prósent hennar fari til neytenda.“
Orkumál Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Flokkur fólksins Sveitarstjórnarmál Skattar, tollar og gjöld Mest lesið Enn þykknar upp hjá SÁÁ Innlent Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Látin jafngömul og móðir hennar sem var myrt af föðurnum Erlent „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Innlent „Ekkert sem gat bjargað þessu“ Erlent Lokuðu einni mikilvægustu olíuleiðslunni Erlent Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Innlent Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Innlent Umhleypingar næstu daga Veður Fleiri fréttir Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Sjá meira