KR-konur frystar í Hveragerði í kvöld Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 18. febrúar 2026 21:06 Jadakiss Guinn var öflug í liði Hamars/Þórs í kvöld. Vísir/Anton Botnlið Hamars/Þórs vann óvæntan tólf stiga sigur á KR, 107-95, í Bónusdeild kvenna í körfubolta í Frystikistunni í Hveragerði í kvöld.
Þetta var aðeins þriðji deildasigur Hamars/Þórs á leiktíðinni en tveir þeirra hafa komið í síðustu þremur leikjum á móti liði í toppbaráttunni því Njarðvík fór líka stigalaust heim á dögunum. Hallgrímur Brynjólfsson tók við Hamars/Þórs-liðinu á dögunum og byrjar frábærlega. KR-konur byrjuðu ágætlega og voru fimm stigum yfir eftir fyrsta leikhluta, 24-19. Heimakonur tóku öll völd með því að vinna annan leikhlutann með tíu stigum (30-20) og þriðja leikhlutann með fimmtán stigum (29-14). Eftir það var á brattann að sækja hjá gestunum úr Vesturbænum. Heimakonur með Jadakiss Gunn og Mariönu Duran í fararbroddi lönduðu flottum sigri. Gunn var stórkostleg með 38 stig, 9 stoðsendingar og 6 fráköst en Duran bætti við 26 stigum, 9 fráköstum og 5 stoðsendingum. Ana Clara Paz skoraði síðan 24 stig. Jiselle Thomas skoraði 24 stig fyrir KR, Molly Kaiser var með 21 stig og Eve Braslis skoraði 16 stig. Hamar/Þór er í baráttu við Ármann um að forðast botnsætið, sem þýðir fall, en níunda sætið skilar sæti í umspil. Hamar/Þór er nú komið með tveggja stiga forskot á Laugardalsliðið. Þetta tap er aftur á móti áfall fyrir KR í baráttunni um deildarmeistaratitilinn en þær hefðu komist upp að hlið toppliðs Njarðvíkur með sigri.
Bónus-deild kvenna Hamar Þór Þorlákshöfn KR Mest lesið Gripinn í PSG-treyju í skrúðgöngu Arsenal Enski boltinn Blóðbað í Köben: „Þetta var helvítis bras“ Sport Missir af HM í fótbolta vegna samfélagsmiðlafærslu Fótbolti Draumurinn ekki dáinn hjá Bergrós Sport Dalglish greindi óvart frá baráttu sinni við krabbamein Enski boltinn Ver val á meintum kynferðisbrotamanni Fótbolti HM-minning: Óheiðarlegasta heimsmeistarakeppni allra tíma Fótbolti Fékk ekki að ferðast með landsliðinu til Bandaríkjanna Fótbolti Bodö/Glimt græddi yfir sex milljarða á Evrópuævintýrinu Fótbolti Einn sá besti færir sig um set Sport Fleiri fréttir Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Sjá meira