Körfubolti

Miskovic farinn frá Álfta­nesi: „Aðal­lega var það per­sónu­leikinn“

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Hjalti Þór hreifst ekki af persónuleika Nikola Miskovic. 
Hjalti Þór hreifst ekki af persónuleika Nikola Miskovic.  Vísir/Hulda Margrét

Álftanes á mikilvægan leik fyrir höndum í kvöld þegar liðið tekur á móti Val í 18. umferð Bónus deildar karla í körfubolta. Álftnesingar hafa gert breytingar á leikmannahópnum frá því í síðasta leik.

Bæði lið er í harðri baráttu, en um sitt hvoran hlutinn.

Valur er með sæti í úrslitakeppninni tryggt og berst fyrir því að enda í efri hlutanum með heimavallarrétt. Álftanes er hins vegar ekki öruggt með sæti í úrslitakeppninni og situr í 8. sætinu fyrir leik kvöldsins.

„Vissulega þurfum við stig, við þurfum sigur“ sagði Hjalti Þór Vilhjálmsson, þjálfari Álftaness, í samtali við Vísi en hann væntir þess að verkefnið verði strembið.

„Valsmenn eru svakalega þéttir, með stráka sem kunna þetta allt saman og hafa spilað lengi saman. Við þurfum að ná að hreyfa þá svolítið, ráðast á veikleika þeirra og svo þurfum við að vera þéttir varnarlega, loka á það sem þeir eru að leita að.“

Persónuleiki sem passaði illa og meiðslin hjálpuðu ekki

Serbneski framherjinn Nikola Miscovic er farinn frá Álftanesi eftir aðeins þrjá leiki fyrir félagið.

„Hann bara fittaði ekki alveg inn í kúltúrinn, því miður. Fínasti leikmaður og svaka talent, en var ekki alveg að fitta inn kallinn. Mér fannst þetta bara ekki alveg vera að ganga,“ sagði Hjalti.

„Hann átti fínan leik á móti Njarðvík en kemur hálfmeiddur og er laskaður á hnénu. Var lengi að koma sér í gang og það var vont, en aðallega var það persónuleikinn og annað sem passaði ekki inn hjá okkur“ bætti Hjalti við.

Mun stemningin á heimavelli hjálpa? 

Álftanes kemur inn í þennan leik með tvö töp að baki á útivelli gegn Njarðvík og KR. En félagið ætlar að keyra upp stemninguna á heimavelli í kvöld, frítt verður inn í Kaldalónshöllina og búast má við margmenni í góðri stemningu. 

Hjalti segir margt jákvætt hægt að taka með sér úr síðustu töpum og vonar að sínir menn taki leikinn yfir línuna í kvöld. 

„Báðum leikjum erum við svolítið að tapa bara undir lokin. Við þurfum bara að vera þéttari, klára þessa leiki og stemningin hjálpar við það. Þetta hafa ekkert verið neitt slakir leikir hjá okkur, þó Njarðvíkurleikurinn hafi ekki verið sá fallegasti“ sagði Hjalti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×