Kópavogur og amma Stella Pétur Björgvin Sveinsson skrifar 7. febrúar 2026 11:15 Nú stendur yfir fyrsta prófkjör Viðreisnar í Kópavogi. Í framboði eru sjö framúrskarandi einstaklingar sem berjast um fyrstu þrjú sætin. Það eru mikil forréttindi að fá að taka þátt í baráttu með fólki sem brennur fyrir samfélagið okkar og er tilbúið að gefa tímann sinn til að láta gott af sér leiða í þágu Kópavogs. Sjálfur býð ég mig fram til að leiða lista Viðreisnar til sigurs þann 16. maí næstkomandi. Kosið er í dag til klukkan 19:00 og allir skráðir meðlimir Viðreisnar í Kópavogi geta tekið þátt. Sama hvernig fer er ljóst að listinn verður fullur af öflugu Viðreisnarfólki sem mun láta til sín taka. Stella amma Ég er fjórðu kynslóðar Kópavogsbúi og sterk tengsl mín við bæinn móta sýn mína á hvernig ég vil sjá bæinn okkar þróast. Stella á Lindarbakka var amma mín. Hún var þekkt hér í Kópavogi fyrir að liggja ekki á skoðunum sínum. Hún var mjög vinstrisinnuð, kommi að eigin sögn, og mjög pólitísk manneskja. Þegar ég gekk í Viðreisn þá sagði hún við mig „Mikið er ég stolt af þér, en ég vona að ykkur gangi illa“ – þannig var amma. Sanngjörn og málefnaleg, en grjóthörð. Brann fyrir betri heimi og betra samfélagi. Hennar kynslóð breytti samfélaginu okkar. Hún barðist með kjafti og klóm fyrir þeim réttindum og þeim lífsgæðum sem við tökum sem sjálfsögð í dag. Nú er keflið komið í okkar hendur og það skiptir máli að fara vel með það. Við eigum að byggja á þeim gildum sem kynslóðirnar á undan veittu okkur, en um leið tryggja að við höldum áfram að byggja upp og horfa fram á veginn. Verndum frelsið sem við búum við í dag, stöndum vörð um fjölbreytileikann og tökum ólíkar þarfir fólks alvarlega. Pössum upp á lífsgæðin og fjöreggin. Það er sótt að frelsinu úr öllum áttum þessa dagana. Þess vegna skiptir máli að standa í lappirnar, tala fyrir mannúð og mannréttindum. Það gerði amma Stella. Verndum það sem hefur áunnist og horfum fram á veginn. Sterk gildi og skýr sýn Það er á þessum gildum sem ég stend og býð mig fram til að leiða Viðreisn í Kópavogi. Ég finn fyrir mikilli ábyrgðartilfinningu gagnvart þessari ákvörðun, tek henni alvarlega. Hér hafa kynslóðir fjölskyldu minnar lifað, unnið og lagt sitt af mörkum til bæjarfélagsins. Nú vil ég taka virkan þátt í að móta næstu kafla í sögu bæjarins. Við getum nefnilega gert þetta betur. Náð sátt um leikskólamálin, lagt meiri áherslu á unga fólkið okkar, aukið gegnsæi, bætt samtalið og tryggt sjálfbæran rekstur. Ég býð mig fram fyrst og fremst til að hlusta og til þess að taka ákvarðanir. Hlusta á íbúa, á ungt fólk, á eldri borgara, þau sem starfa í þjónustu bæjarins og öll þar á milli. Þetta byggir allt saman á samtali, trausti og því að ákvarðanir séu teknar í nánu sambandi við íbúa. Viðreisn stendur fyrir framsýni, frjálslyndi og vönduð vinnubrögð. Við látum verkin tala og það mun ég svo sannarlega gera. Gerum þetta saman. Höfundur býður sig fram til að leiða lista Viðreisnar í Kópavogi Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Pétur Björgvin Sveinsson Viðreisn Kópavogur Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Af hverju fer sérsveitin í fleiri útköll? Davíð Bergmann Skoðun Ég kvíði eftirköstum