Börnin sem bíða! Elín Anna Baldursdóttir skrifar 3. febrúar 2026 06:31 Börn á Íslandi bíða. Þau bíða eftir greiningu.Þau bíða eftir sálfræðimeðferð.Þau bíða eftir að einhver grípi þau áður en vandinn stækkar. Við heyrum orðin snemmtæk íhlutun víða í tengslum við börn í heilbrigðis- og menntakerfinu. Orðið hljómar vel í stefnuskjölum, á ráðstefnum og í ræðum. En hvað þýðir snemmtæk íhlutun og af hverju er það mikilvægt? Snemmtæk íhlutun merkir að veitt sé meðferð og stuðningur við fyrstu merki vanda. Rannsóknir sýna að það getur komið í veg fyrir alvarlegri geðrænan, félagslegan og námslegan vanda síðar á lífsleiðinni. En börn á Íslandi fá ekki snemmtæka íhlutun. Þau fá biðlista. Bið eftir fullnaðargreiningu á ADHD og einhverfu getur tekið 4–5 ár. Bið eftir sálfræðiþjónustu á heilsugæslu getur verið 6–9 mánuðir. Við vitum að mánuðir og jafnvel ár eru gríðarlega mikilvægur tími í lífi barns. Á biðtíma versnar vandinn, kvíði og depurð fer úr vægum vanda í alvarlegri, hegðunarvandi eykst, skólaforðun kemur fram og álag á foreldra eykst. Umræðan undanfarið hefur mikið snúist um þyngstu úrræðin og að bæta þau. Það er mikilvægt en það er ekki síður mikilvægt að horfa á hinn endann — þar sem vandinn byrjar og þar sem hægt væri að stöðva hann áður en hann verður af krísu. Þetta er ekki aðeins skynsamlegt út frá mannúðarsjónarmiðlum heldur líka efnhagslegum. Snemmtæk íhlutun sparar samfélaginu Minni kostnaður síðar Dýrari meðferðir, innlagnir, lyfjagjöf, félagsleg úrræði og jafnvel afbrot tengjast oft ómeðhöndluðum geðrænum vanda í æsku. Betri námsárangur og framtíðarþátttaka á vinnumarkaði Börn með góða andlega heilsu ljúka frekar skólagöngu og verða virkari þátttakendur í samfélaginu. Minna fjarvera og betri starfshæfni í framtíðinni Andleg vanlíðan í æsku hefur tengsl við hærri tíðni veikindadaga og minni starfsgetu á fullorðinsárum. Foreldrar barna í alvarlegum vanda missa gjarnan úr vinnu og eru undir miklu álagi. Minni byrði á heilbrigðis- og velferðarkerfið Notkun neyðarþjónusta og félagslegra úrræða minnka þegar gripið er inn í snemma. Aukinn félagslegur jöfnuður Aðgengi að aðstoð á ekki að ráðast af búsetu eða efnahag þar sem slíkt ýtir undir félagslegan ójöfnuð og aukin félgasleg vandamál. Kvíði og þunglyndi eru meðal algengustu geðraskana í heimi, með algengi um 20–25%. Rannsóknir sýna að fjárfesting í meðferð skilar sér fjórfalt til baka fyrir samfélagið. Við erum því ekki að tala um kostnað heldur fjárfestingu sem borgar sig. Lausnirnar eru til – við þurfum ekki að finna upp hjólið Biðlistar eru þekkt vandamál víðsvegar um heim en önnur lönd hafa þegar tekist á við vandann. Í Bretland hefur NHS Talking Therapies gjörbreytt aðgengi að gagnreyndri geðheilbrigðisþjónustu. Í Noregi hefur Rask Psykisk Helsehjelp styrkt fyrstu línu þjónustu við vægum og miðlungs vanda. Í Danmörk hafa stjórnvöld sett fram 10 ára áætlun um geðheilbrigðismál þar sem öll sveitarfélög eiga að bjóða snemmtæk úrræði fyrir börn og ungmenni. Þar er boðið upp á skimun og forviðtal og stutta, gagnreynda meðferð. Úrræðin ná til barna 5–17 ára með kvíða, depurð, áráttu, sjálfsskaða, líkamsímynd, hegðunar- og athyglisvanda. Þetta er ekki flókið né óraunhæft og hefur verið gert annarsstaðar. Spurningin er ekki hvort við höfum efni á þessu Spurningin er hvort við höfum efni á að gera þetta ekki. Á meðan börn bíða, stækkar vandinn.Á meðan börn bíða, þyngist byrðin á kerfinu.Á meðan börn bíða, missa þau dýrmætan tíma og tækifæri til þroska í sínu lífi. Við þurfum kerfi sem grípur börn þegar þau þurfa á því að halda — ekki einhverjum mánuðum eða árum síðar. Setjum geðheilsu barna í forgang - ekki í orði heldur í verki. Styrkjum stoðirnar og bætum aðgengi að úrræðum fyrir börn! Höfundur er sálfræðingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Börn og uppeldi Mest lesið Hvar hefur 400.000 manna þjóð mest áhrif? Baldur Johnsen Skoðun „Viltu koma út að leika?