Nýja kvótakerfið hennar Hönnu Katrínar Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir skrifar 29. janúar 2026 14:00 Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra heldur því fram að frumvarp hennar til laga um lagareldi sé ekki kvótakerfi. Annað hvort skilur hún ekki eigið frumvarp eða að hún er einfaldlega að segja ósatt.Í frumvarpinu skiptir ekki máli hvaða orð eru notuð, heldur aðeins hvernig frumvarpið mun virka í reynd verði það að lögum!Ok…Frumvarpið setur hámark á heildarframleiðslu (lífmassa) eftir svæðum.Þeim lífmassa er síðan skipt upp og úthlutað til einstakra fyrirtækja, sem ekki mega fara fram úr sínum hluta.Nýir aðilar komast ekki að: nema með nýrri úthlutun ríkisins.Þetta er einfaldlega, kvótakerfi: ríkið ákveður hver má framleiða, hversu mikið og hvar.Að halda því fram að þetta sé ekki kvótakerfi vegna þess að orðið „kvóti“ er ekki notað,er einfaldlega ekki satt!!!Þegar framleiðsla er hámarksett, henni skipt upp og úthlutað af stjórnvöldum, er verið að búa til kvóta — sama hvað kerfið er kallað.Réttmæt er sú gagnrýni sem fram hefur komið að frumvarpið muni í reynd þjóna hagsmunum fárra stórra aðila, jafnvel aðeins fjögurra fyrirtækja í sjávarútvegi sem sum eru að hluta í eigu erlendra aðila.Ef úthlutun mun byggjast á núverandi stöðu í íslenskum sjávarútvegi eru það þeir aðilar sem þegar eru inni í kerfinu sem hagnast. Smærri fyrirtæki og nýir aðilar verða útilokaðir nema með pólitískri ákvörðun eða kaupum á réttindum.Ef fólk vill skilja hvers vegna frumvarpið er sett fram með þessum hætti, ætti það jafnframt að spyrja: hverjir munu hagnast? “Follow the money!”Hvaða fáu hendur munu njóta góðs af?Þá verður skýrt fyrir hvern ráðherrann, Hanna Katrín Friðriksson, er raunverulega að vinna! Hún er samt á launum hjá okkur,muniði!Í landi með langa og sára reynslu af kvótakerfum ættu stjórnvöld að tala um sjávarútvegsmál svo allir landsmenn skilji.Í landi með langa og sára reynslu af kvótakerfum er eðlilegt að krefjast heiðarleika af stjórnmálamönnum þegar auðlindir okkar eru undir.Í landi með langa og sára reynslu af kvótakerfum munu Íslendingar vitanlega hafna þessu frumvarpi verði þeir yfirleitt spurðir.Ath! Frumvörp verða að lögum. Lagagreinar vega þyngra en yfirlýsingar ráðherra í fjölmiðlum.Andvaraleysi okkar er því ábyrgðarleysi.P.s Það er frábært, skiljanlegt og mikilvægt að erlendir aðilar gagnrýni þetta frumvarp Hönnu Katrínar og jákvæð sönnun þess að margir fylgjast með þróun umhverfismála hér. Ekki veitir okkur af stuðningnum. Það fyrirfinnast nefnilega manneskjur og fyrirtæki í heiminum sem bera kennsl á raunveruleg verðmæti Íslands í heiminum: Ósnortna náttúruna. En Hanna Katrín segist tortryggja ábendingar erlendra aðila enda talar frumvarpið ,,hennar” máli. Máli þeirra sem munu á endanum , fáist frumvarpið samþykkt, umbuna sömu, Hönnu Katrínu, fyrir að ganga erinda sérhagsmuna þvert á hagsmuni landsmanna.————-Þetta lagareldissfrumvarp er enn verra fyrir landsmenn en frumvarp VG ef fólk vill bera þau saman. Höfundur er leikkona. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir Fiskeldi Sjókvíaeldi Stjórnsýsla Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Hin drepleiðinlega Bókun 35 Helgi Hrafn Gunnarsson Skoðun Ísland: Þessi sigur jaðrar við kraftaverk Carl Baudenbacher Skoðun Ekki leggja þjóðinni orð í munn Anna Margrét Bjarnadóttir Skoðun Barnið sem mælikvarðinn sér ekki Rebekka Rafnsdóttir Skoðun Goðarnir fóru aldrei – þeir skiptu bara um nafn Ragnar Thorarensen Skoðun Pólitísk ábyrgð hlýtur að hafa afleiðingar Erna Bjarnadóttir Skoðun Utanríkisráðherra setur EES-samninginn í uppnám Gunnar Bragi Sveinsson Skoðun Hvernig hefurðu það? Carmen Maja Valencia Skoðun Af klósettferðum og frelsinu til að njóta almannarýmis Eva Dögg Sigurðardóttir Skoðun Forstjóri CIA heimsækir Moskvu Arnór Sigurjónsson Skoðun Skoðun Skoðun Hafa íslensku lífeyrissjóðirnir staðið sig nógu vel? Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Eigum við að borga það? Gréta Ingþórsdóttir skrifar Skoðun Pólitísk ábyrgð hlýtur að hafa afleiðingar Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar Alþingi er beygt í duftið Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Sammála – leggjum þjóðinni ekki orð í munn Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Goðarnir fóru aldrei – þeir skiptu bara um nafn Ragnar Thorarensen skrifar Skoðun Hin drepleiðinlega Bókun 35 Helgi Hrafn Gunnarsson skrifar Skoðun Spírallinn Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun „Að tilheyra“, tækifæri til að styðja fyrr við unga fólkið okkar Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Barnið sem mælikvarðinn sér ekki Rebekka Rafnsdóttir skrifar Skoðun Er landsbyggðin hluti af lausninni? Hildur Sólveig Sigurðardóttir skrifar Skoðun Netöryggi snýst líka um að þora að segja frá Margrét V. Helgadóttir skrifar Skoðun Fortíðin vann Baldur Johnsen skrifar Skoðun Getur maður verið rasisti án þess að gera sér grein fyrir því? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Ekki leggja þjóðinni orð í munn Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Hvernig hefurðu það? Carmen Maja Valencia skrifar Skoðun Minna kerfi, betri þjónusta Róbert Ragnarsson skrifar Skoðun Forstjóri CIA heimsækir Moskvu Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Trump lítið annað en hvíslari í leikritinu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ísland: Þessi sigur jaðrar við kraftaverk Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Af klósettferðum og frelsinu til að njóta almannarýmis Eva Dögg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir skrifar Skoðun Utanríkisráðherra setur EES-samninginn í uppnám Gunnar Bragi Sveinsson skrifar Skoðun Þjóðin sagði nei – megum við þá ganga frá eftir okkur? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Foreldrar og þjálfarar: Hvar liggja mörkin? Ragna Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin tapaði – og ætti að segja af sér Eldur Smári Kristinsson skrifar Skoðun Eigum við ekki bara að taka til heima hjá okkur? Guðjón Idir skrifar Skoðun Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson skrifar Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson skrifar Sjá meira
Skoðun „Að tilheyra“, tækifæri til að styðja fyrr við unga fólkið okkar Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar
Skoðun Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir skrifar