Tæp sextíu prósent landsmanna vilja banna sjókvíaeldi Jakob Bjarnar skrifar 25. febrúar 2026 13:44 Norskir froskmenn komu til landsins, eins og frægt er orðið, til að eltast við slysasleppingar úr sjókvíaeldi. Þarna eru þeir að spá í spilin við Haukadalsá í Dalasýslu. vísir/anton brink Mikill meirihluti aðspurðra hefur horn í síðu sjókvíaeldis við Íslandsstrendur. Þá kemur meðal annars fram í nýrri könnun Gallup að tæp sextíu prósent aðspurðra vilja hreinlega banna þessa starfsemi.
Könnun er greidd af Íslenska náttúruverndarsjóðnum og samstarfssamtökum en að sögn Jóns Kaldals, talsmanns sjóðsins, er aðferðarfræðin er öll samkvæmt stöðlum Gallups. Í fyrstu spurningu er til að mynda spurt: „Hversu jákvæð(ur) eða neikvæð(ur) ertu gagnvart laxeldi í opnum sjókvíum?“ Fyrsta spurningin en í henni er tónninn sleginn. Eftirtektarvert má heita að í sambærilegri könnun í júlí 2015 voru þeir sem lýstu sig jákvæða 5,1 prósent en nú í febrúar eru þeir orðnir 6,3 prósent. Með öðrum orðum má ætla að meiri harka sé hlaupin í varðstöðu um sjókvíaeldið en þeir eru hins vegar enn í verulegum minnihluta sem vilja standa með því.gallup Könnunin var gerð 5. til 19. febrúar en markmiðið var að kanna viðhorf Íslendinga til laxeldis í opnum sjókvíum og þróun þar á. Um var að ræða netkönnun en úrtak var 1867 manns af öllu landinu, 18 ára og eldri en þeir voru handahófvaldir úr Viðhorfahópi Gallup. „Niðurstaða könnunarinnar sýnir okkur með fyrst og fremst að staða baráttunnar gegn laxeldi í opnum sjókvíum er ótrúlega sterk. Viðhorf fólks er stöðugt heilt yfir og hlutfallstölur hreyfast lítið milli ára. Margfalt fleiri eru neikvæð í garð þessa iðnaðar en jákvæðir,“ segir Jón Kaldal í samtali við Vísi. Ekki vænkast hagur lagareldisfrumvarpsins Að sögn Jóns má lesa það úr könnuninni að fjórum sinnum fleiri eru neikvæðir gagnvart sjókvíaeldi en jákvæðir. Sérstaklega forvitnilegt í því samhengi er að sex sinnum fleiri meðal stuðningfólks ríkisstjórnarinnar eru neikvæðir gagnvart sjókvítaeldi en jákvæðir. En nýtt lagareldisfrumvarp Hönnu Katrínar Friðriksson atvinnuvegaráðherra hefur reynst afar umdeilt. Annars er staðan sú að andstaðan við sjókvíaeldi er afgerandi og er hún greinileg í öllum aldurs- og tekjuhópum, bæði meðal karla og kvenna, hún er í öllum kjördæmum, sem er eftirtektarvert í ljósi stuðnings á landsbyggðinni sem gjarnan er vísað til og andstöðuna má finna meðal kjósenda allra flokka. Má þá segja að um sé að ræða gjá milli þings og þjóðar, eins og það hefur verið orðað? „Við vitum við ekki hvernig sá hópur sem nú gegnir þingmennsku mun taka á þessum málum. Þau eru ekki enn komin á dagskrá þingsins. Hitt er kristalstært að djúp gjá er milli Hönnu Katrínar og stuðningsfólks Viðreisnar. Jón Kaldal. Spriklandi ný könnun er nú komin frá Gallup sem sýnir afgerandi andstöðu landsmanna við sjókvíaeldi við Íslandsstrendur.vísir/vilhelm Um fimm sinnum fleiri stuðningsmenn Viðreisnar eru neikvæðir í garð sjókvíaeldis en jákvæðir. Á sama tíma og Hanna Katrín vill fjölga fjörðum undir sjókvíaeldi og hefur lagt fram drög að frumvarpi til lagar um lkagareldi sem eru klæðskerasniðin að hagsmunum fyrirtækjanna styðja yfir helmingur þeirra sem myndu kjósa