Mega ekki kenna haframjólk við mjólk Kjartan Kjartansson skrifar 12. febrúar 2026 13:41 Verksmiðja Oatly í Landskrónu í Svíþjóð. Vísir/EPA Hæstiréttur Bretlands hefur komist að þeirri niðurstöðu að ekki megi nota orðið „mjólk“ til þess að auglýsa jurtavörur. Aðeins megi nota orðið yfir dýraafurðir.
Hagsmunasamtök mjólkurframleiðenda stefndu sænska drykkjarframleiðandanum Oatly vegna þess að það hefur notað orðið „mjólk“ um hafradrykk sinn sem alla jafna er kallaður haframjólk á íslensku. Dómur féll mjólkuframleiðendum í vil í gær. Hann þýðir að Oatly má ekki lengur nota orðið mjólk í vörumerkjum sínum eða í slagorðinu „síðmjólkurkynslóðinni“ (e. post milk generation), að því er segir í frétt breska blaðsins The Guardian. Málið hefur velkst um fyrir breskum dómstólum undanfarin ár. Hugverkastofa Bretlands hafnaði í fyrstu slagorði Oatly þar sem það væri villandi. Dómstóll ógilti þá ákvörðun síðar sem leiddi til þess að málið fór á endanum alla leið fyrir æðsta dómstól landsins. Judith Bryans, forstjóri Mjólkurvara Bretlands (Dairy UK), segir niðurstöðuna mikilvæga fyrir geirann og að hún eyði óvissu. Hún tryggi að merking orðsins mjólkur verði áfram skýr í hugum neytenda. Talsmenn Oatly sögðu dóminn aftur á móti stríða gegn samkeppnissjónarmiðum og að hann kæmi breskum neytendum illa. Sá eini sem hagnaðist á niðurstöðunni væri mjólkuriðnaðurinn.
Bretland Matvælaframleiðsla Vegan Auglýsinga- og markaðsmál Samkeppnismál Landbúnaður Svíþjóð Tengdar fréttir Telja auglýsinguna löglega en breyttu henni þó Slagorðið „It’s like milk but made for humans“ hefur fylgt vörumerki Oatly frá upphafi og um allan heim. Páll Hilmarsson, framkvæmdastjóri markaðssviðs Innes, segir forsvarsmenn vörumerkisins telja að slagorðið og auglýsingar með því séu löglegar hér á landi. 25. ágúst 2022 17:54 Íslensk útgáfa af umdeildri auglýsingu farin í loftið „It's like milk but made for humans“. Þessa áletrun mátti sjá á strætóskýlum bæjarins framan af viku en um er að ræða auglýsingu fyrir haframjólk Oatly. Það sætti harðri gagnrýni að auglýsingin væri á ensku en nú er íslensk útgáfa komin í dreifingu. 25. ágúst 2022 12:20 Mest lesið Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Viðskipti innlent Gapti þegar hún sá heimilisbókhaldið hjá Röggu nagla Neytendur „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Viðskipti innlent Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Viðskipti innlent Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Viðskipti innlent Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Viðskipti innlent Man varla fundinn í gær: Starfsfólk heldur jafnvel að það sé að fá Alzheimer Atvinnulíf Stjórnendur þurfa líka stuðning og FOBO á vinnustöðum eykst Atvinnulíf Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Viðskipti innlent Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Viðskipti innlent Fleiri fréttir Olíuflæðið nálgast fyrra horf en verð lækkar ekki OpenAI hættir við að gefa út nýtt „svikult“ líkan Japanskir stýrivextir ekki eins háir í þrjátíu ár Hækkuðu stýrivexti í Bandaríkjunum í fyrsta skipti í þrjú ár Olíubirgðir að klárast og krísa líkleg Ákall gervigreindarrisa: Eina sem gervigreindin þurfi sé „sterkur og snjall forseti“ Novo hættir að vera Nordisk Opinbera sinn fyrsta langloku-iPhone og boða verðhækkanir Útlit fyrir lökustu vínframleiðslu í tæp sjötíu ár Greiða 4,3 milljarða vegna sölu persónuupplýsinga ChatGPT virkar á ný Flytja gull frá Bandaríkjunum og Kanada af öryggisástæðum Setja gjald á hraðtískuvörur Apple fær nýjan forstjóra Vilja skapa hvata til að beina sparnaði Evrópubúa í fjárfestingar Sjá meira
Telja auglýsinguna löglega en breyttu henni þó Slagorðið „It’s like milk but made for humans“ hefur fylgt vörumerki Oatly frá upphafi og um allan heim. Páll Hilmarsson, framkvæmdastjóri markaðssviðs Innes, segir forsvarsmenn vörumerkisins telja að slagorðið og auglýsingar með því séu löglegar hér á landi. 25. ágúst 2022 17:54
Íslensk útgáfa af umdeildri auglýsingu farin í loftið „It's like milk but made for humans“. Þessa áletrun mátti sjá á strætóskýlum bæjarins framan af viku en um er að ræða auglýsingu fyrir haframjólk Oatly. Það sætti harðri gagnrýni að auglýsingin væri á ensku en nú er íslensk útgáfa komin í dreifingu. 25. ágúst 2022 12:20