Segist ekki hafa gert mistök við birtingu myndbandsins Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 7. febrúar 2026 08:44 Donald Trump Bandaríkjaforseti. Epa Donald Trump Bandaríkjaforseti segist ekki hafa horft á allt myndskeiðið sem hann deildi á samfélagsmiðlum í gær en í lok þess eru andlit fyrrum forsetahjónanna Barack og Michelle Obama sett á líkama apa. Hann sjálfur hafi því ekki gert nein mistök. Myndskeiðinu hefur verið eytt af samfélagsmiðli hans.
Í gær birti Trump yfir mínútu langt myndskeið á Truth Social, samfélagsmiðlinum sínum, þar sem því er haldið fram að kosningasvindl hafi átt sér stað í forsetakosningunum árið 2020 þegar Trump laut í lægra haldi fyrir Joe Biden, fulltrúa Demókrataflokksins. Lagið Inni í skógi (e. The Lion Sleeps Tonight) er spilað undir. Að líkja þeldökku fólki við apa er algengt tungutak og myndmál rasista. Aðspurður hvort hann myndi biðjast afsökunar á birtingu myndskeiðsins sagðist forsetinn ekki hafa gert mistök. Hann sagðist einungis hafa séð byrjunina á myndskeiðinu áður en það var birt af starfsmanni hans og vissi því ekki að myndin af Obama-hjónunum væri í lok myndskeiðsins. „Grín af netinu“ „Ég horfi á nokkur þúsund hluti,“ sagði forsetinn og sagðist styðja skilaboðin um kosningasvindl. Ef starfsfólk hans hefði horft á allt myndskeiðið hefðu það ábyggilega ekki deilt myndskeiðinu. „Við tókum það út um leið og við uppgötvuðum það.“ Fyrst um sinn viðurkenndu starfsmenn Hvíta hússins ekki að um mistök væru að ræða og sögðu gagnrýnendum að „hætta þessari fölsku hneykslun“. Karoline Leavitt, talskona Hvíta hússins, sagði við BBC að um væri að ræða grín af netinu þar sem forsetinn er látinn líta út fyrir að vera konungur frumskógarins og demókratarnir séu persónur úr kvikmyndinni Konungur ljónanna. Í myndskeiðinu var andlit Trumps sett á líkama ljóns. Myndskeiðinu hefur nú verið eytt. Starfsmaður Hvíta hússins sagði að annar starfsmaður hefði „ranglega“ birt myndskeiðið. Töluverð gagnrýni samflokksmanna Trump hefur hlotið töluverða gagnrýni fyrir birtinguna en samflokksmaður hans og þingmaður, Tim Scott, sagði að myndskeiðið væri eitt það kynþáttafordómafyllsta sem hann hefði séð frá Hvíta húsinu samkvæmt BBC. Fleiri þingmenn Repúblikanaflokksins tóku undir orð Scott. Andlit annarra fulltrúa demókrata voru sett á dýr í myndskeiðinu, til að mynda Alexandria Ocasio-Cortez, fulltrúi í New York-fylki, Zohran Mamdani, borgarstjóri New York, og Hillary Clinton, fyrrverandi forsetaframbjóðandi. Andlit Joe Biden, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, hefur einnig verið sett á andlit apa sem borðar banana. Er þessi orð eru rituð hafa Obama-hjónin ekki tjáð sig um myndskeiðið.
Bandaríkin Donald Trump Barack Obama Kynþáttafordómar Mest lesið Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Innlent Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Erlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Fleiri fréttir Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Sjá meira