ESB-kosninganna - Óháð niðurstöðu Þorsteinn Magnússon Skoðun Dregur Útlendingastofnun úr samkeppnishæfni Háskóla Íslands? Rob Chantrey Skoðun Þrír forstjórar sem margfalla á staðreyndaprófinu Jón Kaldal Skoðun Byssur bæta ekki heiminn Ebba Margrét Magnúsdóttir Skoðun Stefnum á svikalaust sumarfrí - það er skemmtilegra Heiðrún Jónsdóttir Skoðun Saga frá Svíþjóð - Lífskjör mælast ekki í vaxtaprósentum Berglind Ragnarsdóttir Skoðun Hin hagsýna húsmóðir ársins 2026 Alma Dóra Ríkarðsdóttir Skoðun Er Ísland með landslið í fótbolta? Jón Páll Haraldsson Skoðun Baldur til Eyja og við borgum Sigríður Jóhannesdóttir,Sæþór Þorbergsson Skoðun Skoðun Skoðun Verðmæti góðrar vinnustaðamenningar Hólmfríður Jennýar Árnadóttir skrifar Skoðun Ég hélt fyrst að fréttin væri um Sigurð Elías Blöndal Guðjónsson skrifar Skoðun Dregur Útlendingastofnun úr samkeppnishæfni Háskóla Íslands? Rob Chantrey skrifar Skoðun Ég kvíði eftirköstum ESB-kosninganna - Óháð niðurstöðu Þorsteinn Magnússon skrifar Skoðun Ævisaga krónunnar Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Er Ísland með landslið í fótbolta? Jón Páll Haraldsson skrifar Skoðun Hví ekki að velja eitthvað ódýrara en evru? Jóhann Óli Eiðsson skrifar Skoðun Ef Ísland væri gosdrykkur Geir Gígja skrifar Skoðun Af hverju fer sérsveitin í fleiri útköll? Davíð Bergmann skrifar Skoðun Frá leikgleði til afreka Willum Þór Þórsson skrifar Skoðun Ekki éta útsæðið Jóhannes Þór Skúlason skrifar Skoðun Stefnum á svikalaust sumarfrí - það er skemmtilegra Heiðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Hin hagsýna húsmóðir ársins 2026 Alma Dóra Ríkarðsdóttir skrifar Skoðun Réttarríki fyrir lengra komna Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Hvað er að því að vera heimsborgari? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Nei eða já? Vilborg Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Þegar sauðfé verður á vegi okkar Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar Skoðun Það skiptir máli að velja rétta séreign Harpa Jónsdóttir skrifar Skoðun Svartir svanir á Reykjanesi Böðvar Tómasson skrifar Skoðun „Sprúttsalar“, lög sem gilda… þegar hentar Þráinn Farestveit skrifar Skoðun Byssur bæta ekki heiminn Ebba Margrét Magnúsdóttir skrifar Skoðun Með vinnuna í vasanum? Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Saga úr heilbrigðiskerfi okkar Íslendinga Magnea Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Baldur til Eyja og við borgum Sigríður Jóhannesdóttir,Sæþór Þorbergsson skrifar Skoðun Þrír forstjórar sem margfalla á staðreyndaprófinu Jón Kaldal skrifar Skoðun Góðar fréttir af almenningssamgöngum Davíð Þorláksson skrifar Skoðun Uppgjör við víkinga öld elítunnar - Hvernig siðmenntuð þjóð rís upp úr sjálfskaparvíti spillingar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Getur Evrópusinni af hugsjón sannfært hrædda þjóð? Sigurjón Ólafsson skrifar Skoðun Frekjukallar fyrr og nú Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Forréttindafólk sem segir nei Margrét Guðmundsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Uppgjör við víkinga öld elítunnar - Hvernig siðmenntuð þjóð rís upp úr sjálfskaparvíti spillingar Sigurður Sigurðsson skrifar