Ekki viss um að hægt sé að lappa upp á samband Evrópu og Bandaríkjanna Kjartan Kjartansson skrifar 18. febrúar 2026 10:31 Ólafur Ragnar Grímsson á Hrinborði norðurslóða í fyrra. Vísir/Anton Brink Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseti, segist ekki sjá hvernig hægt sé að lagfæra samband Evrópu og Bandaríkjanna nú þegar þau deila ekki lengur sömu heimssýninni. Hann telur öll kurl ekki enn komin til grafar í deilum Bandaríkjanna við Evrópumenn um Grænland.
Vaxandi spenna hefur einkennt samskipti Bandaríkjastjórnar og evrópskra leiðtoga frá því að Donald Trump tók aftur við völdum vestanhafs í fyrra. Fulltrúar Bandaríkjastjórnar hafa gagnrýnt Evrópu harðlega, meðal annars vegna innflytjendamála og reglugerða sem bandarísk fyrirtæki þurfa að hlýta í álfunni. Tónninn var sleginn snemma þegar J. D. Vance, varaforseti Bandaríkjanna, hélt reiðilestur yfir evrópskum ráðamönnum á öryggisráðstefnu í München í Þýskalandi fyrir ári. Ólafur Ragnar telur ræðu Vance ekki hafa markað sérstök vatnaskil þar sem umskiptin í afstöðu Bandaríkjanna hafi átt sér stað yfir fjölda ára skeið. „Þetta var frekar fyrsta skiptið sem leiðtogar Evrópu urðu harkalega varir við að Bandaríkin væru að breytast,“ sagði Ólafur Ragnar í viðtali á öryggisráðstefnunni sem fór fram í síðustu viku. Heimssýn sem er ekki á útleið Þetta væri í fyrsta skipti sem Bandaríkin og Evrópu hefðu ekki lengur sameiginlegan skilning á heiminum og hvernig ætti að haga alþjóðlegum samskiptum. Þó að heimurinn væri stærri en Bandaríkin og Evrópu væri gjáin á milli þeirra það sem stæði eftir í hugum fólks um þessar mundir. „Ég sé hreinlega ekki hvernig er hægt að lagfæra hana,“ sagði forsetinn fyrrverandi. Að baki Trump væri heill her bráðsnjalls fólks sem hefði náð árangri á mörgum sviðum og útskrifast úr bestu háskólum Bandaríkjanna sem deildi heimssýninni sem kom fram í ræðu Vance í München sem sló Evrópumenn í fyrra. „Jafnvel þótt Trump hyrfi af sjónarsviðinu héldi þessi kreðsa áfram þessari heimssýn,“ sagði Ólafur Ragnar. Deilurnar um Grænland sagði Ólafur Ragnar annað dæmi um hvernig núverandi valdhafar í Bandaríkjunum litu á heiminn. Grænlandsmálinu væri langt því frá lokið. Viðræður ættu sér vissulega stað en enginn vissi hvort niðurstöður þeirra ættu eftir að hugnast Grænlendingum, Dönum eða Bandaríkjamönnum. „Óvissan er fyrst og fremst það sem situr eftir hjá mér, “ sagði fyrrverandi forsetinn.
Donald Trump Bandaríkin Utanríkismál Öryggis- og varnarmál Grænland Hótanir Bandaríkjanna vegna Grænlands Ólafur Ragnar Grímsson Mest lesið Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Katla skelfur Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Tveir látnir eftir skotárás í Noregi Erlent Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Veður Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Fleiri fréttir Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Sjá meira