Þorpið okkar allra Andri Rafn Ottesen skrifar 23. febrúar 2026 09:32 „Það þarf þorp til að ala upp barn.“ Við höfum eflaust flest heyrt þessi orð. En hvenær hugleiddir þú síðast hvað stendur á bak við þau? Ég man hvað mér þótti þetta orðatiltæki sérstakt þegar ég heyrði það fyrst. Að það taki heilt þorp til að ala upp eitt barn. „Ég get alveg séð um mitt barn sjálfur“ var ég fljótur að hugsa, barnlaus og reynslulítill.. Það var ekki fyrr en ég eignaðist börnin mín að ég sá hvað það er ótrúlegur fjöldi sem kemur að velferð þeirra og styður við fjölskylduna. Allt frá nánustu fjölskyldu til vina, frá okkar ómetanlega starfsfólki í heilbrigðiskerfinu á heilsugæslum og spítala til okkar dýrmætu leikskólakennara og svona mætti lengi telja. Meira að segja vagnstjórinn í strætisvagninum sem veifar reglulega til dóttur minnar þegar við röltum í og úr leikskóla, sem gleður hana svo óheyrilega mikið. Þegar ég lít til baka og velti fyrir mér hver mótaði mig sem manneskju, þá koma foreldrar mínir fyrst upp í hugann. En listinn er síðan fljótur að lengjast af öllu því ólíka og frábæra fólki sem ég hef mætt á lífsleiðinni. Ég sé heilt þorp, fólk sem gerði svo mikið en vissi kannski ekki einu sinni hversu mikil áhrif það hafði einmitt þá. Ekkert barn elst upp í tómarúmi, það elst upp í samfélagi. Þorpið okkar er því ekki staður heldur tengslanet. Þorpin okkar eru misstór og ólík og ég geri mér grein fyrir því að gæði þorpanna eru einnig misjöfn. Bakland fólks og tækifæri eru oft misskipt. En hvað með heildarmyndina?Við erum öll fyrirmyndir hvort sem við gerum okkur grein fyrir því eða ekki. Samtíminn er farinn að einkennast af miklum hraða, miklum kröfum, einangrun, samanburði, falsfréttum, þrýstingi.. Við höfum sennilega aldrei þurft jafn mikið á samstöðu að halda og nú. Undanfarið finnst mér stóra þorpið okkar, Ísland, aðeins hafa sofið á verðinum í ýmsum málum. Það er eins og þreyta og pirringur hafi læðst aftan að okkur og í staðinn fyrir að standa saman er einfaldara að benda á næsta og halda áfram að pirra sig yfir stöðunni. Í dag búum við kannski ekki öll í litlu þorpi þar sem allir þekkja alla. En þorpið er samt til. Það er bara öðruvísi. Foreldrar finna oft fyrir þrýstingi um að þurfa að gera allt sjálfir og standa sig fullkomlega, án þess að mega halla sér að öðrum. En þorpið er fjölskyldan sem stígur inn þegar á reynir.Það er amma og afi sem sækja á leikskólann þegar dagurinn fer úr skorðum.Það er kennarinn sem klappar á öxlina þegar algebran þyngist.Það er vinahópurinn sem stendur saman í blíðu og stríðu. Foreldrar bera mikla ábyrgð, en þeir geta ekki verið allt. Enginn getur verið allt. Enginn einstaklingur getur kennt barninu allt sem það þarf að læra. En hægt og rólega raðast molarnir saman í eina heildarmynd. Einn aðili kennir þrautseigju, annar eflir hugrekki, þriðji sýnir samkennd og fjórði þjálfar sköpunarkraftinn. Þegar barn upplifir að fleiri en tveir fullorðnir standi með því, hlusti á það og sjái það fara hlutirnir að gerast. Öryggi eykst, sjálfstraust styrkist, sjálfsmynd vex. Við gleymum stundum að börn læra af okkur öllum. Ekki bara af foreldrum sínum. Þau fylgjast með hvernig við tölum hvert við annað. Hvernig við leysum ágreining. Hvernig við sýnum mildi, eða skort á henni.Uppeldi er ekki einstaklingsverkefni. Það er samfélagsverkefni. Og samstaða er ekki merki um veikleika. Mig minnir að Grikkir hafi kallað samstöðu merki um visku. Þorpið verður aldrei til af sjálfu sér. Við þurfum að velja að taka þátt í því og það eru margar leiðir til þess. Heilsum hvort öðru, bjóðum fram aðstoð þó enginn biðji um hana, höldum aftur af dómhörku og veljum frekar skilning, kjósum kærleikann fram yfir pirringinn, brosum og hvetjum.Við vitum í raun og veru aldrei hvaða setning, augnablik eða stuðningur verður vendipunkturinn í lífi barns. Við erum að byggja framtíðina, ekki bara fyrir mig og þig heldur okkur öll. Og þá sérstaklega börnin okkar sem eru framtíðin.Þegar við styðjum við foreldra erum við ekki bara að létta þeim lífið heldur aðstoða við að móta börnin sín. Þegar við sýnum börnum virðingu erum við ekki bara að ala upp einstaklinga heldur erum við að móta samfélag. Samfélag þar sem börn finna að þau tilheyra og þar sem enginn stendur einn. Það þarf þorp til að ala upp barn og spurningin er ekki hvort þetta þorp sé til eða ekki. Spurningin er ætlar þú að taka virkan þátt í þorpinu?Því þegar við leggjum öll hönd á plóg þá erum við ekki bara að ala upp barn, við erum að byggja framtíð.Þegar allt kemur til alls, þá er ekkert dýrmætara í þessum heimi en börnin okkar og unglingarnir.Þess vegna þarf þorpið að koma saman og standa saman. Höfundur er faðir og grunnskólakennari Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Börn og uppeldi Mest lesið Halldór 03.10.2026 Agnar Már Másson Halldór Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson Skoðun Eru hjúkrunarheimili biðsalur eða heimili? Ragnhildur Þórarinsdóttir Skoðun Opið bréf til ráðherra Helgi Felixson Skoðun Er skynjari á vaktinni í bústaðnum? Ágúst Mogensen Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Er skynjari á vaktinni í bústaðnum? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Opið bréf til ráðherra Helgi Felixson skrifar Skoðun Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Eru hjúkrunarheimili biðsalur eða heimili? Ragnhildur Þórarinsdóttir skrifar Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Tækifærið í Stofnun atvinnuveganna Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Sporin í snjónum Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Stórefla þarf kjarnahlutverk ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson skrifar Skoðun Hvernig get ég fundið ró þegar barnið mitt er í uppnámi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson skrifar Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar Skoðun Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir skrifar Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Firrur um aflareglu fyrir þorsk Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun EES málið, ESA og fullveldi Íslands og tími komin til varna Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir skrifar Skoðun Bókun 35 – þegar molnar undan stjórnkerfinu Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Pínu sársauki á unga fólkið? Helgi Bárðarson skrifar Skoðun Austurland margborgar sig Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Verklokafælni stjórnvalda Kjartan Björgvinsson skrifar Sjá meira
„
Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun
Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar
Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar
Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar
Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun