Þegar sölumaður áfengis fræðir okkur um lýðheilsu Lára G. Sigurðardóttir skrifar 9. febrúar 2026 18:32 Það er eðlilegt í lýðræðissamfélagi að fólk hafi ólíkar skoðanir og get skipst á þeim. Það er hinsvegar ekki eðlilegt að gera upp fólki einhverja heimasmíðaða heimssýn sem það hefur aldrei sagst aðhyllast. Í andsvari Elíasar Blöndal Guðjónssonar, „Má bjóða þér meiri forræðishyggju, Lára?“ er því haldið fram að ég boði forræðishyggju sem er fjarri sanni. Ég vil að einstaklingurinn hafi frelsi til góðra verka og athafna, en skil jafnframt að við þurfum ákveðnar grunnreglur í góðu samfélagi. Þess vegna erum við með lög um hámarkshraða, skotvopnalög, áfengislög, tóbaksvarnarlög og svo mætti lengi telja. Í þessu samhengi væri forræðishyggja að banna áfengisneyslu með öllu, en ég er ekki að hvetja til þess að hverfa aftur til bannáranna. Elías heldur því einnig fram að áfengisneysla á Íslandi hafi dregist saman og að rök fyrir ríkiseinokun séu dæmi um forræðishyggju. Sú framsetning stenst hvorki gagnalega, lýðheilsufræðilega né taugalífeðlisfræðilega. Langtímagögn skipta máli Þegar þróun áfengisneyslu er metin verður að horfa til langtímagagna, ekki stuttra sveiflna. Alþjóðlegur staðall er mælikvarðinn á lítra hreins áfengis á hvern einstakling 15 ára og eldri á ári, leiðrétt fyrir ferðamönnum. Samkvæmt gögnum frá OECD hefur áfengisneysla á Íslandi aukist úr 7,0 lítrum af hreinum vínanda árið 2013 í um 7,7 lítra árið 2023. Sambærileg þróun sést í gögnum frá World Bank, sem byggja á WHO-staðli. Fullyrðingar um almenna lækkun neyslu standast því ekki þegar heildarmyndin er skoðuð. Samkvæmt íslenskum og erlendum útreikningum kostar aukning um 0,7L okkur skattgreiðendur tæpa 12 milljarða á ári - sem kemur þá til viðbótar við þá rúmu 100 milljarða sem áfengisneysla kostar íslenska ríkið árlega. „Eigin útreikningar“ duga ekki Í andsvarinu er vísað til 13,4% samdráttar á árunum 2021–2024 án vísunar til gagna eða skýrrar aðferðafræði. Ekki liggur fyrir hvaða gögn voru notuð, hvort leiðrétt var fyrir íbúafjölda né fyrir sérstökum áhrifum COVID-tímabilsins og eftirköstum þess, né hvort um var að ræða skráða sölu eða áætlaða neyslu. Slíkar tölur geta ekki vegið þyngra en opinber langtímagögn. Ríkissala áfengis er lýðheilsa – ekki forræðishyggja Að kalla ríkiseinokun forræðishyggju er rangtúlkun. Markmiðið er ekki að stjórna einstaklingum heldur að draga úr heildarneyslu, sem er áhrifaríkasta leiðin til að minnka áfengistengt heilsutjón. World Health Organization og OECD eru samhljóða um að stýring á sölu, aðgengi, verðlagi og auglýsingabann séu meðal skilvirkustu lýðheilsuaðgerða gegn áfengisskaða. Elías heldur því fram að ríkið þurfi að setja bann við áfengisauglýsingum, en nú þegar er gildandi bann sem netsöluaðilar áfengis virða að vettugi. Hann hefur e.t.v. ekki kynnt sér áfengislögin? Elías bendir réttilega á að hlutverk ÁTVR á ekki að vera að ýta undir neyslu áfengis með markaðssetningu, en það vantar tilvísanir í gögn. Sjálf sé ég reglulega auglýsingar frá netsöluaðilum en aldrei séð auglýsingu frá ÁTVR. Hér erum við sammála um að það megi heldur draga úr útsölustöðum og opnunartíma. Taugalífeðlisfræði afhjúpar goðsögnina um „frjálsa neytandann“ Frjálshyggjuhugmyndin um að áfengisneysla tengist frjálsum og skynsamlegum ákvörðunum stenst ekki þegar horft er til heilans. Áfengi örvar mesólímbíska dópamínkerfið (þar sem umbun og hvati eiga upptök sín) á sama tíma og það bælir virkni framennisbarkar, sem sér m.a. um dómgreind, rökhugsun og að hafa hemil á hvötum. Undir áhrifum áfengis færist ákvarðanataka því frá yfirvegaðri stjórn yfir í skyndihvöt. Þegar aðgengi eykst með fleiri sölustöðum, lengri