Sannleikur um slökkvistöð í Kópavogi Jónas Már Torfason skrifar 28. febrúar 2026 08:01 Undirritaður skrifaði á dögunum grein á Vísi sem bar titilinn „Af hverju er engin slökkvistöð í Kópavogi“ sem virðist hafa valdið titringi hjá pólitískri forystu Kópavogsbæjar. Greinin fjallaði um fordæmalausa kröfu meirihlutans um að greitt verði byggingarréttargjald fyrir lóð undir slökkviliðsstöð í Tónahvarfi og tafir á uppbyggingu stöðvarinnar vegna þess. Það er augljóslega bæjarbúum ekki í hag, heldur er verið að forgangsraða skammtímaniðurstöðum fram fyrir velferð og öryggi íbúa efri byggða Kópavogs sem búa við einn lengsta viðbragðstíma neyðarþjónustu á öllu höfuðborgarsvæðinu. Fulltrúar téðrar pólitískrar forystu, einkum úr röðum Sjálfstæðisflokksins, upplifa mikið óréttlæti að fjallað sé um þetta mál og vilja alls ekkert kannast við forsögu þess. Ég þakka þeim fyrir tilefni til að fjalla nánar um málið og er mér bæði ljúft og skylt að fara yfir feril þess á vettvangi stjórnar Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins, hvers fundargerðir eru birtar opinberlega. Krafa um byggingarréttargjald eitt og hálft ár í meðferð stjórnar Á fundi þann 18. október 2024 var dagskrárliðurinn Framtíðaruppbygging SHS, lóð við Tónahvarf til umræðu. Við dagskrárliðinn er bókað: Umræður um gjöld vegna lóða undir slökkvistöðvar vegna fyrirhugaðrar uppbyggingar. Samkvæmt fundargerð var niðurstaðan sú að farið yrði í að meta lóðaverð undir slökkvistöðvar í Tónahvarfi. Skyldi umræðum haldið áfram á næsta fundi. Undir liðnum var lagt fram minnisblað þáverandi bæjarlögmanns Kópavogs dagsett 4. október 2024. Í niðurstöðukaflanum segir: „[...]er að mati undirritaðrar rétt að úthlutun Tónahvarfs 4 sé litið til markaðsverð lóðarinnar og lóðarverð greiðist af byggðasamlagi skv. fjárhagsáætlun þess, sem aðildarsveitarfélög fjármagna sameiginlega“. Á næsta fundi, þann 22. nóvember 2024, var málið aftur á dagskrá. Var bókað um dagskrárliðinn: „Framhald umræðna um gjöld vegna lóða undir slökkvistöðvar og mat á lóðaverði í Tónahvarfi“ . Var niðurstaðan bókuð að lögmenn sveitarfélaganna skyldu vinna drög að samkomulagi um verklag við mat á lóðum undir slökkvistöðvar og að umræðum um málið skyldi haldið áfram að lokinni þeirri vinnu. Drög að slíku samkomulagi lágu fyrst fyrir til kynningar á fundi þann 28. febrúar 2025. Ákveðið var að stjórnarmenn skyldu fara yfir drögin milli funda og taka til afgreiðslu á fundi stjórnar í mars sama ár. Á næsta stjórnarfundi, þann 21. mars 2025 var málið á dagskrá en var frestað án frekari bókunar um hvenær málið skyldi næst tekið fyrir. Aftur var málið á dagskrá þann 25. apríl 2025 og var enn á ný frestað. Loks var málið tekið fyrir á fundi stjórnar þann 13. júní 2025. Á fundinum var lagt fram minnisblað frá borgarlögmanni og annað frá bæjarlögmanni Mosfellsbæjar. Í þeim er m.a. fjallað um rótgróna venju um úthlutun lóða án byggingarréttargjalda fyrir lóðir undir slökkvistöðvar og að tillaga Kópavogsbæjar feli í sér verulegt frávik frá fyrri uppbyggingu. Þar er fjallað um að sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu beri sameiginlega ábyrgð á uppbyggingu slökkviliðsins og verkefnum þess og segir að það skekki samstöðu samstarfsins og grafi undan trausti í samskiptum sveitarfélaganna að eitt þeirra krefjist greiðslu vegna lóðar sem er nýtt í þágu allra. Er gerður fyrirvari um afturvirka greiðslu