Opna aftur á flugumferð í El Paso en útskýra enn ekkert Samúel Karl Ólason skrifar 11. febrúar 2026 14:08 Engin svör hafa fengist frá Flugumferðarstjórn Bandaríkjanna um lokunina í El Paso. AP/Seth Wenig Flugumferðarstjórn Bandaríkjanna (FAA) hefur tilkynnt að aftur sé búið að opna fyrir flugumferð til og frá alþjóðaflugvellinum í El Paso í Texas. Lokað var fyrir flugumferð um svæðið í nótt og það án útskýringa og átti lokunin að standa yfir í tíu daga. Enn hefur ekkert verið sagt um af hverju gripið var til þessa ráðs eða af hverju lokunin varði svo stutt.
Í tilkynningu frá FAA segir að flugumferð um svæðið standi ekki frammi fyrir neinni ógn en að öðru leyti hafa engar upplýsingar verið gefnar, aðrar en þær sem gefnar voru um lokunina í nótt. Þá var sagt að flugumferð um svæðið hefði verið bönnuð vegna „sérstakra öryggisástæðna“. The temporary closure of airspace over El Paso has been lifted. There is no threat to commercial aviation. All flights will resume as normal.— The FAA ✈️ (@FAANews) February 11, 2026 Lokunin í nótt kom mörgum á óvart og þá sérstaklega heimamönnum. Forsvarsmenn flugvallarins sögðust ekkert vita um lokunina og það sama mátti segja um ráðamenn í El Paso og þingmenn Texas. Þá fengu fjölmiðlar vestanhafs engin svör heldur. Sjá einnig: Loka flugvelli El Paso skyndilega og án útskýringa Í skipun FAA í nótt sagði að flugmenn sem fylgdu ekki lokuninni og skipunum flugumferðarstjóra gætu verið handteknir eða jafnvel skotnir niður. Veronica Escobar, þingkona frá Texas, sagði í morgun að lokunin væri fordæmalaus og kallaði eftir því að opnað yrði aftur fyrir flugumferð. Hún sagði, samkvæmt New York Times, að samkvæmt upplýsingum sem hún og starfsfólk hennar hefðu aflað hefðu íbúar El Paso og flugfarþegar ekki staðið frammi fyrir neinskonar ógn. El Paso er 23. stærsta borg Bandaríkjanna, samkvæmt manntali 2020, en í borginni og úthverfum búa um milljón manns. Flugvöllurinn þar þjónustar stórt svæði í suðurhluta Texas og í Nýju-Mexíkó. Talið var að lokunin myndi valda miklum truflunum á ferðalögum fjölmargra Bandaríkjamanna á næstu tíu dögum. Fréttin verður uppfærð.
Bandaríkin Fréttir af flugi Mest lesið Rúmlega helmingur starfsmanna Félagsbústaða hættur Innlent Ákærður fyrir líkamsárás en lýsir yfir sakleysi Innlent „Sátt og samlyndi“ um skyndileg starfslok varaslökkviliðsstjóra Innlent Hætta að skilgreina gróðurhúsalofttegundir sem skaðlegar Erlent Rifust um Trump áður en faðir skaut dóttur sína til bana Erlent „Myndi ekki koma mér á óvart ef það færi að gjósa þarna“ Innlent Einfalt að stýra glæpahring frá allt öðru landi Innlent Ólína fyllir í skarð Margrétar á Bifröst Innlent Nafngreindi sex mögulega samverkamenn Epstein á þinginu Erlent Smíða tengibyggingu sem verður hjarta Leifsstöðvar Innlent Fleiri fréttir Leitarheimild byggði á löngu afsönnuðum ásökunum um svindl Opna aftur á flugumferð í El Paso eftir drónaflug frá Mexíkó Opnar sig í nýrri bók: „Ég þekkti ekki þessa menn eða þessa konu“ Íri í haldi ICE óttast um líf sitt Rifust um Trump áður en faðir skaut dóttur sína til bana Loka flugvelli El Paso skyndilega og án útskýringa Jagland sviptur friðhelgi Furstadæmin þjálfa uppreisnarmenn í leynilegri herstöð Hætta að skilgreina gróðurhúsalofttegundir sem skaðlegar Einn í yfirheyrslu og ráðist í húsleit í tengslum við hvarf Nancy Guthrie Norðmenn geti ekki útilokað innrás Rússa Tíu látnir í skotárás á skóla í Kanada Nafngreindi sex mögulega samverkamenn Epstein á þinginu Trump hafi vitað meira en hann viðurkenndi: „Allir vita hvað hann hefur verið að gera“ FBI birtir myndir af grímuklæddum manni við heimili Guthrie Macron segir Evrópumönnum að hrista af sér slenið Undirbúa nýja innrás til að afvopna Hamas Nýtt samkomulag eða nýtt vopnakapphlaup? Sprengdu hurðina af brynvörðum bíl Fundu sex nöfn mögulegra samverkamanna Epstein á tveimur tímum Þrýsta á Ísraela varðandi Vesturbakkann Hótar að koma í veg fyrir opnun brúar milli Windsor og Detroit Neitaði að svara spurningum á grundvelli fimmta viðaukans Var með krabbamein og lést af völdum blóðtappa í lunga Hvetur Starmer til að segja af sér Bauluðu á Vance af „evrópsku stolti“ Áhrifamiklir norskir erindrekar rannsakaðir vegna Epsteins Vilja herða skilyrði fyrir sænskum ríkisborgararétti Vilhjálmur og Katrín hafi „djúpar áhyggjur“ vegna Epstein-afhjúpunar Christchurch-morðinginn vill draga játninguna til baka Sjá meira