Framkvæmdir við Fontana trufluðu hitaveitu á Laugarvatni Kjartan Kjartansson skrifar 19. febrúar 2026 14:31 Sex hundruð fermetra baðlón með bar og rúmlega 1.100 fermetra hús undir búningsklefa og eimbað er hluti af meiriháttar framkvæmdum við Fontana við Laugarvatn. Vísir/Vilhelm Vatnsborð í Laugarvatnshver sem sér Laugvetningum fyrir heitu vatni lækkaði vegna framkvæmda við heilsulindina Fontana í síðustu viku. Brugðist var við með því að hægja á rennsli til sundlaugarinnar í bænum.
Uppákoman varð á föstudag í síðustu viku þegar vatnsborð í gömlu gufunni á Laugarvatni var lækkað vegna framkvæmda við stækkun Fontana í eigu Bláa lónsins. Við það lækkaði staðan í Laugarvatnshver sem Blágskógaveita sækir heitt vatn í. Benedikt Skúlason, veitustjóri Bláskógaveitu, segir að í ljós hafi komið að bein tengsl væru á milli hveranna. Mikill kuldi hefur verið á Suðurlandi og eftirspurn eftir heitu vatni því mikil. Hitaveitan hafi því ekki mátt við trufluninni. „Það hafði áhrif á vatnið hjá okkur sem við gátum leyst tímabundið með því að minnka á sundlauginni á meðan þeir voru að græja það. Svo er það komið í stand. Þetta gerðist bara af þeirra vanhugsun,“ segir Benedikt. Sundlaugin hvort eð er lokuð Veitustjórinn veit ekki til þess að tjón hafi orðið en bústaðir sem eru lengst frá uppsprettunni hafi fyrstir orðið varir við að heita vatnið hætti að renna. Um leið og vatnsborðið í gömlu gufunni hafi verið hækkað aftur hafi hitaveitan komist aftur í samt lag. Truflunin hafi ekki varað lengi. „Menn fóru smá fram úr sér á tímabili þarna og svo bara leystum við það,“ segir veitustjórinn. Frá sundlauginni á Laugarvatni. Í baksýn er Héraðsskólinn.Bláskógabyggð Sundlaugin á Laugarvatni var lokuð áður en truflunin átti sér stað vegna ótengdra framkvæmda innanhúss. „Það bara vildi svo heppilega til að það var verið í framkvæmdum þar hvort sem er og hún var lokuð þannig að við gátum minnkað á henni á meðan það var verið að græja hitt,“ segir Benedikt. Sveiflur í hverum ekki varanlegar Ásta Stefánsdóttir, bæjarstjóri Bláskógabyggðar, segir sundlaugina hafa verið lokaða vegna endurnýjunar á hurðum og gluggum. Tækifærið hafi verið nýtt til þess að minnka rennsli á heitu vatni í hana vegna álags á hitaveituna í kuldanum. Ásta Stefánsdóttir, sveitarstjóri Bláskógabyggðar.Aðsend Fotana eigi samráð við sveitarfélagið um framkvæmdirnar á heilsulindinni. Tímabundnar sveiflur kunni að vera í hverasvæðinu við Laugarvatn en þær séu ekki varanlegar. Heitavatnsskortur og framkvæmdir eru ástæða lokunar sundlaugarinnar á Laugarvatni, að sögn Kristbjargar Guðundsdóttur, forstöðumanns Íþróttamiðstöðvarinnar á Laugarvatni. Hún sagðist ekki þekkja til hvað hefði gengið á við framkvæmdir við Fontana, aðeins að það hafi þurft að taka vatn af sundlauginni þar sem byrjað hafi að frjósa í lögnum til bæja utan við Laugarvatn. Sundlaugum á Suðurlandi hefur víða verið lokað vegna kuldans. Báðum sundlaugunum í Árborg var lokað fram yfir síðustu helgi vegna skorts á heitu vatni í síðustu viku. Hveraböðin í Fontana verða lokuð fram í júní vegna framkvæmdanna að því er segir á vefsíðu fyrirtækisins.
Bláskógabyggð Bláa lónið Sundlaugar og baðlón Sveitarstjórnarmál Ferðaþjónusta Mest lesið Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Erlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Ein matskeið og þá er dauðinn vís Innlent Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Erlent Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Innlent Fleiri fréttir Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Marco Rubio á leið til Íslands „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Engin aðstoð við próftöku og litaðar númeraplötur Uppsagnir hjá Klettabæ Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Kristrún tilbúin í aðgerðir Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Væntingar um útspil tengt gjaldahækkunum Neituðu sök við þingfestingu Straumsvíkurmálsins Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Sjá meira