Ekkert óvenjulegt við kalt og bjart veður Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 2. febrúar 2026 23:25 Sigurður Þ. Ragnarsson, betur þekktur sem Siggi stormur. Vísir/Vilhelm Sigurður Þ. Ragnarsson, betur þekktur sem Siggi Stormur, ráðleggur skíðafólki að gera sér ekki upp vonir um snjókomu. Frostið fer að bíta síðar í vikunni en ekki líklegt að það bóli á snjónum.
Mikill kuldi er á meginlandi Evrópu en að sögn Sigga vinnur hún gegn því að skilin frá lægðunum komist almennilega til Íslands og því sé ekki eins kalt hér. Njóta má hlýindanna við suðurströndina þar sem hitinn fer upp í átta stig. „Þessar lægðir eru mjög seigar og senda til okkar hlýrra loft.“ Sömu sögu er ekki að segja á Norðurlandi þar sem frostið getur náð niður í átta stig. „Það er frekar að menn þurfi að búa sig undir að það liggi úrkomuloft yfir suður- og austanverðu landinu næstu daga og úr því komi rigning og él,“ segir Siggi sem fór yfir spána í Reykjavík síðdegis í dag. Ekkert óvenjulegt Þrátt fyrir áðurnefnt úrkomuloft telur Siggi það ekki líklegt að snjóa muni á helstu skíðasvæðin á næstunni. „Það er veik von að á föstudaginn verði svolítil úrkoma hér vestanlands en spár eru engan veginn sammála um það og ég held að þau gætu þurft að bíða svolítið eftir alvöru snjó í Bláfjöllum. Þó að það sé betra fyrir norðan er það þannig að þetta eru ekki myndarleg úrkomusvæði sem liggja við austanvert landið og síðar norðaustanvert landið, það er svolítið lítið í þessu,“ segir hann. Hátt í sjötíu ár eru síðan eins lítil úrkoma hefur mælst á höfuðborgarsvæðinu í janúar. Hann telur veðrið undanfarnar vikur ekki óvenjulegt þar sem Ísland búi yfir miklu meiri breytileika í veðri en meginland Evrópu. „Það er í sjálfu sér ekkert óvanalegt ástand út af fyrir sig en það sem er óvenjulegt er að hæðakerfin eru mjög dugleg að senda þetta kalda loft yfir meginlandið en lægðirnar eru að basla við að senda yfir okkur heldur mildara veður.“ Siggi segir að búast megi við svipuðu veðri, kalt og bjart, næstu daga en of snemmt sé að spá fyrir veðrinu í febrúar. Kaldara í Flórída heldur en á Íslandi Ekki er einungis kalt á meginlandi Evrópu heldur einnig vestanhafs. Mikið frost hefur verið í Flórída-fylki Bandaríkjanna undanfarna daga og fór frostið mest niður í sex gráður. Frosnar blárberjaplöntur í Flórída-fylki.AP Á meðan var hitinn hérlendis um þrjár gráður samkvæmt The U.S. Sun.
Veður Bandaríkin Skíðaíþróttir Skíðasvæði Mest lesið Geirdís geti leitað á tjaldsvæði og greitt markaðsverð Innlent Húðlæknir bregst við brúnkutískunni Innlent „Þú getur ekkert forðað þér, það verður bara að takast á við þetta“ Innlent „Afleiðingarnar muni vara í einhver ár jafnvel“ Erlent Bandaríkjastjórn lokar á aðgang erlendra ríkisborgara Innlent Þremur skemmtistöðum lokað í sameiginlegum aðgerðum Innlent „Okkur er gert að vera áfram í drullusvaðinu á Sævarhöfða“ Innlent Kominn með nóg af tímasetningu lögreglu Innlent Áfall fyrir bæjarfélagið Innlent Fleiri hlynntir en andvígir samkvæmt nýrri könnun Innlent Fleiri fréttir Sólin sleikir landsmenn Áfram bongó í kortunum og nú um allt land „Gegnumgangandi bongó um helgina“ Hitinn náði yfir tuttugu stig Möguleiki á að hiti fari yfir tuttugu stig í höfuðborginni Möguleiki á tuttugu stiga hita Útlit fyrir besta dag sumarsins á föstudaginn Skúrir víða um land og lægð nálgast austurströnd „Mjög venjulegt sumarveður“ Þónokkrar lægðir stýra veðrinu næstu daga Rigning öðru hverju Hitinn gæti náð fimmtán stigum á Sjómannadaginn Milt veður um helgina Nokkuð vætusamt og þungbúið en milt veður Allnokkrar smálægðir að hringsóla í grennd við landið Skýjað og víða skúrir Þungbúið og svalt austantil Hæg breytilegt átt en hiti allt að fimmtán stig Víða rigning með köflum og slydda eða snjókoma til fjalla austanlands Áfram snjór austantil og þæfingsfærð á Fjarðarheiði Gular viðvaranir vegna snjókomu Skúrir víða um land með strekkingi en lægir í kvöld Úrkomulítið sunnanlands en skúrir á Austurlandi Fólki ráðlagt að fylgjast vel með veðurspám Suðvestanátt með skúrum í dag Austanátt og úrkomulítið Lægðadrag nálgast landið með rigningu og súld Milt, bjart og hlýtt á Suðvesturlandi í dag Allt að tólf stiga hiti í dag og gæti náð sextán stigum á morgun Stöku skúr síðdegis sunnan- og vestanlands Sjá meira