Heiti potturinn, klaustrið og athvarfið Auður Önnu Magnúsdóttir skrifar 17. febrúar 2026 07:01 Eðlilega eru Epstein skjölin ofarlega í hugum margra þessa dagana og mörg okkar geta ómögulega skilið hvernig þetta fékk verða, viðgangast og haldast leynt. Eitt er þó ljóst að kvenfyrirlitning er þar lykilbreyta. Ein af stóru opinberunum Epstein skjalanna er dýpt kvenhaturs valdamikilla karla, hvort sem þeir eru fjárfestar, prinsar, vísindamenn, stjórnmálamenn eða forstjórar. Hér á eftir fylgja þrjár dæmisögur um kvenfyrirlitningu valdhafa í íslensku samfélagi. Tilgangur þessa pistils er ekki að bera saman þessi mál við Epsteinskjölin, heldur frekar undirstrika það sem liggur til grundvallar í öllum málunum; Kvenfyrirlitning. Heiti potturinn Þrír ríkir, hvítir og vel tengdir karlar sitja naktir í heitum potti upp í sveit með rúmlega tvítugri konu. Hún kærir þá síðar fyrir kynferðisbrot en þeir kæra hana og kærastann hennar fyrir fjárkúgun. Ari Edwald og félagar hans sem höfðu verið með honum í heitum potti í sumarbústað haustið 2020 kærðu unga konu fyrir fjárkúgun eftir að hún kærði þá fyrir kynferðisbrot. Fjárkúgunarkærunni var vísað frá vegna þess að Ari og félagar höfðu sjálfir átt frumkvæði að því að ræða greiðslu til konunnar fyrir þögn hennar. Kynferðisbrotakærunni var einnig vísað frá. Ari Edwald og félagar hans gátu ekki keypt þögn fyrir pening og kærðu því fyrir fjárkúgun. Miðflokkurinn teflir nú fram Ara sem borgarstjóraefni sínu sem er risayfirlýsing flokksins um að framkoma hans við konur skiptir engu máli. Klaustrið Þrír hvítir, nokkuð ríkir og vel tengdir karlar sitja fullklæddir á bar ásamt félögum sínum, klæmast um samstarfskonur sínar og bera kvenfyrirlitningu sína á torg. Bergþór Ólason, Karl Gauti Hjartarson og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson áttu að vera í vinnunni á Alþingi en sátu að sumbli á bar ásamt nokkrum vinnufélögum og sögðu um nafngreindar þingkonur: „Þarna kom loksins skrokkur sem typpið á mér dugði í“ og „húrrandi klikkuð kunta“ og fleira sem ekki er hægt að hafa eftir. Kona nokkur sem sat við næsta borð tók samtal þeirra upp og lét fjölmiðla hafa. Drykkjufélagarnir sem skrópuðu í vinnuna kærðu konuna fyrir brot á persónuverndarlögum (og unnu). Bergþór, Karl og Sigmundur sitja allir enn á þingi fyrir Miðflokkinn. Athvarfið Tveir hvítir, ekki ríkir og illa tengdir karlar stofna samtök sem miða að því að mála karla sem hóp upp sem þolendur ofbeldis kvenna en ekki öfugt. Einn þeirra var rekin úr vinnu fyrir kvenfyrirlitningu og kærði brottreksturinn (og tapaði). Annar þeirra kærði barnsmóður sína fyrir ásakanir um heimilisofbeldi(og tapaði) og aðrar konur fyrir að tjá sig um málið (og vann). Huginn Þór Grétarsson og Kristinn Sigurjónsson standa ásamt öðrum fyrir Samtökum um karlaathvarf og hlutu styrk frá Félagsmálaráðuneytinu í fyrra til að reka samtökin sín. Styrkveitingin gengur þvert á álit matsnefndar sem taldi þá félaga ekki réttu aðilana til að vinna gegn ofbeldi. Þó allt gott megi segja um að standa með þolendum ofbeldis af öllum kynjum virðist Samtökum um karlaathvarf mest umhugað um að afneita staðreyndum um ofbeldi karla gegn konum, frekar en að aðstoða þolendur og draga úr ofbeldi. Félagsmálaráðherra leggur blessun sína yfir þess háttar afvegaleiðingu sem er beinlínis skaðleg baráttunni gegn öllu ofbeldi. Ekki í Epstein skjölunum Í umfjöllun um Epstein málið er freistandi að afmarka það og skilgreina frá okkur og afgreiða það sem svo að það afhjúpi ýmislegt um bandaríska menningu og láta þar við sitja. En kvenfyrirlitningin sem liggur til grundvallar fyrirfinnst hérlendis sem erlendis. Hún er útbreidd og viðhaldið af þeim sem völdin hafa sem leggja blessun sína yfir kvenfyrirlitninguna annað hvort með beinum aðgerðum eða með því að sitja aðgerðalaus hjá. Höfundur er framkvæmdastýra Kvenréttindafélags Íslands. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Auður Önnu Magnúsdóttir Jafnréttismál Mest lesið Halldór 5.9.2026 Halldór Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson Skoðun Skoðun Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson skrifar Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? jóhann Rúnar Pálsson skrifar Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Milljón hugmyndir, hundrað tímamót Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Fjórða valdið? En það ert þú! Þorsteinn J. Vilhjálmsson skrifar Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson skrifar Skoðun Hvers eiga börnin að gjalda? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson skrifar Skoðun Þegar öll hafa svörin skiptir hugsunin mestu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason skrifar Skoðun Þýsklendingar á meðal vor Darri Eyþórsson skrifar Skoðun Þöllin á þorpinu Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Þjóðin sagði nei. En „látum eins og ekkert sé…” Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Málshraðasögur Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Búrkuball í inngildingarviku Þórarinn Hjartarson skrifar Skoðun Þjóðaratkvæðgreiðslan: Aðild að Evrópusambandinu hafnað Kristinn H. Gunnarsson skrifar Skoðun Blekking litla samfélagsins Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Farsælt samstarf sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í 50 ár Páll Björgvin Guðmundsson skrifar Skoðun Bókun 35: Munurinn á stjórnarskrá Noregs og Íslands Júlíus Valsson skrifar Sjá meira
Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar
Skoðun Farsælt samstarf sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í 50 ár Páll Björgvin Guðmundsson skrifar