Segja gögn um verktakagreiðslur tekin úr samhengi Lovísa Arnardóttir skrifar 10. febrúar 2026 18:25 Mikið hefur gengið á síðutu daga og vikur innan háskólans. Vísir/Vilhelm Samskiptastjóri Háskólans á Bifröst segir í yfirlýsingu frá skólanum að verktakagreiðslur til fastráðinna starfsmanna eigi sér ekki stað við háskólann. Skólinn harmar að einstaka starfsmenn séu nafngreindir í umfjöllun RÚV um verktakagreiðslur og segir gögn tekin úr samhengi.
Mikið hefur gengið á í Háskólanum á Bifröst undanfarnar vikur. Greint var frá því í janúar að Félag akademískra starfsmanna við Háskólann á Bifröst (FAB) hefði lýst yfir vantrausti á stjórnsýslu rektors skólans, Margrétar Jónsdóttur Njarðvík. Margrét auk deildarstjóra og rannsóknarstjóra við skólann höfðu notað gervigreindarmállíkanið Claude til að meta réttmæti höfundarstöðu á vísindagreinum hjá þremur akademískum starfsmönnum. Niðurstöður gervigreindarinnar voru síðan nýttar til að kæra þrjá starfsmenn til siðanefndar, sem komst svo að þeirri niðurstöðu að starfsmennirnir hefðu ekki brotið af sér. Fjallað er um málið í Þetta helst á RÚV í dag, bæði um þessar deilur um notkun gervigreindar, en einnig um verktakagreiðslur til kennara og ákvörðun skólans að taka fyrir þær í fyrra. Í frétt Þetta helst segir að hluti kennara hafi um árabil fengið verktakagreiðslur ofan á föst laun sín og að dæmi séu um að kennarar hafi drýgt tekjur sínar um tíu milljónir aukalega með þessum hætti. Verktakagreiðslurnar séu tilkomnar vegna auka- og stundakennslu. Margrét Jónsdóttir Njarðvík, rektor skólans, sagði í viðtali við RÚV í gær að yfirvinna hafi verið greidd með verktöku þegar skólinn hafi staðið illa fjárhagslega, en það sé ekki raunin í dag. Margrét greindi frá því í viðtali við RÚV í gær að hún ætlaði að víkja úr starfi. Í umfjöllun Þetta helst segir að tvö einkahlutafélög í eigu tveggja kennara, Ragnars Más Vilhjálmssonar og Haraldar Daða Ragnarssonar, hafi fengið greiddar tugi milljóna samanlagt í verktakagreiðslur árið 2023. Báðir voru þeir kærðir til Siðanefndar skólans en svo hreinsaðir af ásökunum. Í umfjöllun Þetta helst kemur einnig fram að framkvæmdastjórn skólans hafi svo ákveðið í fyrra að taka fyrir verktakagreiðslur og að umframkennsla yrði framvegis inni í greiddum launum. Skólinn hafi haft áhyggjur af slíkri „gerviverktöku“ og að Ríkisendurskoðun myndi mögulega gera athugasemdir við greiðslurnar vegna þess að skólinn fær um 1.200 milljónir frá íslenska ríkinu árlega. Umfjöllun gefi ekki rétta mynd af starfsemi Í yfirlýsingu frá skólanum vegna umfjöllunar um verktakagreiðslurnar segir að þau gögn sem vísað sé til í umfjöllun RÚV gefi ekki rétta mynd af starfseminni og að gögnin séu tekin úr samhengi. „Við hörmum að einstaka starfsmenn séu nafngreindir í fjölmiðlum og að umfjöllunin sé sett fram með þessum hætti,“ segir að lokum.
Deilur í Háskólanum á Bifröst Háskólar Skóla- og menntamál Fjölmiðlar Kjaramál Borgarbyggð Tengdar fréttir Málið mögulega fyrir dómstóla: „Ekkert eðlilegt við það að fá símtal frá stjórnendum“ Nemendur og akademískir starfsmenn Háskólans á Bifröst saka stjórnendur skólans um að hafa beitt nemendur þrýstingi í því skyni að tryggja rektor skólans stuðning. Það sé aðför gegn tjáningarfrelsi nemenda og fari gegn siðareglum. Stjórnarmaður í FAB segir rektor vera búinn að „missa klefann“. 9. febrúar 2026 12:18 Saka stjórnendur Bifrastar um að hafa beitt nemendur þrýstingi Í hádegisfréttum fjöllum við áfram um átökin á Bifröst þar sem stór hluti kennaraliðs skólans og nemendur hafa gagnrýnt stjórnendur skólans harðlega. 9. febrúar 2026 11:33 „Vísun máls til siðanefndar getur ekki talist aðför“ „Vísun máls til siðanefndar getur ekki talist aðför, enda eru slík mál ekki gerð opinber af hálfu háskóla. Háskólinn á Bifröst hefur enga heimild til að reka siðarnefndarmál opinberlega. Viðbrögð Háskólans á Bifröst við umfjöllun í fjölmiðlum síðustu vikna verða því að skoðast í því ljósi.“ 9. febrúar 2026 06:47 Mest lesið Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent „Noregur sökkar“ Erlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Innlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Innlent Fleiri fréttir Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Engin trygging fyrir því að peningarnir nýtist í innviði „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Skoðar að hækka framlag til Loftbrúarinnar Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins „Fylgir því mikil skömm að eiga foreldri í fangelsi“ Vonast eftir betri vetri en þeim síðasta: „Við eigum það bara skilið“ Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Umdeildur sýknudómur þegar haft alvarlegar afleiðingar Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Hörður Arnarsson og náttúru- og innviðagjald á Sprengisandi Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm Sjá meira
Málið mögulega fyrir dómstóla: „Ekkert eðlilegt við það að fá símtal frá stjórnendum“ Nemendur og akademískir starfsmenn Háskólans á Bifröst saka stjórnendur skólans um að hafa beitt nemendur þrýstingi í því skyni að tryggja rektor skólans stuðning. Það sé aðför gegn tjáningarfrelsi nemenda og fari gegn siðareglum. Stjórnarmaður í FAB segir rektor vera búinn að „missa klefann“. 9. febrúar 2026 12:18
Saka stjórnendur Bifrastar um að hafa beitt nemendur þrýstingi Í hádegisfréttum fjöllum við áfram um átökin á Bifröst þar sem stór hluti kennaraliðs skólans og nemendur hafa gagnrýnt stjórnendur skólans harðlega. 9. febrúar 2026 11:33
„Vísun máls til siðanefndar getur ekki talist aðför“ „Vísun máls til siðanefndar getur ekki talist aðför, enda eru slík mál ekki gerð opinber af hálfu háskóla. Háskólinn á Bifröst hefur enga heimild til að reka siðarnefndarmál opinberlega. Viðbrögð Háskólans á Bifröst við umfjöllun í fjölmiðlum síðustu vikna verða því að skoðast í því ljósi.“ 9. febrúar 2026 06:47