Þegar við hugum að líðan styrkjum við allt samfélagið Valdimar Víðisson skrifar 27. febrúar 2026 07:33 Góð heilsa er ein sterkasta undirstaða góðs samfélags og öflugra vinnustaða. Þegar fólki líður vel eykst orka, einbeiting og starfsánægja. Það er því keppikefli okkar að hér hjá Hafnarfjarðarbæ líði fólki vel. Fylgifiskar streitu, álags eða langvarandi veikinda birtast oft í fjarvistum og minni viðveru á vinnustað. Þess vegna skipta forvarnir gífurlega miklu máli, að grípa inn í, bjóða og efla stuðning, efla heilsutengda viðburði í tengslum við andlega og líkamlega heilsu og skapa umhverfi þar sem það er eðlilegt að tala um líðan og fá hjálp áður en vandinn verður meiri. Eftir Covid sáu sveitarfélög almennt aukningu í veikindafjarvistum. Við í Hafnarfirði tókum þá stöðu alvarlega og ákváðum að svara henni með markvissri, mannlegri og mælanlegri vinnu. Hafnarfjörður á réttri leið Við erum ánægð með árangurinn sem nú er farinn að sjást. Heildar veikindafjarvistir lækkuðu milli áranna 2024 og 2025 úr 7,9% í 7,3%. Það jafngildir um 4.000 færri veikindadögum á árinu. Á bak við þessar tölur er vinna sem hefur staðið yfir síðustu 2 – 3 ár. Hafnarfjarðarbær var fyrsta sveitarfélagið sem varð heilsueflandi vinnustaður. Við höfum líka styrkt stjórnendahópinn með metnaðarfullum leiðtogaskóla, þjálfun í viðverusamtölum og fræðslu um öruggt vinnuumhverfi ásamt stjórnendadögum þar sem áhersla er á líðan og starfsánægju. Samhliða þessu höfum við boðið upp á heilsuræktarstyrki, samgöngustyrk, frítt í sund fyrir starfsfólk Hafnarfjarðarbæjar og fjölbreytta heilsutengda viðburði. Mælaborð og regluleg upplýsingagjöf til stjórnenda hafa svo styrkt yfirsýn og gert okkur kleift að bregðast fyrr við. Vellíðan í starfi og Life-line tilraunaverkefni Næstu vikur og mánuði fer í gang 18 mánaða vegferð sem kallast Vellíðan í starfi. Þar munum við meðal annars: setja upp sérstakt viðverusamtalsferli í samstarfi við hjúkrunarfræðinga og sálfræðinga, auka reglulegar mælingar á líðan og starfsánægju með púlsmælingum, efla fræðslu og forvarnir fyrir bæði starfsfólk og stjórnendur, nýta tæknina enn betur, m.a. með myndrænum stöðuskýrslum til stjórnenda. Eitt af mest spennandi verkefnunum í þessari vegferð er Life-line tilraunaverkefni þar sem tveir vinnustaðir fá að taka þátt í ítarlegum heilsufarsmælingum og eftirfylgni í 12 mánuði. Hugmyndin er einföld en það er að fá betri mynd af stöðunni, bjóða markvissan stuðning og læra hvað virkar best svo við getum unnið með það sem skilar raunverulegum árangri. Það er ekki til ein töfralausn. Það sem virkar er samheldni, stöðug og manneskjuleg nálgun. Forvarnir snúast ekki um að krefjast meira af fólki, heldur að búa til skilyrði þar sem fólk getur staðið undir sínu án þess að brenna út. Við þurfum að grípa fyrr inn, styðja við heilsu og styrkja stjórnendur til að vera til staðar fyrir sitt fólk. Þannig verndum við ekki bara heilsu, heldur líka starfsgetu, öryggi og fagmennsku í daglegu starfi. Höfundur er bæjarstjóri Hafnarfjarðar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Valdimar Víðisson Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Hafnarfjörður Mest lesið Opnum dyr fyrir innviðafjárfestingu um allt land Logi Einarsson Skoðun Ísland, Evrópa og áhrifasvæði stórvelda Þorsteinn Kristinsson Skoðun Fleiri valkostir og sterkari staða ef við segjum já Ragna Sigurðardóttir Skoðun Eldra fólk ætti alls ekki að kjósa nei Björn B Björnsson Skoðun Eru 532 milljarðar minni tala en 245 milljarðar? Egill Almar Ágústsson Skoðun Referendum: Gratitude and Outlook from the Swiss Substitute Carl Baudenbacher Skoðun Hvaða þýðingu hefur óvissa um aðildarsamning að ESB? Jón Jónsson Skoðun Útgerðarauðvaldið vill í ESB - ég segi nei Ögmundur Jónasson Skoðun Er betra? Sigþrúður Ármann Skoðun Hóparnir þrír sem segja JÁ Rúnar Vilhjálmsson Skoðun Skoðun Skoðun Nei fyrir komandi kynslóðir Ingibjörg H. Sverrisdóttir skrifar Skoðun Angan lótusblómsins Meyvant Þórólfsson skrifar Skoðun Er ég að bregðast börnunum mínum með því að segja NEI? Monika Margrét Stefánsdóttir skrifar Skoðun Gamli sáttmálinn og sá nýi Aðalsteinn Már Þorsteinsson skrifar Skoðun Er betra? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Útgerðarauðvaldið vill í ESB - ég segi nei Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Gervigreind, gagnaver og tækifæri Íslands Eymundur Sigurðsson skrifar Skoðun Sveitirnar þagna Walter Fannar Kristjánsson skrifar Skoðun Áður en lengra er haldið Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Erum við of fljót að kenna samfélagsmiðlum um? Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Börn læra ekki fyrir framtíð sem þau skynja ekki Helgi S. Karlsson skrifar Skoðun Danir, ESB og staða Íslands Finnur Torfi Magnússon skrifar Skoðun Hvað kostar „þetta reddast“? Guðríður Lára Þrastardóttir skrifar Skoðun Frá öllum til allra með nútímalegum sjúkratryggingum Sigurður H. Helgason skrifar Skoðun Tækifærið er núna Agnar H. Johnson skrifar Skoðun Einelti og samskiptahættir kvenna á Íslandi Vigdís Ásgeirsdóttir skrifar Skoðun 600 þúsund manna Ísland – ætlum við að byggja það sjálf? Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar Skoðun Hlaupið er búið - en láttu það ekki stoppa þig Sigrún Elva Einarsdóttir skrifar Skoðun Aðildarviðræður eru ekki prufuáskrift Guðbjörg Oddný Jónasdóttir skrifar Skoðun Trump á ekki að vera ástæðan Friðjón R. Friðjónsson skrifar Skoðun Hvernig lækka vextir með upptöku evru? Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Eldra fólk ætti alls ekki að kjósa nei Björn B Björnsson skrifar Skoðun Fleiri valkostir og sterkari staða ef við segjum já Ragna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Samkeppniseftirlitið eitt og sér Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Opnum dyr fyrir innviðafjárfestingu um allt land Logi Einarsson skrifar Skoðun Hinn ólánsami Ólafur Ragnar Lúðvík Bergvinsson skrifar Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar Skoðun Skipulag sem má ekki borga sig! Íris Björk Hreinsdóttir skrifar Skoðun Ísland, Evrópa og áhrifasvæði stórvelda Þorsteinn Kristinsson skrifar Skoðun Hvaða þýðingu hefur óvissa um aðildarsamning að ESB? Jón Jónsson skrifar Sjá meira
Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar