Skoða að leigja hótel til að létta undir með bráðamóttökunni Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar 12. febrúar 2026 17:57 Runólfur Pálsson, forstjóri Landspítalans, segir ástandið á Bráðamóttökunni hafa versnað til muna síðustu vikur. Vísir/Einar Forstjóri Landspítalans segir til skoðunar að leigja hótelrými tímabundið til að létta undir með starfsemi bráðamóttökunnar. Rýmunum yrði ráðstafað til inniliggjandi sjúklinga á bráðamóttökunni sem bíða þess að fá pláss í öðrum úrræðum Landspítalans.
Starfsfólk bráðamóttökunnar kom saman á Grand Hotel í gær og fundaði um starfsaðstæður á móttökunni. Það gagnrýndi stjórnvöld fyrir að hafa ekki brugðist við ástandinu sem upp er komið á deildinni en í ályktun sem starfsfólkið sendi frá sér að fundi loknum segir að hundrað sjúklingar séu að jafnaði vistaðir á bráðamóttökunni sem sé hönnuð fyrir þrjátíu og sex. Í kvöldfréttum í gær sagði Alma Möller heilbrigðisráðherra aðgerðir til að sporna við vandanum í farvatninu. Hún benti meðal annars á að sautján ný hjúkrunarrými yrðu opnuð á næstu dögum. Félag bráðalækna hefur síðan lýst yfir vonbrigðum með viðbrögð Ölmu. Runólfur Pálsson forstjóri Landspítalans segir stöðuna á Bráðamóttökunni hafa verið slæma síðastliðið ár en síðustu vikur hafi staðan verið orðin afleit. Hann var til tals í Reykjavík síðdegis. „Það er stöðugt verið að þrauka. Það er verið að boða ný rými, til dæmis síðast í Urðarhvarfi, og við höfum vitað af því um tíma. Þá er verið að þrauka þangað til þau raungerast, svo dragast hlutirnir,“ segir Runólfur. Einungis tímabundið Hann segir að bregðast verði við ástandinu með tímabundinni lausn þar til varanlegu úrræði verður komið á. „Hótelrými eru sannarlega uppi á borðum í því.“ Hvar þá? „Það er verið að skoða hótelrými einhvers staðar en það er bara útfærsla sem verið er að leita eftir. Þetta mál er á ábyrgð ráðuneytisins og við erum í samstarfi við ráðuneytið um það. Þetta er lausn sem er til umræðu.“ Rýmin væru því ætluð þeim sjúklingum sem liggja á bráðamóttöku og bíða eftir að komast inn í annað úrræði á spítalanum. Örtröð veldur bágum sýkingavörnum Þá kæmi slíkt úrræði til með að bæta sýkingavarnir á bráðamóttökunni, en þeim hefur undanfarið verið ábótavant sökum anna. „Það er ekki hægt að skipuleggja þjónustuna og einangra einstaklinga sem eru grunaðir um að hafa smitnæman eða smitandi sjúkdóm. Þetta er bara örtröð sem skapast inni í þessu litla rými,“ segir Runólfur um bráðamóttökuna. Hvaða skilyrði þarf slíkt húsnæði að uppfylla? „Almennt uppfylla hótelrými ekki þau skilyrði sem þarf fyrir heilbrigðisþjónustu, en við svona neyðaraðstæður er hægt að finna einhvers konar lausnir, held ég, varðandi einhverja einstaklinga. Við erum þá að tala um þá sem eru að bíða eftir öðru úrræði og eru ekki að njóta umfangsmikillar heilbrigðisþjónustu.“ Viðtalið í heild sinni má nálgast hér að neðan.
