Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 30. janúar 2026 13:58 Peningastefnunefnd Seðlabankans kynnir ákvörðun sína næsta miðvikudag. Vísir/Vilhelm Greiningardeildir Íslandsbanka og Landsbanka eru ósammaála í spám sínum um stýrivaxtaákvörðun Seðlabankans. Íslandsbanki spáir óbreyttum stýrivöxtum en Landsbankinn spáir 0,25 prósentustiga hækkun.
Peningastefnunefnd Seðlabankans mun kynna næstu vaxtaákvörðun bankans næsta miðvikudag 4. febrúar. Stýrivextir bankans eru nú í 7,25 prósentum og lækkaði um 0,25 prósentur síðast eftir hálfs árs hlé á vaxtalækkunarferlinu sem staðið hafði frá haustdögum 2024. Líkt og venja er spá greiningardeildir bankanna fyrir um ákvörðun Seðlabankans. Þrátt fyrir allt á hreinu verðbólgumarkmiði Greiningardeild Íslandsbanka spáir líkt og áður segir óbreyttum stýrivöxtum. Segir í tilkynningu að þó greinileg kólnunarmerki séu víða í hagkerfinu og skammtíma hagvaxtarhorfur hafi daprast leggi þrálát verðbólga og óhagstæðar verðbólguvæntingar stein í vaxtalækkunargötu bankans um þessar mundir. „Bankinn er þrátt fyrir allt á hreinu verðbólgumarkmiði og tekur á endanum aðeins tillit til lakari efnahagshorfa og aukins slaka að því marki sem verðbólguþrýstingur minnkar og verðbólguvæntingar lækka vegna þess,“ segir í tilkynningunni. Spáir Íslandsbanki 0,6 prósent hagvexti í ár og segir að ekki þurfi mikið út af bregða svo vöxturinn snúist í samdrátt. Tvær ástæður séu helst fyrir hægum hagvexti, bakslag í ýmsum útflutningsgeirum og áhrif þess bakslags og hárra raunvaxta á innlenda eftirspurn, ekki síst fjárfestingu sem trúlega muni skreppa nokkuð saman í ár. „Við spáum því að Seðlabankinn haldi stýrivöxtum óbreyttum þar til verðbólga fer að hjaðna að marki á ný. Teljum við, þrátt fyrir vangaveltur okkar hér að ofan, að vaxtalækkunarferlið hefjist á ný á vordögum 2026 og varfærin vaxtalækkunarskref verði stigin fram á mitt ár 2027. Hins vegar hefur óvissa aukist um hvort bankinn sjái sér fært að lækka vexti fyrir mitt ár aukist eftir verðbólgutölur janúarmánaðar. Nokkrar líkur eru þannig á að vaxtalækkunarferlið bíði fram yfir mitt ár.“ Undirliggjandi verðþrýstingur enn til staðar Í tilkynningu á vef Landsbankans segir greiningardeild bankans spá því að peningastefnunefnd hækki stýrivexti um 0,25 prósentustig. Nefndin muni á fundi sínum einnig fjalla um möguleika á að halda stýrivöxtum óbreyttum. „Verðbólga jókst umfram væntingar í janúar og mældist 5,2%. Aukin verðbólga í janúar skýrist að mestu leyti af hækkun opinberra gjalda, en þó ekki einungis. Mælingin ber þess einnig merki að undirliggjandi verðþrýstingur er enn til staðar. Ekki hefur tekist að draga úr verðbólguvæntingum og kaupmáttaraukning heldur áfram að skila sér í aukinni neyslu.“ Greiningardeildin segir sterk rök vera fyrir hækkun stýrivaxta. Verðbólga hafi ekki mælst hærri síðan í september 2024. „Þó rekja megi stóran hluta verðbólguaukningar síðustu tvo mánuði til skatta og gjaldskrárhækkana opinberra stofnana, þá er það ekki eina ástæðan. Innlendar vörur hafa hækkað um rúmlega 7% síðasta árið og þjónustuverðbólga hefur einnig aukist töluvert umfram verðbólgu. Það bendir til þess að kostnaðarhækkunum, meðal annars vegna launahækkana, hefur verið velt út í verðlag. Þá hefur ársbreyting allra kjarnavísitalna einnig hækkað og er vel yfir verðbólgumarkmiði. Sterkt gengi virðist þó hafa vegið á móti innlendum verðhækkunum og auk þess hefur hægt á hækkunum á reiknaðri húsaleigu.“
Seðlabankinn Landsbankinn Íslandsbanki Mest lesið Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Getur ekki lengur orða bundist Viðskipti innlent „Stærsta tölvuinnbrot sögunnar“ hjá rafmyntarisa Viðskipti erlent Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Viðskipti innlent Bláa lónið á markað í nóvember Viðskipti innlent Svipmyndir úr Hörpu: Framúrskarandi fyrirtækjum fagnað Framúrskarandi fyrirtæki Tekjur Nova í hæstu hæðum Viðskipti innlent Gervigreindin: „Fólki fannst eins og ég væri að koma úr framtíðinni“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Sjá meira