fyrir lóðir annarra slökkviliðsstöðva á höfuðborgarsvæðinu verði reyndin sú að greitt verði fyrir stöðina í Tónahvarfi enda leiddi önnur niðurstaða til mismunar á framlagi sveitarfélaganna til slökkviliðsins. Var niðurstaða málsins á fundi stjórnar að skoða skyldi áfram tvær sviðsmyndir varðandi gjaldtöku af slökkvistöð í Tónahvarfi, annars vegar út frá einni lóð og hins vegar út frá tveimur lóðum. Síðan af fundi þann 13. júní 2025 bólar ekkert á niðurstöðu í málinu á vettvangi stjórnar, tæplega einu og hálfu ári frá því að krafa um greiðslu gjalda var fyrst sett fram. Síðan þá eru einu tíðindin af slökkvistöðinni í Tónahvarfi af fundi stjórnarinnar þann 15. ágúst 2025. Þar voru til umfjöllunar meginforsendur fjárhagsáætlunar slökkviliðsins 2026 til 2030. Var bókað á fundinum: „Lagt til að fjölgun í varðliði 2026 vegna nýrrar slökkvistöðvar við Tónahvarf [...] verði frestað vegna seinkunar á áætlunum varðandi stöðina“. Var tillagan samþykkt samhljóða, þar með talið með atkvæði bæjarstjóra Kópavogs. Forgangsröðum þjónustu en ekki skammtímaniðurstöðum Bæjarstjóri hefur einna helst forðast að ræða kröfu bæjarins um byggingarréttargjöld fyrir lóðina. Aðspurð í viðtali við Vísi þann 24. febrúar sl. vildi hún þó meina að aðeins væri verið að ræða „hvort að sveitarfélög yfir höfuð eigi að fá eitthvað greitt fyrir lóð sem rennur inn í byggðasamlög“. Það væri hins vegar alveg ótengt ákvörðun um slökkvistöð í Tónahvarfi. Þetta svar hefur bæjarstjórinn endurtekið í skrifum sínum á samfélagsmiðlum. Aðrir fulltrúar Sjálfstæðismanna í bæjarstjórn hafa tekið í sama streng og haldið því fram að brölt bæjarstjóra Kópavogs um byggingarréttargjald hafi alls ekki haft áhrif á feril málsins. Hefur verið látið bera á því að engin skilji málið nema Sjálfstæðismenn í Kópavogi, að málið sé afvegaleitt, hlaupið sé af stað með rangar fullyrðingar og að Samfylkingin hafi „kveikt í trúverðugleika“ sínum. Framangreind yfirferð talar sínu máli. Stjórn slökkviliðsins, hvar bæjarstjóri Kópavogs og oddviti Sjálfstæðismanna hefur sæti, virðist í öllu falli líta svo á að málið snúist einmitt um lóðina í Tónahvarfi og gjaldtöku af henni og sömuleiðis að áætlunum um stöðina hafi seinkað vegna þeirra. Mikilvægast er að slökkvistöðin rísi og að öryggi bæjarbúa í efri byggðum verði eflt. Viðbragðstími í efri byggðum Kópavogs er of langur og lengi hefur verið beðið eftir bótum þar á. Við megum ekki við frekari töfum. Það eru margfalt ríkari hagsmunir en að bærinn fái greidd gjöld af einni eða tveimur lóðum og tefli í leiðinni í tvísýnu samstarfi sveitarfélaga á vettvangi Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins. Rétt væri að forgangsraða raunverulegri þjónustu við bæjarbúa fram fyrir skammtímaniðurstöðum í bókhaldi bæjarins. Það er eðlilegt og mannlegt að snúast hugur í aðdraganda kosninga. Ég vil trúa því að mikil og hörð viðbrögð Sjálfstæðismanna við skrifum um slökkviliðsstöðina sé dæmi um það frekar en nauðvörn fyrir afstöðu sem er bæjarbúum augljóslega ekki í hag. Ef svo er á ég fastlega von á því að bæjarstjóri okkar Kópavogsbúa láti bóka á næsta stjórnarfundi slökkviliðsins að það standi ekki á bænum að afgreiða lóð fyrir slökkvistöð í Tónahvarfi, óháð greiðslu gjalda, svo hún rísi sem fyrst. Höfundur er oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Jónas Már Torfason Kópavogur Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Trúum