Sorglegt að sonurinn sé aðeins tala á blaði Lillý Valgerður Pétursdóttir skrifar 5. febrúar 2026 20:01 Ása Guðmundsdóttir og Jónatan Már Sigurjónsson eru foreldrar Guðjóns Víkings. Þau segja biðlista hafa verið stóran hluta af lífi sínu síðasta áratug og taka á. Vísir/Bjarni Foreldrar þrettán ára fatlaðs drengs segja sorglegt að upplifa að sonur þeirra sé aðeins tala á blaði sem skipti engu máli. Langir biðlistar séu eftir nær öllum stuðningi og úrræðum sem hann þurfi. Hann bíði að meðaltali í tvö ár eftir viðeigandi þjónustu hverju sinni sem sé langur tími í lífi barns.
Guðjón Víkingur þrettán ára drengur sem býr í Sandgerði. Hann er fimmta barn foreldra sinna en fljótlega eftir fæðingu hans vöknuðu áhyggjur hjá þeim af því að mögulega væri eitthvað að. „Við nefndum það við barnalækni þegar hann er sex vikna og við tautuðum um það við alla eftir það þangað til hann fór af stað í greiningarferli um tveggja ára,“ segir Ása Guðmundsdóttir móðir Guðjóns Víkings. Tíminn hefur leitt ýmislegt í ljós og staðan í dag er þannig að hann þarf aðstoð við flestar athafnir nær allan sólarhringinn. „Hann er með ódæmigerða einhverfu, þroskaskerðingu, hann er með sértæka fælni, svefnröskun, hreyfiþroskaröskun, flogaveiki, skjaldkirtilsvandamál og alls konar hormónavandamál.“ Guðjón Víkingur þarf aðstoð með flestar athafnir. Fjölskyldan þarf að nýta sér fjöldann allan af úrræðum og þjónustu og hefur gert síðan hann var þriggja ára. Það er þó oft hægara sagt en gert. „Við erum einhvern veginn stanslaust alltaf að berjast við alla um allt. Við fáum bara jú jú þið eigið rétt á þessu en það er svo langur biðlisti.“ Þannig hafa þau síðastliðinn áratug verið á endalausum biðlistum. Núna bíða þau til að mynda eftir liðveislu, stuðningsfjölskyldu, fleiri dögum í skammtímavistun, talþjálfun, iðjuþjálfun og eftir nýju greiningarferli hjá Geðheilsumiðstöð barna svo eitthvað sé nefnt. Í einhverjum tilfellum hafa þau fengið þjónustu í skamma stund en verið svo aftur sett á biðlista. Þannig var því háttað með talþjálfunina. Fyrir sex árum fengu þau tuttugu tíma í talþjálfun og voru svo sett aftur á biðlista eftir að þeir kláruðust. Þau eru enn að bíða eftir fleiri tímum. Foreldrarnir telja að þau bíði að meðaltali í tvö ár eftir hverju og einu úrræði. „Það er langur tími í lífi barnanna sem eru að bíða,“ segir Jónatan Már Sigurjónsson faðir Guðjóns Víkings. Fjölskyldan hefur farið til útlanda á íþróttaleiki. Þau upplifa að þau séu stanslaust að berjast fyrir tilverurétti sonar síns og að hann fái þá þjónustu sem hann þarf til að geta átt gott líf. „Kerfið einhvern veginn ýtir þeim til hliðar sem einhverjum tölum á einhverju blaði á einhverjum biðlistum og spáir ekkert í fólkinu á bak við það. Það spáir ekkert í því að þetta er líf sem skiptir máli líka þó það sé fatlað. Þetta eru einstaklingar sem verða fullorðnir og sem þurfa þjónustu og þurfa að geta fúnkerað í daglegu lífi,“ segir Ása. Hún hefur áhyggjur af hvernig framtíð sonar hennar verði. „Við erum ekki að segja að sonur okkar sé að verða forseti. Alls ekki en okkar framtíðarsýn hjá honum er að hann geti búið á sambýli. Að hann geti klætt sig sjálfur og að hann geti hugsað um sjálfan sig með aðstoð. Það er eina markmiðið hjá okkur alla daga að hann muni ná því. Það er enginn sem hjálpar okkur með það af því hann er bara einhver tala á blaði sem skiptir engu máli fyrir einhverjar skrifstofublokkir í einhverjum embættum sem er sorglegt.“