opnunartími, tilboðum, auglýsingum og meiri sýnileika fjölgar aðstæðum þar sem umbunarkerfið nær yfirhöndinni áður en rökhugsunin grípur inn í. Fólk drekkur ekki meira af því það er orðið ábyrgðarlaust eða ákveður að drekka meira, heldur vegna þess að aukinn sýnileiki þess veikir tímabundið þann hluta heilans sem sér um skynsemi. Þetta er vel þekkt í taugavísindum og hefur verið sýnt fram á, meðal annars í yfirlitsgrein Nora Volkow og samstarfsfólks. Í einfeldni sinni líkir Elías áfengi við sykur og unnar matvörur, en lögreglan stöðvar ekki fólk akandi undir áhrifum sykurs eða unna matvara, eða sinnir útköllum á heimili fólks vegna ofneyslu sykurs. Mikil sykurneysla er engum holl, en sykur er ekki taugaeitur eða vímugjafi sem slævir dómgreind og rökhugsun. Þegar hagsmunir eru hluti af málflutningnum Í þessari umræðu skiptir máli að gera hagsmuni sýnilega. Elías Blöndal Guðjónsson er meðeigandi í áfengisnetversluninni Santé. Sú staðreynd breytir ekki réttinum til að tjá sig, en hún setur málflutninginn í skýrt samhengi. Fyrirtæki á borð við Santé hafa augljósa fjárhagslega hagsmuni af auknu aðgengi og afnámi ríkiseinokunar. Að afskrifa lýðheilsurök sem „forræðishyggju“ er því ekki hlutlaus greining þegar slík afstaða fellur jafnframt fullkomlega að viðskiptahagsmunum einkaaðila. Stefna sem gerir ráð fyrir frjálsri sölu ávanabindandi vímuefnis hunsar bæði gagnreynda þekkingu og lífeðlisfræði. Ríkiseinokun á áfengissölu er ekki hugmyndafræðilegt inngrip, heldur mikilvæg forvörn til að vernda samfélagið okkar. Með ríkiseinokun erum við fyrirmyndarþjóð í áfengisforvörnum, rétt eins og Noregur og Svíþjóð. Hinsvegar, þegar fjárhagslegir hagsmunir fá að móta aðgengi að efni sem skaðar samfélagið og þegna þess þá er það fyrst og fremst skaðinn sem eykst en ekki frelsið. Höfundur er læknir og doktor í lýðheilsuvísindum. Heimildir OECD – Alcohol consumption (litres per capita, 15+) ·World Bank / WHO – Alcohol consumption per capita Volkow ND, Koob GF, McLellan AT. Neurobiologic advances from the brain disease model of addiction. NEJM, 2016. Global status report on alcohol and health 2024 Drug harms in the UK: a multicriteria decision analysis. Nutt, David J et al. The Lancet, Volume 376, Issue 9752, 1558 – 1565 What are the Economic Costs to Society Attributable to Alcohol Use? A Systematic Review and Modelling Study. Manthey J et al. Pharmacoeconomics. 2021 Jul;39(7):809-822 Samfélagslegur kostnaður vegna áfengisneyslu - Kostnaðargreining. Stella Einarsdóttir (2022) Brain development during childhood and adolescence: a longitudinal MRI study. Giedd, J. et al.Nat Neurosci2, 861–863 (1999) Dynamic mapping of human cortical development during childhood through early adulthood. Gogtay N et al. Proc Natl Acad Sci U S A. 2004 May 25;101(21):8174-9. Substance use and withdrawal: neuropsychological functioning over 8 years in youth. Tapert SF et al. J Int Neuropsychol Soc. 2002 Nov;8(7):873-83. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Lára G. Sigurðardóttir Heilbrigðismál Áfengi Mest lesið 75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun Smekkvísi er ekki samningsbundin Ásgeir Guðmundsson Skoðun Misfarir í Mosfellsbæ Sólveig Anna Jónsdóttir Skoðun Af morðingjum og mannkostum Svala Magnea Ásdísardóttir Skoðun Myndin sem þú mátt ekki sjá Anna Laufey Stefánsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir Skoðun Gnexit Viðreisnar Bergþór Ólason Skoðun Þegar forstjórinn smíðar hugbúnaðinn sjálfur Ása Rún Björnsdóttir,Óttar Guðmundsson Skoðun Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson Skoðun Innleiðing nýs einkunnakerfis – Sjaldan verður flýtiverk til fagnaðar Erna Ingibjörg Pálsdóttir Skoðun Pólitískt fleipur landlæknis Bjarni Freyr Guðmundsson Skoðun Skoðun Skoðun Ósýnilegt fólk og sýnileg ábyrgð Þorvaldur Óttar Guðlaugsson skrifar Skoðun Bókun 35 - þarf virkilega að breyta stjórnarskránni? