Rigning, rigning, rigning Bjarki Sigurðsson skrifar 22. september 2026 06:54 Vel varðir túristar frá íslenskri rigningu. Vísir/Vilhelm Það gengur í suðvestan tíu til átján metra á sekúndu í dag. Víða skúrir, en þurrt að mestu á Austurlandi. Hiti 7 til 15 stig, hlýjast austanlands. Dregur úr vindi í kvöld.
Á morgun eru áfram skúrir, en bjart að mestu á Norðaustur- og Austurlandi. Landsmenn ættu að finna til pollagallana þar sem næstu daga virðist fátt annað en rigning í kortunum, fyrir utan um helgina þegar tekur að snjóa á hálendinu. „Lægð vestur af landinu stjórnar veðrinu hjá okkur í dag. Það gengur suðvestan stinningskalda eða allhvassan vind, fyrst á sunnanverðu landinu. Skúrir, einkum sunnan- og vestantil. Hiti á bilinu 7 til 15 stig, hlýjast á Austurlandi,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofunnar. Lægðin muni hreyfast lítið en grynnast smám saman. Suðvestanáttin verði hægari á morgun, skúrirnar efnisminni og að mestu léttskýjað norðaustan- og austanlands. „Næsta lægð er síðan væntanleg upp að suðurströndinni á fimmtudag. Þá er spáð austan- og norðaustan hvassviðri eða stormi með talsverðri rigningu, en mikilli úrkomu á Austfjörðum og Suðausturlandi.“ Veðurhorfur á landinu næstu daga: Á miðvikudag (haustjafndægur):Suðvestan 5-15 m/s, hvassast við vesturströndina. Víða skúrir, en bjart að mestu á Norðaustur- og Austurlandi. Hiti 7 til 12 stig að deginum, mildast norðaustantil.Á fimmtudag:Gengur í austan og norðaustan 13-23 með rigningu, hvassast sunnantil. Talsverð úrkoma á Suðausturlandi og Austfjörðum. Dregur úr vindi seinnipartinn. Hiti 5 til 10 stig.Á föstudag:Norðan 13-20 norðvestantil og rigning eða slydda. Hægari vindur annars staðar og víða dálitlar skúrir. Hiti 3 til 11 stig, svalast á Vestfjörðum.Á laugardag:Norðlæg eða breytileg átt. Rigning eða slydda norðanlands, en stöku skúrir syðra. Hiti breytist lítið.Á sunnudag og mánudag:Norðanátt og rigning eða slydda, en þurrt að mestu sunnan heiða. Hiti 3 til 9 stig.
Veður Mest lesið Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Innlent Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Erlent Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Innlent Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Innlent Skikkaður í varðhald í tengslum við manndráp í Breiðholti Innlent Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Erlent Hafna nær öllum sem vilja troða upp á Airwaves Innlent Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Innlent Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Innlent Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur Innlent Fleiri fréttir Hlýtt en vætusamt veður í kortunum næstu daga Víða kaldi og skúrir Víðáttumikil lægð sem grynnist smám saman Gular viðvaranir en svo fremur milt í veðri Gefa út gular veðurviðvaranir Tvær lægðir á leiðinni Veðrið ætti ekki að spilla hrekkjavöku eins og í fyrra Blautur dagur í flestum landshlutum Lægðin fyrr á ferðinni Norðan kaldi og snjókoma til fjalla Lægðardrag á leiðinni Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Krapi og hálkublettir víða Skafið og saltað Engar viðvaranir Lá á þakplötu þegar hann hringdi í Neyðarlínuna Varar við ferðum milli Hafnar og Djúpavogs Gul skriðuviðvörun á Ströndum og Vestfjörðum Áfram blautt og hvasst með gulum viðvörunum Gæti komið til lokana með stuttum fyrirvara Stormur með talsverðri rigningu síðdegis í dag Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Talsverð rigning næstu daga Fylgstu með lægðinni í beinni Viðvaranir á viðvaranir ofan Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Skúrir og rigning en léttir til er líður á daginn Suðaustan stormur og gul viðvörun Milt og blautt í dag Allmikil lægð þokast meðfram landinu Sjá meira