Obama gefur út yfirlýsingu um mögulega tilvist geimvera Hólmfríður Gísladóttir skrifar 16. febrúar 2026 06:20 Nei, hann veit ekki til þess að við höfum verið heimsótt af gestum úr geimnum... Getty/Win McNamee Barack Obama, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, hefur neyðst til að gefa frá sér yfirlýsingu eftir að hann sagði í samtali við hlaðvarpsstjórnandann Brian Tyler Cohen að geimverur væru til.
Obama var að svara hraðaspurningum í þættinum þegar hann var spurður að því hvort geimverur væru til. „Þær eru til en ég hef ekki séð þær,“ svaraði forsetinn fyrrverandi. „Þær eru ekki á Svæði 51. Það er ekkert neðanjarðarbyrgi þar nema þetta sé risastórt samsæri og falið fyrir forseta Bandaríkjanna,“ bætti Obama við á léttum nótum. Fjöldi miðla út um allan heim greindi frá svörum Obama og sagði hann hafa staðfest að geimverur væru sannarlega til. Fjaðrafokið virðist hafa orðið til þess að hann sá sig neyddan til að gefa út yfirlýsingu á Instagram í gær. View this post on Instagram A post shared by Barack Obama (@barackobama) „Ég var að reyna að svara í anda hraðaspurninganna en fyrst þetta hefur fengið athygli, leyfið mér þá að útskýra. Tölfræðilega er alheimurinn svo stór að það eru góðar líkur á því að það sé líf þarna einhvers staðar. En vegalengdin milli sólkerfa er svo mikil að líkurnar á því að við höfum verið heimsótt af geimverum eru litlar og á forsetatíð minni sá ég engin sönnunargögn sem benda til þess að geimverur hafi sett sig í samband. Í alvöru!“ Fjölmargar samsæriskenningar hafa verið uppi í gegnum tíðina um að yfirvöld, ekki síst í Bandaríkjunum, séu að hylma yfir heimsóknir utan úr geimnum. Þar hefur Svæði 51, „Area 51“, nokkra sérstöðu en margir trúa því að þar séu geymdar líkamsleifar geimvera.
Bandaríkin Barack Obama Geimurinn Mest lesið Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Innlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Innlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Fleiri fréttir Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Sjá meira