Frístundastarf mikilvæg stoð í menntakerfi Reykjavíkurborgar Steinn Jóhannsso og Soffía Pálsdóttir skrifa 2. febrúar 2026 12:01 Frístundaheimili og félagsmiðstöðvar skipa stóran sess í lífi barna og unglinga í Reykjavík. Borgin hefur um árabil verið í forystu í þróun frístundastarfs og byggt upp faglegt starf sem nær til stórs hluta barna og unglinga. Árangurinn byggir á markvissri stefnu og öflugum mannauði sem hefur velferð barna að leiðarljósi. Frístundastarf skiptir börn og unglinga miklu máli, enda fer þar fram þjálfun í grunnfærni sem nýtist þeim alla ævi. Þar er lögð áhersla á að efla félagsfærni, styrkja sjálfsmynd, auka þátttöku og lýðræðisvitund, rækta ábyrgð og styðja við heilbrigðan lífsstíl. Alþjóðlegar langtímarannsóknir sýna að börn og unglingar sem taka þátt í skipulögðu frístundastarfi upplifa meiri vellíðan, standa sig betur félagslega og eru síður líkleg til að hverfa frá námi en þau sem ekki taka þátt¹. Rannsóknir sýna jafnframt að frístundastarf gegnir mikilvægu hlutverki í forvörnum. Í umfangsmikilli rannsókn breskra stjórnvalda kom fram að þegar dregið er úr félagsmiðstöðvastarfi aukast líkur á neikvæðum samfélagslegum afleiðingum². Slíkar niðurstöður undirstrika að frístundastarf er mikilvæg samfélagsleg fjárfesting. Þessar niðurstöður endurspeglast einnig í íslensku samfélagi. Frístundaheimili og félagsmiðstöðvar eru lykilvettvangur fyrir félagsþroska, sjálfsmynd og vellíðan barna og unglinga og starfsfólk gegnir þar veigamiklu hlutverki sem fyrirmyndir og stuðningsaðilar³ og 4. Starfsemi frístundaheimila og félagsmiðstöðva mætti með réttu kalla þriðju stóru stoðina í menntakerfi borgarinnar. Slíkt starf verður ekki gæðastarf nema því stýri hæfir leiðtogar með menntun í tómstunda- og félagsmálafræðum. Mikill mannauður og starfsánægja einkennir starfsemi frístundastarfsins í Reykjavík og eru lykilforsendur þess að börn og unglingar fái að blómstra á eigin forsendum í öruggu og uppbyggilegu umhverfi. Við höfundar hvetjum fólk til að kynna sér störf í boði í frístundaheimilum og félagmiðstöðum þar sem starfsfólkið eins og börnin blómstra á eigin verðleikum. Í kraftmiklu skóla- og frístundastarfi öðlast börn og unglingar menntun og reynslu til að láta drauma sína rætast og hafa jákvæð áhrif á umhverfi og samfélag. Höfundar: Steinn Jóhannsson sviðsstjóri skóla- og frístundasviðs Reykjavíkur og Soffía Pálsdóttir skrifstofustjóri frístundamála hjá skóla- og frístundasviði Reykjavíkur. Youth clubs improve teens’ health, wellbeing and education. Understanding Society / DCMS (2024). Youth provision and life outcomes: A study of the local impact of youth clubs. Breska menningarráðuneytið (2024). Kolbrún Þ. Pálsdóttir. Care, learning and leisure: The organisational identity og after-school centers for six to nine-year old children in Reykjavík (2012) Eygló Rúnarsdóttir. „Maður lærir líka að vera góður“. Sýn unglinga á félagsmiðstöðvar og eigin þátttöku í starfi þeirra (2011) Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Frístund barna Reykjavík Steinn Jóhannsson Mest lesið Halldór 5.9.2026 Halldór Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? jóhann Rúnar Pálsson skrifar Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Milljón hugmyndir, hundrað tímamót Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Fjórða valdið? En það ert þú! Þorsteinn J. Vilhjálmsson skrifar Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson skrifar Skoðun Hvers eiga börnin að gjalda? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson skrifar Skoðun Þegar öll hafa svörin skiptir hugsunin mestu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason skrifar Skoðun Þýsklendingar á meðal vor Darri Eyþórsson skrifar Skoðun Þöllin á þorpinu Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Þjóðin sagði nei. En „látum eins og ekkert sé…” Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Málshraðasögur Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Búrkuball í inngildingarviku Þórarinn Hjartarson skrifar Skoðun Þjóðaratkvæðgreiðslan: Aðild að Evrópusambandinu hafnað Kristinn H. Gunnarsson skrifar Skoðun Blekking litla samfélagsins Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Farsælt samstarf sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í 50 ár Páll Björgvin Guðmundsson skrifar Skoðun Bókun 35: Munurinn á stjórnarskrá Noregs og Íslands Júlíus Valsson skrifar Skoðun Kærleikur er pönk Guðný Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Er kostnaðurinn einskis virði? Hrafn Gunnarsson skrifar Sjá meira
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar
Skoðun Farsælt samstarf sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í 50 ár Páll Björgvin Guðmundsson skrifar