Hundruð milljarða í að verja strandir fyrir ágangi sjávar Kjartan Kjartansson skrifar 23. febrúar 2026 13:59 Starfsmenn almannavarna Danmerkur dæla vatni úr hverfi í Haderslev á Suður-Jótlandi eftir sjávarflóð í óveðri í október árið 2023. Með hækkandi sjávarstöðu eykst hættan á slíkum flóðum. Vísir/EPA Danska ríkisstjórnin ætlar að leggja jafnvirði hátt í þriggja hundraða milljarða íslenskra króna í að verja strandbyggðir landsins fyrir vaxandi ágangi sjávar. Aðgerðirnar eru hluti af aðlögunaráætlun stjórnvalda að loftslagsbreytingum.
Fjármunina á meðal annars að nota til þess að reisa sjóvarnargarða til þess að verja strandbæi og borgir fyrir sjávarflóðum og frárennslisskurði. Ætlunin er að verja 14,9 milljörðum danskra króna í strandvarnir frá 2029 til 2040, jafnvirði um 290 milljarða íslenskra króna. „Með þessari áætlun ætlum við að verja heimili ykkar, fyrirtækin ykkar, eignir sem eru á dönskum ströndum,“ sagði Magnus Heunicke, umhverfisráðherra, þegar hann kynnti aðgerðirnar á blaðamannafundi í dag. Til stendur að forgangsraða þeim svæðum sem eru í sérstakri hættu vegna ágangs sjávar á um tvö þúsund kílómetra löngum hluta af dönsku strandlengjunni. Byrjað verður á svæðum eins og Esbjerg, Kerteminde, Korsør, Vejle og Riskov, nærri Árósum, að því er segir í frétt danska ríkisútvarpsins. Skæðari sjávarflóð með hækkandi sjávarstöðu Ríkið ætlar að borga 85 prósent af reikningnum við fjárfestingar í strandvörnum á móti fimmtán prósenta hlut einstakra sveitarfélaga. Hlutur ríkisins verður stærri í bæjum eins og Kerteminde á Fjóni sem er talinn sérstaklega útsettur fyrir áhrifum loftslagsbreytinga á strandir Danmerkur. Hækkandi yfirborð sjávar er einn fylgifiska hnattrænnar hlýnunar. Sjávarborð hækkar að meðaltali á jörðinni annars vegar vegna bráðnunar jökla og landíss og hins vegar vegna útþenslu sjávar þegar hann hlýnar. Höf jarðar eru talin hafa tekið við um níutíu prósentum af þeirri umframhlýnun sem losun manna á gróðurhúsalofttegundum hefur valdið. Ein hættan af hækkandi sjávarstöðu fyrir láglend lönd eins og Danmörku er sjávarflóð sem geta náð lengra upp á land og valdið meiri usla eftir því sem sjávarstaðan er hærri.
Danmörk Loftslagsmál Umhverfismál Mest lesið Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður Nóg sé komið af Trump Erlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Fleiri fréttir Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Sjá meira