Stöðvaði líkamsárásina við Aktu taktu Eiður Þór Árnason skrifar 31. janúar 2026 14:45 Anton Sveinn McKee, formaður Ungra Miðflokksmanna og fyrrum sundkappi. Vísir/Einar Anton Sveinn McKee, Íslandsmethafi í sundi og formaður Ungra Miðflokksmanna, steig inn í þegar ungmenni réðust á mann við strætóbiðskýli nærri Aktu taktu í Garðabæ við miðnætti í gær.
Málið er til rannsóknar hjá lögreglu sem stórfelld líkamsárás og var einn handtekinn vegna þess í gær en honum sleppt að lokinni yfirheyrslu. „Ég stíg inn á milli til að vernda fórnarlambið sem er að lenda í árásinni og gerði mitt til að koma í veg fyrir að árásin myndi halda áfram þangað til lögregla skarst í leikinn,“ segir Anton í samtali við fréttastofu. Hann hafi strax hringt á lögreglu og beðið með fórnarlambinu þar til laganna verðir komu á vettvang við strætóskýlið á móti veitingastað Aktu taktu. Anton segir að enginn hafi flúið vettvang og árásarmaður í raun gert sig líklegan til að láta höggin dynja á ný. „Hann var með ögrandi tilburði og ætlaði að halda áfram. Ég náði að róa hann en maður var undirbúinn fyrir það að hann myndi ráðast á mig líka.“ Sá hafi á einum tímapunkti ætlað að stíga í áttina að kærustu Antons sem var með í för en hann gert sitt til að koma í veg fyrir það. „Það voru engin frekari átök milli okkar. Ég gerði bara mitt til að vernda manninn.“ Fleiri ungmenni hafi verið viðstödd árásina en einn verið mest ögrandi eftir að Anton kom á staðinn. Skilur ekki hvers vegna enginn annar steig inn í Anton átti leið hjá árásinni eftir nálægt miðnætti í gær og grunaði fljótlega að um einhvers konar slagsmál væri að ræða. „Ég var bara að keyra framhjá og tók eftir því að það var hópur af unglingum og einhver lá á jörðinni en ég var ekki alveg viss hvað ætti sér stað. Þannig að ég ákvað að taka annan hring til þess að vera viss um að ég skildi hvað var í gangi þarna,“ segir Anton. Þegar hann kannaði málið nánar hafi verið augljóst hvað var á seyði. „Það liggur maður þarna á jörðinni og það var verið að berja hann í stöppu. Manni náttúrulega bara stendur ekki á sama og hann var algjörlega, algjörlega varnarlaus á götunni og bara lá á miðri götu. Þannig ég ákvað að stöðva bílinn og gera mitt sem samfélagsþegn til að koma í veg fyrir að það yrði algjörlega gengið frá honum.“ Anton harmar að enginn hafi verið búinn að skerast fyrr í leikinn og nefnir að fjöldi ökumanna hafi átt leið hjá á þessum tíma. „Ætli það sé ekki fyrst og fremst leiðinlegt að náungakærleikurinn sé bara algjörlega farinn úr íslensku samfélagi. Ég veit ekki hversu margir bílar keyrðu þarna fram hjá og ég þurfti að taka auka hring til þess að keyra þarna fram hjá og stoppa. Það er eitthvað skrítið í gangi í íslensku samfélagi ef náungakærleikurinn er kominn svona langt niður.“ Fréttin er í vinnslu.
Lögreglumál Mest lesið „Koma einhverjir strákar og svo fer allt í háaloft“ Innlent „Liggur maður þarna á jörðinni og það var verið að berja hann í stöppu“ Innlent „Dorrit og eiginmaður hennar frá Íslandi eru hér“ Innlent Fjöldi ásakana um brot gegn barnungum stúlkum Erlent „Erum rétt byrjuð að sjá ofan í þennan forarpytt“ Erlent Mette-Marit biðst afsökunar á tengslum sínum við Epstein Erlent „Mjög áhugaverð umræða“ Innlent Björg sökuð um brot á kosningareglum Viðreisnar Innlent Nýbirt skjöl varpa ljósi á dánarstund Epstein Erlent Fífldjarft að fara í formanninn en varaformannsembættið...? Innlent Fleiri fréttir Björg sökuð um brot á kosningareglum Viðreisnar Blótað í Grindavík á nýjan leik Vaktin: Viðreisn velur oddvita „Liggur maður þarna á jörðinni og það var verið að berja hann í stöppu“ Vilja Hjallastefnugrunnskóla í Árborg Skjálftinn í Bárðarbungu 5,3 að stærð Rýnt í Epstein-skjölin, prófkjör Viðreisnar og árás ungmenna „Koma einhverjir strákar og svo fer allt í háaloft“ Fjórðungur kosið í prófkjöri Viðreisnar Maður hlotið stórfellt líkamstjón eftir árás ungmenna „Dorrit og eiginmaður hennar frá Íslandi eru hér“ „Mjög áhugaverð umræða“ Þúsundir kvartana vegna leigubílaaksturs en fagnar breytingum Breki Atlason gefur kost á sér á lista Miðflokksins Skjálfti fannst í Hveragerði Jói Fel málar með puttunum „Voðalega eru Íslendingarnir peppaðir“ Vísar því á bug að HSÍ fái ekkert fyrir sinn snúð Handboltaveisla í beinni, málsvörn olíufélaga og fögnuður leigubílstjóra Forsætisráðherra muni alltaf hafa samráð við forseta Rannsókn vegna Deildu.net hætt tíu árum frá kæru Ríkisstjórnin rugli og olíufélögin ekki sökudólgurinn Betri að innleiða tilskipanir en verri að innleiða reglugerðir Segir um að ræða alvarlega aðför að sjálfstæði forseta Íslands Hitni undir olíufélögum sem þurfi að passa sig Stórleikurinn riðlar dagskrá margra Afar sérstakt að lækka laun og það á verkalýðsdaginn sjálfan Kristrún ræðir verðbólguna og allt á suðupunkti fyrir leikinn í kvöld Aldrei verið gefnar út fleiri rauðar viðvaranir Finnist hvergi eins sterk skilyrði til umhverfisverndar í lagareldi Sjá meira