á enn stærra og sterkara Ísland Þórður Snær Júlíusson Skoðun Hollenska húsnæðislánið Arnór Ingi Finnbjörnsson Skoðun Litla beiðnin kemur fyrst, svo sú stóra. Birna Bragadóttir Skoðun Óvissan í alþjóðamálum - Hvað ef Norðmenn verða á undan? Dagur B. Eggertsson Skoðun Þögnin rofin um þjóðartekjurnar Jón Gunnar Jónsson Skoðun Komið gott Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns Skoðun Sex ýkjur nei-sinna og já-sinna Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Hinn ólánsami Ólafur Ragnar Lúðvík Bergvinsson Skoðun Já núna – til að geta sagt nei síðar Friðrik Björgvinsson Skoðun Tökum slaginn fyrir börnin Tótla I. Sæmundsdóttir,Þorbjörg Helga Þorgilsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Stöðug króna, afnám verðtryggingar og nýtt hlutverk Íslands í alþjóðlegu fjármálakerfi Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Traust er ekki sjálfgefið Hilmar Freyr Gunnarsson skrifar Skoðun Evrópusambandið, skjól frá Bandaríkjunum? Guttormur Þorsteinsson skrifar Skoðun Þegar ríkið tekur reikninginn Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þögnin rofin um þjóðartekjurnar Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun Falleinkunn heima, en hugurinn í Brussel Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Tökum slaginn fyrir börnin Tótla I. Sæmundsdóttir,Þorbjörg Helga Þorgilsdóttir skrifar Skoðun Óvissan í alþjóðamálum - Hvað ef Norðmenn verða á undan? Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Hollenska húsnæðislánið Arnór Ingi Finnbjörnsson skrifar Skoðun Borgin þarf ekki kjötexi — hún þarf mælikerfi Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Stríð ESB gegn jöfnuði og velferð Andri Sigurðsson skrifar Skoðun Já núna – til að geta sagt nei síðar Friðrik Björgvinsson skrifar Skoðun Þegar efinn verður þýðingarmeiri en sannleikurinn Guðjón Heiðar Pálsson skrifar Skoðun Sex ýkjur nei-sinna og já-sinna Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Komið gott Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns skrifar Skoðun Sjálfstæð þjóð tekur sér sæti við borðið Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Ræður Evrópusambandið hvort dánaraðstoð verði leyfð á Íslandi? Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun 4.677 nýir vegfarendur á leið í skólann Lára Hrafnsdóttir,Gunnar Geir Gunnarsson skrifar Skoðun Evran lækkar ekki vextina Magnús B. Jóhannesson skrifar Skoðun Trúum á enn stærra og sterkara Ísland Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Rétturinn er sá sami – en tækifærið er það ekki Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Litla beiðnin kemur fyrst, svo sú stóra. Birna Bragadóttir skrifar Skoðun Nei fyrir komandi kynslóðir Ingibjörg H. Sverrisdóttir skrifar Skoðun Angan lótusblómsins Meyvant Þórólfsson skrifar Skoðun Er ég að bregðast börnunum mínum með því að segja NEI? Monika Margrét Stefánsdóttir skrifar Skoðun Gamli sáttmálinn og sá nýi Aðalsteinn Már Þorsteinsson skrifar Skoðun Er betra? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Útgerðarauðvaldið vill í ESB - ég segi nei Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Gervigreind, gagnaver og tækifæri Íslands Eymundur Sigurðsson skrifar Skoðun Sveitirnar þagna Walter Fannar Kristjánsson skrifar Sjá meira
Skoðun Stöðug króna, afnám verðtryggingar og nýtt hlutverk Íslands í alþjóðlegu fjármálakerfi Eggert Guðmundsson skrifar