Eldjárn kaupir Tölvutek ásamt lykilstarfsmönnum Árni Sæberg skrifar 16. febrúar 2026 09:23 Fulltrúar Topteks ásamt Ara Daníelssyni, forstjóra Skyggnis, við afhendingu Tölvuteks. Samið hefur verið um sölu á 100 prósentum hlutafjár í Tölvutek ehf. Kaupandi er Toptek ehf., sem er leitt af Eldjárn Capital auk lykilstarfsmanna Tölvuteks. Seljandi Tölvutek ehf. er Skyggnir Eignarhaldsfélag hf.
Í fréttatilkynningu þess efnis segir að Tölvutek hafi veirð stofnað 2006 af Hafþóri Helgasyni og lykilstarfsmönnum, árið 2019 hafi Skyggnir, sem þá hét Origo, við félaginu og félagið hafi átt farsæl ár undir eignarhaldi Skyggnis með árlegum vexti og sókn. Tölvutek, sem fagni 20 ára afmæli sínu á árinu, sé með starfsstöðvar í Mörkinni í Reykjavík og í Undirhlíð á Akureyri. Félagið hafi frá stofnun lagt áherslu á að gera tæknina aðgengilegri, einfaldari og öruggari fyrir einstaklinga og fyrirtæki á Íslandi með snjöllum og hagkvæmum lausnum og framúrskarandi þekkingu og þjónustu við sína viðskiptavini. Markmið Tölvuteks sé að tryggja viðskiptavinum sínum aðgang að vönduðum búnaði á samkeppnishæfu verði, með faglegri ráðgjöf og áreiðanlegri þjónustu. „Það er mikil tilhlökkun hjá okkur að hefja samstarf við það frábæra starfsfólk sem starfar hjá Tölvuteki. Við byggjum á þeirri sterku vegferð sem félagið hefur verið á og markmið okkar er að styrkja reksturinn enn frekar og styðja við áframhaldandi vöxt og þróun,“ er haft eftir Bjarnólfi Lárussyni og Ásmundi Gíslasyni, eigendum Eldjárn Capital. Nýr eigendahópur Tölvuteks sameini víðtæka reynslu af rekstri, fjárfestingum og fjármögnun fyrirtækja ásamt því að hafa mikla og verðmæta þekkingu á starfsemi félagsins. Með fjárfestingunni sé markmiðið að skapa traustan grunn fyrir næsta vaxtarskeið félagsins og styðja við áframhaldandi uppbyggingu á íslenskum tölvu-,tækni- og heimilistækja markaði. „Ég vil þakka Skyggni fyrir samstarfið undanfarin ár og hlakka til framtíðarinnar og áframhaldandi sóknar Tölvutek með nýjum eigendum,“ er haft eftir Hafþóri Helgasyni, en hann muni áfram leiða rekstur félagsins. KPMG hafi verið ráðgjafi seljanda og Logos ráðgjafi Toptek við kaupin.
Kaup og sala fyrirtækja Mest lesið „Ég stend hins vegar föst á mínu, enda sofna ég alltaf á mig“ Atvinnulíf Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Svipmyndir úr Hörpu: Framúrskarandi fyrirtækjum fagnað Framúrskarandi fyrirtæki Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Viðskipti innlent Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Viðskipti innlent Náðu að halda kaupunum leyndum Viðskipti innlent Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Viðskipti innlent Live verður Lifa Viðskipti innlent Fleiri fréttir Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Sjá meira