Ástand á bráðamóttöku Landspítalans Landspítalinn Heilbrigðismál Reykjavík síðdegis Tengdar fréttir Lýsa ófremdarástandi við Suðurlandsbraut Enn einn föstudaginn er runninn upp mikill álagstími í sýnatöku nú þegar faraldurinn virðist í uppsveiflu og fólk flykkist á hina ýmsu jólaviðburði. 17. desember 2021 13:40 Vinna að því að fækka sjúklingum og flytja annað Alma Möller heilbrigðisráðherra segir mikilvægast að fækka sjúklingum á spítalanum og flytja þau annað sem hafa lokið meðferð og geta farið annað. Á næstu dögum bætist við hjúkrunar- og dagdvalarrými til að taka við sjúklingum. Hún segir að sér líði ekki vel með stöðu spítalans og vanlíðan starfsfólks. 11. febrúar 2026 20:24 Viðbrögð Ölmu mikil vonbrigði Formaður Félags bráðalækna lýsir miklum vonbrigðum með viðbrögð heilbrigðisráðherra við neyðarópi starfsmanna bráðamóttökunnar. Hamfaraástand ríki þar á degi hverjum og bregðast þurfi tafarlaust við. 12. febrúar 2026 12:00 Mest lesið Sömdu um reglulegar samfarir í ár eftir sambúðarslit Innlent Viðbrögð Ölmu mikil vonbrigði Innlent Segir Jóhann Pál genginn í Epstein-björg Innlent Vegkaflinn þar sem banaslysið varð ekki talinn mjög illa farinn Innlent Átta ára dómur Sigurðar Ragnars staðfestur Innlent Bjórinn nú leyfður á vellinum Innlent Gallup hættir að mæla ánægju með Bandaríkjaforseta eftir níutíu ára samfellda sögu Erlent Skoða að leigja hótel til að létta undir með bráðamóttökunni Innlent Fékk „hjálp“ frá heilbrigðiseftirlitinu til að velja sig sjálfa Innlent Blikkuðu í klukkustundir vegna skaddaðs jarðstrengs Innlent Fleiri fréttir Vinnur fallega muni úr íslenskum trjám ASÍ og SA telja stjórnvöld á villigötum Jákvæð skref hafi verið tekin í vinnuhópi um málefni Grænlands Forstjóri í beinni, herþotur og bjór á vellinum Stúlkan er fundin Skoða að leigja hótel til að létta undir með bráðamóttökunni Ingibjörg fljót að rífa upp boxhanskana Hækkuðu gjaldið í skugga stúdentamótmæla Bjórinn nú leyfður á vellinum Íhugar að bjóða fram til varaformanns Sömdu um reglulegar samfarir í ár eftir sambúðarslit Lýsa eftir bíl sem var stolið fyrir utan Landspítalann Rafmagnslaust á Siglufirði Ríkisfjármálaleg tímasprengja, mistök eða tímabært réttlætismál? Átta ára dómur Sigurðar Ragnars staðfestur Vísbendingar um gerviverktöku í geiranum Hálf-íslenskur hermaður hluti af sænsku herflugsveitinni Mikið svifryk þrátt fyrir rykbindingu Blikkuðu í klukkustundir vegna skaddaðs jarðstrengs Samtök atvinnulífsins höfðu betur í Félagsdómi Fékk „hjálp“ frá heilbrigðiseftirlitinu til að velja sig sjálfa Baráttan um formannsembætti Framsóknar Viðbrögð Ölmu mikil vonbrigði Lýsa miklum vonbrigðum með viðbrögð Ölmu Vilja ráðast í breytingar á gamla bandaríska sendiráðinu Segir Jóhann Pál genginn í Epstein-björg Ómar og Þórólfur segja frá flugferðinni með Flosa Vísa í nafnið á fyrsta golfvelli Reykvíkinga við val á nýju götunafni Hart var barist um kjörbréf en línur á milli fylkinga ekki eins ljósar og áður Vegkaflinn þar sem banaslysið varð ekki talinn mjög illa farinn Sjá meira
Lýsa ófremdarástandi við Suðurlandsbraut Enn einn föstudaginn er runninn upp mikill álagstími í sýnatöku nú þegar faraldurinn virðist í uppsveiflu og fólk flykkist á hina ýmsu jólaviðburði. 17. desember 2021 13:40
Vinna að því að fækka sjúklingum og flytja annað Alma Möller heilbrigðisráðherra segir mikilvægast að fækka sjúklingum á spítalanum og flytja þau annað sem hafa lokið meðferð og geta farið annað. Á næstu dögum bætist við hjúkrunar- og dagdvalarrými til að taka við sjúklingum. Hún segir að sér líði ekki vel með stöðu spítalans og vanlíðan starfsfólks. 11. febrúar 2026 20:24
Viðbrögð Ölmu mikil vonbrigði Formaður Félags bráðalækna lýsir miklum vonbrigðum með viðbrögð heilbrigðisráðherra við neyðarópi starfsmanna bráðamóttökunnar. Hamfaraástand ríki þar á degi hverjum og bregðast þurfi tafarlaust við. 12. febrúar 2026 12:00