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun „Ný“ markmið í grunnskólum duga ekki Þórgunnur Reykjalín Vigfúsdóttir skrifar Skoðun Pólitískt fleipur landlæknis Bjarni Freyr Guðmundsson skrifar Skoðun Ákall um samstarf – Ekki bara samtal Anton Kári Halldórsson skrifar Skoðun Hvort á ég að kenna eftir fyrirmælum aðalnámskrár eða eftir getustigi nemandans? Eyjólfur Pétur Hafstein skrifar Skoðun Myndin sem þú mátt ekki sjá Anna Laufey Stefánsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar Skoðun Áttu áttu? Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir skrifar Skoðun Þegar sannleikurinn þjónar ekki óttanum Helena Jónsdóttir skrifar Skoðun Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson skrifar Skoðun Íslenskt táknmál í stefnu – en hvar eru aðgerðirnar? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Ísland sé frjálst, meðan sól gyllir haf Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Misfarir í Mosfellsbæ Sólveig Anna Jónsdóttir skrifar Skoðun Gilda lögin bara þegar okkur hentar? Sandra Hlín Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Handbók MAGA hreyfingarnar: Flood the zone with shit Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Smekkvísi er ekki samningsbundin Ásgeir Guðmundsson skrifar Skoðun „Nýjasta tíska, nýjasta tíska –allt innan fjárheimilda!“ Agla Þyri Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Reykjavík á ekki að gera allt ein Björg Magnúsdóttir skrifar Skoðun Gnexit Viðreisnar Bergþór Ólason skrifar Skoðun Ósýnilega fólkið Kristbjörg Þórisdóttir skrifar Skoðun Rammaáætlun: Tvær tillögur – tvenns konar vinnubrögð Katrín Helga Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Sama krónutöluhækkun í fjárlagafrumvarpinu – gjörólíkt högg fyrir heimili Þorvaldur Daníelsson skrifar Skoðun Þegar tíminn skiptir öllu Halla Þorvaldsdóttir skrifar Skoðun Tuttugu ár í þjónustu samfélagsins Árni Hrannar Haraldsson skrifar Skoðun Þegar forstjórinn smíðar hugbúnaðinn sjálfur Ása Rún Björnsdóttir,Óttar Guðmundsson skrifar Skoðun Innleiðing nýs einkunnakerfis – Sjaldan verður flýtiverk til fagnaðar Erna Ingibjörg Pálsdóttir skrifar Skoðun Af morðingjum og mannkostum Svala Magnea Ásdísardóttir skrifar Skoðun Skattahækkanir sem beinast gegn Suðurlandi Ásta Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hvar er karlmannadagurinn? Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Ekki orð um heimsins lengstu biðlista… Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar Sjá meira
75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun
Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson Skoðun
Innleiðing nýs einkunnakerfis – Sjaldan verður flýtiverk til fagnaðar Erna Ingibjörg Pálsdóttir Skoðun
Skoðun Hvort á ég að kenna eftir fyrirmælum aðalnámskrár eða eftir getustigi nemandans? Eyjólfur Pétur Hafstein skrifar
Skoðun Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson skrifar
Skoðun Íslenskt táknmál í stefnu – en hvar eru aðgerðirnar? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Sama krónutöluhækkun í fjárlagafrumvarpinu – gjörólíkt högg fyrir heimili Þorvaldur Daníelsson skrifar
Skoðun Innleiðing nýs einkunnakerfis – Sjaldan verður flýtiverk til fagnaðar Erna Ingibjörg Pálsdóttir skrifar
75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun
Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson Skoðun
Innleiðing nýs einkunnakerfis – Sjaldan verður flýtiverk til fagnaðar Erna Ingibjörg Pálsdóttir Skoðun