Viðreisn að sjókvíaeldið verði beinlínis bannað,“ segir Jón. Helstu niðurstöður Í könnuninni kemur fram að 62,6 prósent eru neikvæð gagnvart sjókvíaeldi en 15,1 prósent eru jákvæð. Þá kemur fram í könnuninni að 57,4 prósent vilja banna sjókvíaeldi. Hvað velferð eldislaxa varðar telja 58,8 prósent hana slæma í sjókvíaeldi og 72,8 prósent telja að villta íslenska laxastofninum stafi mikil hætta af laxeldi í opnum sjókvíum. Neikvæðni í garð sjókvíaeldis er yfir 50 prósent meðal stuðningsfólks allra flokka. Jón segir að þarna sé í raun ekkert sem komi á óvart ef frá er talin tregða atvinnuvegaráðherra til að hverfa af braut fyrri sérhagsmunagæslu, eins og Jón orðar það. „Meðal stuðningsfólks ríkisstjórnarinnar eru um sex sinnum fleiri neikvæðir gagnvart sjókvíaeldi en jákvæðir. Ríkisstjórnin hefur því ríkt umboð meðal stuðningsfólks síns til að koma skikki á umgjörð sjókvíaeldis við Ísland með því að setja iðnaðinum umgjörð sem tryggir að umhverfi og lífríki landsins skaðist ekki með varanlegum hætti.“ Sjá má könnunina í heild sinni í tengdum skjölum. Tengd skjöl Gallup_Sjokviaeldi_130226PDF377KBSækja skjal
Sjókvíaeldi Skoðanakannanir Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Viðreisn Sjávarútvegur Mest lesið Lýsa uppgötvuninni sem gríðarstórum „hvalakirkjugarði“ Erlent Eldur í Árbænum Innlent Vill ekki ganga svo langt að kalla þetta klofningu flokksins Innlent Vísað út úr flugvél: „Þetta er bara ömurlegt“ Innlent Sjálftakan „til háborinnar skammar“ Innlent Bretar samþykkja Wegovy pilluna fyrstir í Evrópu Erlent Árásarmaður Tinnu fær ekki áheyrn: Taldi brotið á mannréttindum minnihlutahópa Innlent Sorglegt hve fáir Kópavogsbúar hafi skrifað undir listann Innlent Finnur ekki fyrir sársauka Innlent Ólga í Samfylkingu: „Þessi ólög eru ekki í okkar nafni sett“ Innlent Fleiri fréttir Fara fram á að fjármálaáætlunin sé endurreiknuð Eldur í Árbænum Vill ekki ganga svo langt að kalla þetta klofningu flokksins Sjálftakan „til háborinnar skammar“ Eldfim staða, sorglegt áhugaleysi og ráðgáta Vísað út úr flugvél: „Þetta er bara ömurlegt“ Hafnar kreddum um verðbólguna Stefnir í uppbótartíma Starfsáætlun Alþingis kippt úr sambandi Tóku þátt í að uppræta rafmyntaþvætti sem teygði anga til Íslands Hótaði að beita skotvopni Finnur ekki fyrir sársauka Árásarmaður Tinnu fær ekki áheyrn: Taldi brotið á mannréttindum minnihlutahópa MDE vísar frá tveimur málum gegn Íslandi Flekahreyfingar innan Samfylkingar Rýmdu skrifstofur Hagkaupa vegna hótunar Ráðstöfun Baldurs til Eyja brjóti gegn samningi Samkeppniseftirlitið dragi upp skakka mynd af matvælaverðinu Brúin yfir Djúpafjörð boðin út Hermann Nökkvi verður aðstoðarmaður Vilhjálms Árnasonar Sorglegt hve fáir Kópavogsbúar hafi skrifað undir listann Leggja til að mestu gljúfurkerfi landsgrunnsins verði vernduð „Ljóst að deilunni er ekki lokið“ Bein útsending: Funda um verðbólgu, verðlag og laun Ólga í Samfylkingu: „Þessi ólög eru ekki í okkar nafni sett“ Færa umferð af norður- á suðurakbraut á Breiðholtsbraut Mættu með stungusár á lögreglustöðina Veglegt veiðihús rís fyrir silungasvæðið Þjónusta þjarka og falskra aðganga gengur kaupum og sölu Opnar sig um gróf ummæli um hjónabandið Sjá meira