Samstarf

Stærsti Ímarkdagur í 40 ár: Al­þjóð­legar stjörnur markaðs­mála mæta

ÍMARK
Fyrirlesararnir vinna daglega með stærstu fyrirtækjum heims og munu miðla raunverulegri reynslu.
Fyrirlesararnir vinna daglega með stærstu fyrirtækjum heims og munu miðla raunverulegri reynslu.

Ímark hefur opnað fyrir miðasölu á Ímark-deginum 2026 sem fer fram 6. mars í Háskólabíói og verður sá stærsti í 40 ára sögu félagsins. Í ár er dagskráin óvenjumetnaðarfull, með þremur af eftirsóttum alþjóðlegu sérfræðingum á sviði markaðsmála.

Ímarkdagurinn 2026 snýst um eitt brýnasta viðfangsefni sem fyrirtæki standa frammi: Hvernig ná má athygli, byggja upp vörumerkja virði og skila raunverulegum viðskiptalegum árangri í sífellt harðari samkeppni.

Til landsins koma þrjár alþjóðlegar stjörnur

Jon Evans (Uncensored CMO), einn áhrifamesti markaðssérfræðingur heims, þekktur fyrir beitta nálgun og skýrar tengingar milli sköpunar og arðsemi. Erindi Jon er „The Extraordinary Cost of Dull“. Jon sýnir okkur af hverju það er dýrasta ákvörðun ferilsins að vera leiðinlegur og hvernig sköpunargleði er lykillinn að mælanlegum hagnaði.

Patrick Fagan, leiðandi atferlisvísindamaður og metsöluhöfundur, sem vinnur með alþjóðlegum vörumerkjum að því að skilja hvað raunverulega stýrir athygli og ákvörðunum. Patrick útskýrir sálfræðina á bak við „dyravörð heilans“ (The Brain’s Bouncer) og af hverju ákveðið efni, allt frá hvolpum yfir í „banana“, fær okkur til að hætta að skrolla og gefa athygli.

Vicky Owens, Stofnandi og forstjóri Socially Speaking Media, sem vinnur með vörumerkjum á borð við Netflix, Sky og ghd. Vicky er þekkt fyrir að afhjúpa hvað virkar raunverulega á samfélagsmiðlum og hvað ekki. Hún er margverðlaunaður fyrirlesari, umsjónarmaður Business Class hlaðvarpsins (top 1% á heimsvísu) og hefur byggt upp öflugt alþjóðlegt fylgi með yfir 250.000 fylgjendum.

Sameiginlegt með fyrirlesurunum er að þeir vinna daglega með stærstu fyrirtækjum heims og miðla raunverulegri reynslu, ekki kenningum.

Á sama degi verða veittar viðurkenningar fyrir framúrskarandi árangur þegar Markaðsfyrirtæki ársins og ÁRA, árangursríkasta auglýsingaherferð ársins, verða kynnt.

Miðasala er hafin á Tix.is. Þetta er viðburður sem markaðs- og stjórnendateymi vilja ekki missa af. Takmarkaður miðafjöldi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×