Sjálfstæðisflokkurinn ekki í samkeppni og „alveg slök“ í Miðflokknum Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar 25. febrúar 2026 13:27 Guðrún Hafsteinsdóttir vonar að bjartari tímar séu framundan hjá Sjálfstæðisflokknum eftir að fylgið mælist á uppleið og Sigríður Andersen segir Miðflokksmenn pollrólega yfir því þótt fylgi hafi dregist ögn saman á milli kannana. Vísir/samsett Sigríður Andersen, þingflokksformaður Miðflokksins, vill ekki meina að flokknum sé að fatast flugið eftir að fylgi við flokkinn mældist í fyrsta sinn í hálft ár á niðurleið. Sjálfstæðisflokkurinn bætti við sig fylgi í sömu könnun en Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður flokksins, segist vona að það sé til marks um að hann sé að ná vopnum sínum á ný og að bjartari tímar séu framundan. Þótt hreyfing sé á fylgi við flokkana vill hvorug þeirra fullyrða að þeir séu í beinni samkeppni um fylgi.
Samfylkingin mælist áfram stærsti flokkur landsins samkvæmt nýjustu könnun Maskínu sem fréttastofa greindi frá í gær. Í fyrsta sinn síðan í september í fyrra jókst fylgi við Miðflokkinn ekki á milli kannana, en fylgi við flokkinn dróst saman um þrjú prósentustig á milli mánaða, og mælist 19% samkvæmt könnuninni. Heldur þú að flokkurinn sé búinn að toppa? „Ég veit nú ekkert um það. Ég auðvitað tek öllum skoðanakönnunum með fyrirvara. En mér fannst nú kannski smá kómísk þessi fyrirsögn sem að ég sá að Vísir setti á þetta, að flokknum væri að fatast flugið. Það eru auðvitað ekki miklar upplýsingar í fréttinni kannski um hvernig könnun þetta er, en af þeim litlu upplýsingum sem að eru þarna, þá má nú ráða í það að þetta er nú kannski innan skekkjumarka þessi fylgisbreyting, að minnsta kosti hjá Miðflokknum. Þannig að við erum nú bara alveg slök í Miðflokknum og teljum þetta bara ágæta niðurstöðu fyrir flokkinn. Flokkurinn er samkvæmt þessari könnun næststærsti flokkurinn,” svarar Sigríður Andersen. Skoðanakannanir séu ákveðinn samkvæmisleikur í þau fjögur ár sem líða á milli kosninga, og Miðflokksmenn séu ekki að stressa sig yfir þeim. Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins, tekur í svipaðan streng, en flokkur hennar bætti við sig fylgi sem jókst um þrjú prósent samkvæmt könnuninni, sem nemur um það bil því sama og Miðflokkurinn missir á milli kannanna. Samkvæmt könnun Maskínu mælist flokkurinn nú með 16,2% fylgi og þriðji stærsti flokkur landsins.„Ég tel það að það séu bjartari tímar fram undan og við séum að ná vopnum okkar. En ég hef nú alltaf verið róleg yfir skoðanakönnunum og ég er róleg yfir þessari skoðanakönnun líka. Þetta er svona merki bara, þetta er stöðupunktur, en vonandi fyrirheit um að það séu bjartari tímar fram undan fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Við höfum á síðustu vikum og mánuðum þá höfum við talað mjög sterkt fyrir okkar gildum, sérstaklega í fjárlagaumræðunni,“ segir Guðrún. Hvorki Guðrún né Sigríður vilja fullyrða að flokkarnir tveir séu í samkeppni um fylgi. „Það er auðvitað ekkert hægt að ráða í það af svona könnunum. Til þess þarf að gera ítarlegri könnun til þess að kanna hvaðan fylgið kemur og hvert það er að fara, svona á milli kannana. En vissulega eða ábyggilega eru kjósendurnir eða stuðningsmenn ýmissa flokka, svona þessara borgaralegu flokka, þeir eru kannski að gefa sig upp á nokkra flokka svona til skiptis,” segir Sigríður.„Nei, við erum ekkert í beinni samkeppni um það. Við erum bara að höfða til fólksins í landinu. Við erum með góða raunhæfa stefnu og stefnan okkar er að virka og ég tel að málflutningur okkar sé að ná í gegn og að hann nái bara til breiðari hóps en áður,“ segir Guðrún.
Sjálfstæðisflokkurinn Miðflokkurinn Skoðanakannanir Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Innlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Innlent Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Innlent Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda Innlent Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Fleiri fréttir Loka fyrir umferð vegna bilunar í umferðarljósum Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sjá meira