Ekki ég! Vilborg Gunnarsdóttir skrifar 12. febrúar 2026 16:01 Það er hrollvekjandi að hugsa til þess að á að minnsta kosti 45 árum hafi lítið sem ekkert breyst þegar kemur að umönnun aldraða og hinum svokallaða „fráflæðisvanda“ sem annars er skelfilegt orð. Við fáum enn reglulega fréttir af því að allt sé yfirfullt á Bráðamóttöku Landsspítalans, þar liggi fólk á göngum og í bílskýlum. Fréttirnar eru svo tíðar að þær eru jafnvel hættar að snerta jafn djúpt og áður því þetta er bara „venjulegt“ ástand. Nýlega skrifaði bróðir minn greinarkorn á þessum vettvangi um ömmu okkar og nöfnu mína. Hann rifjaði þar upp þegar hann heimsótti hana á spítalann þegar hún lá þar undir það síðasta á hennar lífsskeiði. Þá þótti honum þetta undarlegt; hann var lengi að finna hana þar sem hún lá ekki á neinni sérstakri „deild“ en þegar hún fannst, hafði henni verið troðið í rúm meðfram vegg á gangi. Þetta fannst honum hún ekki hafa átt skilið eftir langa vinnuævi þar sem hún lagði til þjóðfélagsins sína skatta og gjöld. Ég man þetta ekki eins og hann; hef kannski ekki heimsótt hana einmitt þarna en ég man hins vegar eftir henni á hjúkrunarheimilinu sem hún „bjó“ á síðustu mánuðina, á herbergi með fjórum öðrum konum. Eitt skipti þegar ég kom var hún niðurdregin því konan í næsta rúmi var í peysu sem hún sjálf hafði fengið í jólagjöf. Ég reyndi að benda á þetta en fékk þau svör að ómögulegt væri að fylgjast með hvað hver ætti. Þessu gleymi ég aldrei. Það hefur tekið blóð, svita og tár undanfarna áratugi að berjast fyrir því að enginn þurfi að búa í tvíbýli á hjúkrunarheimilum. Ég held að það heyri nú til algjörar undantekningar ef svo er í dag en nú hafa vaknað hugmyndir hjá háttvirtum heilbrigðisráðherra að kannski mætti nú bara setja tvo saman í herbergi aftur – svona til að flýta fyrir „lausn“ fráflæðisvandans. Þetta er skelfileg hugmynd! Myndir þú lesandi góður vilja láta bjóða þér þetta? Ekki ég. Mín kynslóð nálgast reyndar hratt þetta lífsskeið og ef heilsan leyfir ekki sjálfstæða búsetu býður okkar „lausn“ yfirvalda enda tíðkast ekki lengur að „setjast“ upp á nána ættingja. Það sem vekur kannski hjá mér sérstaka hryggð er að enn í dag sé uppbygging hjúkrunarheimila talin besta lausnin til að leysa þennan vanda. Hún skiptir vissulega máli en heilsuhagfræðingar hafa margoft sýnt fram á að ef hægt er að seinka þörf fyrir hjúkrunarheimili spari það ekki bara fjármagn heldur auki lífsgæði. Þarna er ég að benda á markvissar forvarnir og svo væri hægt að nýta betur dagdvalarpláss til markvissari þjálfunar huga, líkama og handa. Höfundur er fyrrverandi framkvæmdastjóri Alzheimersamtakana og áhugamaður um almenna velferð. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Ástand á bráðamóttöku Landspítalans Landspítalinn Mest lesið Halldór 5.9.2026 Halldór Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson Skoðun Skoðun Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? jóhann Rúnar Pálsson skrifar Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Milljón hugmyndir, hundrað tímamót Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Fjórða valdið? En það ert þú! Þorsteinn J. Vilhjálmsson skrifar Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson skrifar Skoðun Hvers eiga börnin að gjalda? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson skrifar Skoðun Þegar öll hafa svörin skiptir hugsunin mestu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason skrifar Skoðun Þýsklendingar á meðal vor Darri Eyþórsson skrifar Skoðun Þöllin á þorpinu Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Þjóðin sagði nei. En „látum eins og ekkert sé…” Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Málshraðasögur Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Búrkuball í inngildingarviku Þórarinn Hjartarson skrifar Skoðun Þjóðaratkvæðgreiðslan: Aðild að Evrópusambandinu hafnað Kristinn H. Gunnarsson skrifar Skoðun Blekking litla samfélagsins Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Farsælt samstarf sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í 50 ár Páll Björgvin Guðmundsson skrifar Skoðun Bókun 35: Munurinn á stjórnarskrá Noregs og Íslands Júlíus Valsson skrifar Skoðun Kærleikur er pönk Guðný Þorsteinsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar
Skoðun Farsælt samstarf sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í 50 ár Páll Björgvin Guðmundsson skrifar