Börn og uppeldi Málefni fatlaðs fólks Suðurnesjabær Tengdar fréttir Þúsundir barna á „alræmdum“ biðlistum í brotnu kerfi Mæður drengja með hamlandi einhverfu hafa ráðist í átak til að vekja athygli á og berjast gegn löngum biðlistum eftir þjónustu fyrir fötluð og einhverf börn. Um fimm þúsund börn séu að bíða eftir þjónustu hjá talmeinafræðingi og útlit fyrir að mörg þeirra þurfi að bíða í mörg ár. Þar á meðal eru börn sem ekki geta tjáð sig. Þær segja að margir hafi hlustað en færri hafi gripið til aðgerða. Þær hafa átt samtal við heilbrigðisráðherra og fleiri stjórnmálamenn en eru enn að bíða eftir að fá áheyrn hjá Ingu Sæland, félagsmálaráðherra sem sjálf hefur lagt ríka áherslu á málefni fatlaðs fólks á sínum stjórnmálaferli. 25. nóvember 2025 09:03 Mest lesið Skipstjóri Bandero handtekinn og skipið fært til hafnar Innlent Myndi glaður sjá réttarhöld yfir skipverjum Bandero Innlent Árið sem skytturnar fjórar kvöddu Innlent Gabríel Douane og fimm aðrir sýknaðir Innlent „Þá bara krassa lungun“ Innlent Bílstjóri horfði á skelfingu lostinn Innlent Sætir morðhótunum og óhróðri í vinsælum Facebook-hópi Innlent Þúsundir hælisleitenda synt til Ceuta á nokkrum klukkustundum Erlent Vaktin: Bandero hrellir Hval 9 Innlent Bruni við Breiðhöfða Innlent Fleiri fréttir Leggja áherslu á mannúðarlegar aðgerðir vegna minkanna Árið sem skytturnar fjórar kvöddu Skipstjóri Bandero handtekinn og skipið fært til hafnar Myndi glaður sjá réttarhöld yfir skipverjum Bandero „Þá bara krassa lungun“ Bruni við Breiðhöfða Vasaþjófnaður daglegur atburður og verulegar fjárhæðir teknar Vaktin: Bandero hrellir Hval 9 Þaulskipulagðir vasaþjófar, minkaveiðar og lífgjöf Dekk sprakk við lendingu vélar Borgarísjaka rekur í átt að Skagafirði Stærsta umferðarhelgi ársins hafin Bílstjóri horfði á skelfingu lostinn Meirihluti ætlar að segja já í ágúst Skilningsleysi foreldra mætti litblindum syninum Staðan orðin „þokkalega góð“ Tugir tilkynninga í viku: „Þetta var ekki í fyrsta skipti sem þau voru handtekin“ Okkar McCartney, okkar Bach kveður Vasaþjófar gómaðir á Suðurlandi og minkafár í rénun Fleiri en einn hafi verið að verki Dýralæknafélag Íslands fordæmir skemmdarverk í Dalsbúi Gunnar Þórðarson er látinn Dregur úr ánægju með frammistöðu ríkisstjórnarflokkanna Sex handteknir grunaðir um vasaþjófnað Sætir morðhótunum og óhróðri í vinsælum Facebook-hópi Gabríel Douane og fimm aðrir sýknaðir Heilum gámi af kampavíni stolið af Ölgerðinni Mosfellsdalur minnti á vígvöll Greinir á um leiðir til að draga úr nikótínneyslu ungmenna Gæsluvarðhald samþykkt yfir Ming Ting Sjá meira
Þúsundir barna á „alræmdum“ biðlistum í brotnu kerfi Mæður drengja með hamlandi einhverfu hafa ráðist í átak til að vekja athygli á og berjast gegn löngum biðlistum eftir þjónustu fyrir fötluð og einhverf börn. Um fimm þúsund börn séu að bíða eftir þjónustu hjá talmeinafræðingi og útlit fyrir að mörg þeirra þurfi að bíða í mörg ár. Þar á meðal eru börn sem ekki geta tjáð sig. Þær segja að margir hafi hlustað en færri hafi gripið til aðgerða. Þær hafa átt samtal við heilbrigðisráðherra og fleiri stjórnmálamenn en eru enn að bíða eftir að fá áheyrn hjá Ingu Sæland, félagsmálaráðherra sem sjálf hefur lagt ríka áherslu á málefni fatlaðs fólks á sínum stjórnmálaferli. 25. nóvember 2025 09:03