Gestafjöldi verður ekki takmarkaður við fimm þúsund Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 18. febrúar 2026 21:27 Lögregla hafði hótað því að takmarka gestafjölda á vellinum við fimm þúsund manns. Vísir/Anton Brink Reykjavíkurborg hefur brugðist við athugasemdum lögreglunnar við skertar aðkomuleiðir að Laugardalsvelli og möguleg áhrif þeirra á útkallstíma á stórum viðburðum vegna skólaþorpsins sem á að rísa við Reykjaveg.
Fyrr í vetur hafði Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu vakið athygli á því að aðkoman að Laugardalsvelli væri erfið fyrir og að samkvæmt þágildandi deiliskipulagi yrði að takmarka fjölda gesta vallarins við fimm þúsund manns svo að hægt væri að tryggja öryggi þeirra. Samkvæmt svörum menningar- og íþróttaráðs Reykjavíkurborgar við fyrirspurn borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins um stöðu mála voru haldnir samráðsfundir með lögreglu og slökkviliði í nóvember og desember þar sem kröfum hinna síðarnefndu hafi verið gerð nánari skil. Sjá einnig: Fjöldi gesta á vellinum myndi takmarkast við 5000 Í kjölfarið var gerð breyting á deiliskipulaginu þar sem bætt var við nýrri aðkomuleið af Reykjavegi sem verður aðgangsstýrð og þannig ekki opin almenningi að jafnaði. Þetta er gert til að takmarka umferð bíla við skólaþorpið. Við þessa aðkomuleið verða niðurfellanlegir pollar sem lögregla og slökkvilið hafa aðgang að. Þetta var niðurstaðan eftir að akstursferlagreining var unnin með hliðsjón af stærstu viðbragðsbílum. Að skipulaginu breyttu gerði hvorki slökkviliðið né lögreglan athugasemdir við framkvæmdirnar. Breytt deiliskipulag var samþykkt í umhverfis- og skipulagsráði 21. janúar síðastliðinn og af borgarstjórn 3. febrúar.
Lögreglan Skipulag Reykjavík Skóla- og menntamál Deilur um skólahald í Laugardal Borgarstjórn Mest lesið Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Erlent Eldur í álverinu í Straumsvík Innlent Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Erlent „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Innlent Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Innlent Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Erlent Seldu óvart hjól viðskiptavinar Innlent Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Innlent Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar Innlent Fleiri fréttir Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Sjá meira