Dómari krefst þess að Liam og föður hans verði sleppt úr haldi Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 31. janúar 2026 23:08 Myndin af Liam hefur vakið athygli og óhug út um allan heim. Columbia Heights Public Schools Alríkisdómari hefur farið fram á að hinum fimm ára gamla Liam Conejo Ramos og föður hans verði sleppt úr haldi ICE-liða. Mynd af drengnum leiddum í bíl ICE með bláa kanínuhúfu á höfðinu og Köngulóarmannsbakpoka hefur vakið mikla reiði vestanhafs.
Liam og Adrian faðir hans hafa verið í haldi ICE frá því að þeir voru teknir fastir 20. janúar síðastliðinn þegar Liam kom heim úr leikskólanum. Þeir voru fluttir frá heimili sínu í úthverfi Minneapolis-borgar í sérstaka „fjölskyldufangageymslu“ í Texas-ríki þar sem þeir hafa dvalið í um viku. Í úrskurði dómara við héraðsdóm sem Minnesota-ríki heyrir undir er kveðið á um að feðgarnir verði látnir lausir tafarlaust. Fred Biery dómari var ómyrkur í máli í áliti sínu og sagði aðgerðir bandarísku ríkisstjórnarinnar í hrópandi mótsögn við anda sjálfstæðisyfirlýsingar Bandaríkjanna. Hann lét ekki þar við liggja heldur vitnaði einnig til varnaðarorð Thomas Jefferson þriðja forseta Bandaríkjanna um ógnina sem stafar af alræði og tveggja guðspjalla í leiðinni. „Mál Liams má rekja til illa ígrundaðra og vanhæfra tilrauna stjórnvalda til að ná daglegum brottvísunarkvótum, jafnvel þótt það krefjist þess að valda börnum áföllum. Athugun á atferli manna staðfestir það að innra með sumum okkar á taumlaus valdafýsn og grimmd engin mörk,“ segir í úrskurðinum að því er fram kemur í umfjöllun CNN. Dómarinn segir þó vel mega vera að feðgunum verði vísað af landi brott vegna „forneskjulegrar“ útlendingalöggjafar Bandaríkjanna en að verði svo að vera skuli mál þeirra fara eftir skipulegum og mannúðlegum leiðum.
Bandaríkin Innflytjendarassíur ICE í Bandaríkjunum Mest lesið Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Bæjarstjóri Ölfuss segir múslima „valda skaða“ Innlent „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Innlent „Ég er ekkert að ýja að því, ég er bara að segja það fullum fetum“ Innlent Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Innlent „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Innlent Brikk lokað í óákveðinn tíma Innlent Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Innlent „Það er sitthvað til í því sem hann er að segja“ Innlent Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Neytendur Fleiri fréttir „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Sjá meira