Mæta „reyndari og erfiðari“ andstæðingum í búrinu í Framheimilinu Aron Guðmundsson skrifar 6. febrúar 2026 22:46 Bjarki Þór Pálsson MMA þjálfari og skipuleggjandi Glacier Fight Night og Hákon Arnórsson bardagamaður úr RVK MMA sem berst í einum af aðalbardögum kvöldsins. Vísir/Ívar Fannar Annað MMA bardagakvöld Glacier Fight Night fer fram í Framheimilinu þann 28.febrúar og munu margir af okkar bestu og efnilegustu bardagaköppum berjast gegn reyndari og erfiðari andstæðingum en mættu til leiks á fyrsta kvöldið.
Fyrsta Glacier Fight night bardagakvöldið, sem jafnframt var fyrsta bardagakvöldið í MMA hér á landi í sögunni, var haldið þann 15.nóvember í Andrews Theater á Ásbrú á síðasta ári og segja má að það hafi gengið vonum framar, bæði hjá íslensku bardagafólki sem og hvað varðar viðtökur frá áhorfendum. Þann 28.febrúar, núna í Framheimilinu, fer fram Glacier Fight Night tvö og skipuleggjendur kvöldsins hafa gefið í varðandi umgjörðina á kvöldinu líkt og Bjarki Þór Pálsson hjá Reykjavík MMA sagði frá í Bítínu á Bylgjunni á dögunum: „Við vorum með mjög lítið pláss síðast, um sex hundruð sæti, og það var gjörsamlega uppselt. Það var verið að hringja í mann á Facebook, fólk að reyna redda miðum þannig en einnig við hurð á bardagakvöldinu sjálfu. Það var allt brjálað og því ákváðum við að stækka þetta vel í þetta skipti. Við erum að fara upp í Framheimilið og getum þar tekið við 1700 manns,“ sagði Bjarki í Bítinu á sínum tíma en þá voru nú þegar níu hundruð miðar farnir á bardagakvöldið. Það er ljóst að áhugafólk um blandaðar bardagalistir mun fá mikið fyrir peninginn á Glacier Fight Night 2 þar sem að titilbardagar eru á dagskrá og margir af efnilegustu og bestu bardagaköppum landsins mæta til leiks á móti andstæðingum frá Frakklandi og Bretlandi. „Við erum að fara í mjög reynda og erfiðari andstæðinga. Þetta verður því krefjandi kvöld fyrir okkar fólk,“ sagði Bjarki Þór í Bítinu en þeir bardagar sem kynntir hafa verið til leiks hingað til lofa góðu. Til að mynda mun strákurinn úr Mosfellsbænum, Hákon Örn Arnórsson úr Reykjavík MMA sem vann aðalbardaga kvöldsins á Glacier Fight Night 1, mæta Ali Albazi sem er engin aukvissi og bróðir UFC bardagakappans Amir Albazi. View this post on Instagram A post shared by Glacier Fight Night (@gfn_mma) Ali eyðir miklum tíma við æfingar með bróður sínum og bara síðast í dag birti hann mynd á samfélagsmiðlum eftir æfingu með fyrrverandi UFC bantamvigtar meistaranum Merab Dvalishvili. View this post on Instagram A post shared by Ali Albazi (@alialbazi_mma) Í hinum aðalbardagakvöldsins mun Viktor Gunnarsson úr Mjölni mæta hinum breska Caleb Mullin. Þá eru fleiri bardagakappar úr röðum Reykjavík MMA og Mjölni sem munu stíga inn í búrið þann 28.febrúar næstkomandi og von á sýningu. View this post on Instagram A post shared by Glacier Fight Night (@gfn_mma)
MMA Mest lesið „Hvers konar spurning er þetta?“ Sport Bestu kaupin í sögu enska boltans Enski boltinn Klopp umbreytir starfinu Fótbolti KSÍ kaupir pulsuna og búið er að koma henni fyrir á Laugardalsvelli Íslenski boltinn Allir leikir stoppaðir fyrir Messi Fótbolti Hver var í flottustu treyjunni? Íslenski boltinn Íhugar að hætta með argentínska landsliðinu eftir þungt bann Fótbolti Tekur aftur við tveimur mánuðum eftir að hafa hætt Fótbolti Barcola í hóp á morgun Enski boltinn Fólskubrot á Gísla sem var sjálfur rekinn af velli Handbolti Fleiri fréttir Nýi Japaninn aðstoðaði Hákon við rán Fullkomin byrjun eftir heimkomu Dags Árna Fólskubrot á Gísla sem var sjálfur rekinn af velli FIFA tekur til varna og sakar UEFA um ófrægingarherferð gegn Infantino Tielemans tók vítið með Bruno Berglind Katla fer í skóla í New York Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Antonelli refsað og byrjar heimakappaksturinn aftastur Hver var í flottustu treyjunni? Bestu kaupin í sögu enska boltans „Leikmenn í hópnum sem þurfa að taka við keflinu“ Ekki sofa á Valsmönnum Barcola í hóp á morgun Tekur aftur við tveimur mánuðum eftir að hafa hætt Sextán tíma flug og spilað fyrir hádegi Tufegdzic bræður til Malmö Klopp umbreytir starfinu Íhugar að hætta með argentínska landsliðinu eftir þungt bann Allir leikir stoppaðir fyrir Messi Stjarnan spilar aftur í Miðgarði Frá Keflavík til Noregs Löng bönn, risa sektir og bannaðir frá nýliðavalinu Daníel Leó til dönsku meistaranna „Hvers konar spurning er þetta?“ Banni Aubameyang með landsliðinu aflétt en hann hættir samt Dagskráin í dag: Íslendingarnir í Magdeburg í eldlínunni Heims- og Ólympíumeistari lenti í árekstri og getur ekki æft KSÍ kaupir pulsuna og búið er að koma henni fyrir á Laugardalsvelli Lando Norris stofnar sitt eigið lið Bayern lenti óvænt undir í fyrstu umferð bikarsins Sjá meira