Yfirvöld hafi útvegað tvö ný rými og óbreytt ástand Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifar 16. febrúar 2026 13:58 Samkvæmt upplýsingum frá Landspítalanum hafa heilbrigðisyfirvöld útvegað tvö ný hjúkrunarrými frá því starfsfólk sendi út ákall vegna álags í síðustu viku. Steinunn Þórðardóttir er formaður Læknafélagsins. Vísir/Vilhelm Ástandið á Landspítalanum er óbreytt að sögn stjórnenda þar þrátt fyrir ákall um að þörf sé á aðgerðum nú þegar. Aðeins sé búið að útvega tvö hjúkrunarrými annars staðar. Formaður Læknafélags Íslands fagnar því að stjórnvöld viðurkenni vanda spítalans og boði aðgerðir. Það þurfi að vinna hratt.
Starfsfólk bráðamóttöku Landspítalans lýsti hamfaraástandi þar í síðustu viku og krafðist inngrips stjórnvalda. Spítalinn hefur verið á rauðu viðbúnaðarstigi samfellt frá því í nóvember 2024. Það þýðir að 30 eða fleiri sjúklingar bíða á bráðamóttöku eftir innlögn. Heilbrigðisráðherra sagði við þetta tækifæri að til stæði að opna um sautján hjúkrunarrými á næstu dögum og boðaði líka miklar breytingar næstu mánuði. Þá sagði Alma Möller á föstudag að aldrei hefði verið brugðist jafn hratt við stöðunni. Misvísandi upplýsingar um fjölda nýrra hjúkrunarrýma Samkvæmt upplýsingum frá Landspítala í morgun hafa tveir sjúklingar verið fluttir frá Landspítalanum í ný hjúkrunarrými á vegum yfirvalda frá því ákall starfsfólks barst í síðustu viku. Heilbrigðisráðuneytið svaraði hins vegar fyrirspurn fréttastofu um sama efni á þessa leið. „Alls fóru 14 einstaklingar með færni- og heilsumat frá Landspítala í liðinni viku í önnur úrræði í kjölfar ákalls um leiðir til að létta álagi af LSH og bráðamóttökunni. Í þessari viku eru staðfestir flutningar 11 einstaklinga í sömu stöðu af LSH. Ráðuneytið og Sjúkratryggingar Íslands í þéttu samstarfi við Landspítala eru að vinna að lausnum sem líklegar eru til að fjölga hjúkrunarrýmum, a.m.k. tímabundið í kerfinu. Nánar verður greint frá þessu eftir því sem mál skýrast og unnið er hratt að þessum verkefnum.“ Klíníkin og Hlévangur til umræðu Meðal þeirra sem nú er rætt við varðandi ný rými er Klíníkin í Ármúla. Þá hafði bæjarstjóri Reykjanesbæjar samband við heilbrigðisráðuneytið um helgina samkvæmt upplýsingum fréttastofu og bauð húsnæði í Hlévangi sem var notað sem hjúkrunarheimili þangað til fyrir tveimur mánuðum þegar starfsemin færðist í nýtt húsnæði. Þar sé rými fyrir allt að þrjátíu manns. Steinunn Þórðardóttir formaður Læknafélags ÍslandsVísir Fagnar snöggum viðbrögðum Steinunn Þórðardóttir, formaður Læknafélags Íslands, fagnar viðbrögðum yfirvalda í málinu um að verið sé að bregðast hratt við. „Heilt yfir verð ég að vera mjög jákvæð gagnvart viðbrögðunum eins og þetta horfir við okkur í dag. Okkur fannst þetta fara fullseint af stað. Auðvitað hefði okkur fundist að það hefði ekki átt að þurfa þennan fund til. En við erum voðalega fegin að hann virðist hafa hrundið af atburðarás sem er greinilega komin í fluggír. Ég ætla að gefa stjórnvöldum þessa daga til að bregðast við. Mér heyrist að hjólin séu farin að snúast,“ segir Steinunn. Aðspurð hvort henni finnist nóg að yfirvöld hafi útvegað tvö ný rými eftir ákallið eins og Landspítalinn heldur fram svarar Steinunn: „Nei svo sannarlega ekki. Maður heyrir í máli heilbrigðisráðherra að það er talsvert meira í farvatninu en tvö ný rými enda næstum 120 manns fastir inni á spítalanum sem bíða eftir nýjum rýmum,“ segir Steinunn.
Ástand á bráðamóttöku Landspítalans Landspítalinn Heilbrigðismál Mest lesið Jón Gnarr segir sig úr þingflokki Viðreisnar Innlent Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Innlent „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Erlent Ögurstund fyrir framtíð Eflingar innan ASÍ Innlent Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Innlent Lentu í öldugangi við Reynisfjöru Innlent Krefjast milljarða vegna Barnaskóla Kársness Innlent Anna Valdimarsdóttir er látin Innlent Lést í stormi í Færeyjum Erlent Niðurstaðan hafi áhrif á framtíð Eflingar innan ASÍ Innlent Fleiri fréttir „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Tillaga um að fækka varaforsetum naumlega felld Ögurstund fyrir framtíð Eflingar innan ASÍ Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Krefjast milljarða vegna Barnaskóla Kársness Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Hafa sett upp keðjur og bönd við Reynisfjöru Jón Gnarr segir sig úr þingflokki Viðreisnar „Þetta situr náttúrulega í manni“ Nauðsynlegt að ríkið fjármagni fleiri stöðugildi Niðurstaðan hafi áhrif á framtíð Eflingar innan ASÍ Siglfirðingar standa saman eftir áfall gærdagsins og spenna á ASÍ þingi Íslenskir kælar teknir af netinu eftir árás í Frakklandi Mótmælir harðlega vítissódatilraunum í Hvalfirði Biðlar til fólks að fara varlega í vetrarfærðinni Auglýsa eftir forstjóra Miðstöðvar um öryggisráðstafanir Anna Valdimarsdóttir er látin Vilja nýjan vindmæli: „Þökin fara á loft, falla niður og splundrast“ Borkjarnar vegna Eyjaganga gefa tilefni til bjartsýni Sköpuðust aðstæður fyrir „snælduvitlaust veður“ á Siglufirði Viðvaranir enn í gildi og vegir víða á óvissustigi Óvissustig vegna snjóflóðahættu í Súðavíkurhlíð Verðkröfur stjórnvalda hafi fælt lyfjaframleiðendur frá Valhöll skrefi nær því að verða níutíu herbergja hótel Lentu í öldugangi við Reynisfjöru Skildu þýfið eftir á vettvangi í stolnum bíl Vandinn heimatilbúinn og vill sleppistæði Með gaddakúlu og sprautunálakylfu „Það væri mjög miður“ Litli spítalinn án samnings og ráðherra sér ekkert svigrúm Sjá meira