“ Hallgrímur Helgason Skoðun Hvernig ákveður þjóð sig? - Samhygð á undanhaldi Davíð Brynjar Sigurjónsson Skoðun Þegar mótrökin verða meðmæli Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Referendum: The Status Quo is Path Dependent Smári McCarthy Skoðun Amma getur ekki eldað. Borgarfulltrúinn getur það. Bæði borga 1.900. Kristín Ólafsdóttir Skoðun Íslensk mjólkurframleiðsla er ekki skiptimynt í Brussel Sigurbjörg Ottesen Skoðun Referendum: What Is Path Dependence? Carl Baudenbacher Skoðun Veikar konur, hið hæga þjóðarmorð og Reykjavíkurmaraþon Viðar Hreinsson Skoðun Spörum milljarða Lárus Blöndal Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Hvar hefur 400.000 manna þjóð mest áhrif? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Hvernig ákveður þjóð sig? - Samhygð á undanhaldi Davíð Brynjar Sigurjónsson skrifar Skoðun Siðferðiskirtillinn Jón Bragi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Spörum milljarða Lárus Blöndal Sigurðsson skrifar Skoðun Drottningaviðtal – þegar ein rödd fær sviðið Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Þegar náttúran verður okkur framandi Guðný Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Þurfum við kreatín og prótín sem bætiefni? Jóhanna Eyrún Torfadóttir,Dögg Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Af hverju aðildarviðræður? Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Hvað var afaðlagað? Þorvaldur Logason skrifar Skoðun Fullveldi - ættaróðal eða verkfæri sjálfstæðrar þjóðar? Martha Árnadóttir skrifar Skoðun Referendum: The Status Quo is Path Dependent Smári McCarthy skrifar Skoðun Amma getur ekki eldað. Borgarfulltrúinn getur það. Bæði borga 1.900. Kristín Ólafsdóttir skrifar Skoðun Þegar Ísland verður 600 þúsund manna borgríki – hver á þá að framleiða matinn? Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar Skoðun Gylliboðin sem ekki standast Ólafur Hannesson skrifar Skoðun Þegar mótrökin verða meðmæli Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Er ekki alltaf brjálað að gera? Sigríður Indriðadóttir skrifar Skoðun Spliff, Donk & Gengja á Alþingi Benedikt V Warén skrifar Skoðun Bannmenn og bruggarar Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Íslensk mjólkurframleiðsla er ekki skiptimynt í Brussel Sigurbjörg Ottesen skrifar Skoðun Hversdagsleg menning og majónes Logi Einarsson skrifar Skoðun Lærum lýðræði Ingibjörg Rósa Björnsdóttir skrifar Skoðun Referendum: What Is Path Dependence? Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Veikar konur, hið hæga þjóðarmorð og Reykjavíkurmaraþon Viðar Hreinsson skrifar Skoðun ESB-aðild eykur áhrif smáríkja. Reynsla Íra er mjög jákvæð Dominic Scott skrifar Skoðun Hvaða Evrópusamband erum við að kjósa um? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Hefur einhver trú á topplistum? Dagbjört Hákonardóttir skrifar Skoðun Seðlabankastjóri og stríðsöxin Halla Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Ísland þarf raunhæfar lausnir — ekki óútskýrðar stærðir og óraunhæfar sviðsmyndir Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun „Viltu koma út að leika?“ Hallgrímur Helgason skrifar Skoðun Vaxtaþrælarnir og hinir Ingólfur Sverrisson skrifar Sjá meira
Skoðun Þurfum við kreatín og prótín sem bætiefni? Jóhanna Eyrún Torfadóttir,Dögg Guðmundsdóttir skrifar
Skoðun Amma getur ekki eldað. Borgarfulltrúinn getur það. Bæði borga 1.900. Kristín Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Þegar Ísland verður 600 þúsund manna borgríki – hver á þá að framleiða matinn? Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar
Skoðun Ísland þarf raunhæfar lausnir — ekki óútskýrðar stærðir og óraunhæfar sviðsmyndir Eggert Guðmundsson skrifar