Verður staðartónskáld Sinfó Atli Ísleifsson skrifar 29. janúar 2026 11:08 Hugi Guðmundsson. Sinfó Hugi Guðmundsson hefur verið útnefndur staðartónskáld Sinfóníuhljómsveitar Íslands og mun hann gegna stöðunni starfsárin 2026-27 og 2027-28.
Í tilkynningu segir að Hugi hafi fyrir löngu skipað sér í röð athyglisverðustu tónskálda þjóðarinnar. „Hann lærði tónsmíðar við tónfræðadeild Tónlistarskólans í Reykjavík, Konunglega danska tónlistarháskólann og raftónlist við Sonology stofnunina í Haag. Hugi hefur hlotið fjölda verðlauna og viðurkenninga, jafnt innanlands sem á alþjóðlegum vettvangi. Þar á meðal eru Íslensku tónlistarverðlaunin, sem hann hefur unnið fimm sinnum. Verk Huga hafa í þrígang verið tilnefnd til Tónlistarverðlauna Norðurlandaráðs og hlotið viðurkenningu á alþjóðlega tónskáldaþinginu Rostrum. Hugi hlaut nýverið starfslaun til 12 mánaða úr Launasjóði tónskálda. Sem staðartónskáld Sinfóníuhljómsveitar Íslands mun Hugi semja fjögur hljómsveitarverk af ólíkum toga. Hann mun eiga verk á fyrstu áskriftartónleikum næsta tónleikaárs sem frumflutt verður undir stjórn Barböru Hannigan, en þetta eru jafnframt fyrstu tónleikar hennar eftir að hún tekur við stöðu aðalhljómsveitarstjóra og listræns stjórnanda Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Þá vinnur Hugi að konsert fyrir Barböru Hannigan sem verður frumfluttur á tónleikum í maí 2027 þar sem hún verður bæði í hlutverki einsöngvara og hljómsveitarstjóra. Hugi vinnur einnig að tveimur tónverkum sem Sinfóníuhljómsveit Íslands frumflytur starfsárið á 2027-28,“ segir í tilkynningunni. „Fyrir um tveimur árum síðan var ég í samtali við SÍ og Barböru Hannigan og fann strax fyrir miklum áhuga á mögulegu samstarfi. Það kom samt ánægjulega flatt upp á mig þegar þau viðruðu hugmynd að enn stærra samstarfi, í formi staðartónskálds hljómsveitarinnar. Ég var 16 ára þegar ég keypti mína fyrstu áskriftarröð hjá SÍ og hljómsveitin átti stóran þátt í tónlistaruppeldi mínu og í að móta mig sem tónlistarunnanda. Ég hef áður unnið með hljómsveitinni og veit hvaða frábæra mannauð hún hefur að geyma og hlakka þess vegna gríðarlega til komandi samstarfs með Barböru Hannigan og hljómsveitinni allri í þeim spennandi verkefnum sem framundan eru,“ er haft eftir Huga. Þá er í tilkynningunni haft eftir Guðna Tómassyni, framkvæmdastjóra Sinfóníuhljómsveitar Íslands, að að heyra ný íslensk tónverk verða til í meðförum þjóðarhljómsveitarinnar sé sérlega gleðilegt og spennandi. „Það er líka algjörlega frábært að geta leitt þau saman til samstarfs, Barböru Hannigan og Huga, og ég hlakka mikið til að heyra hvað fæðist úr því samstarfi. Vonandi mun tónlistin sem þarna verður til ná að fljúga hátt og víða. Metnað, vandvirki og mikla hæfileika er víða að finna í íslenskri samtímatónlist og tónheimur Huga Guðmundssonar er frábært dæmi um það.“
Vistaskipti Sinfóníuhljómsveit Íslands Harpa Menning Tónlist Mest lesið Hnýta í Trump í nýrri herferð: „Velkomin til skítalands“ Lífið Níutíu og einn meistari útskrifaðist Lífið Nýjar upplýsingar um morðið á Hrafnhildi Lilju átján árum síðar Lífið Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“ Lífið Andri Snær keppir við Elizabeth Holmes Lífið Hrekkjavökukort sem sé drifið áfram af samfélaginu Lífið Biðjast afsökunar og kippa umdeildum þáttum úr birtingu Bíó og sjónvarp „Ég hef þurft að læra að lifa með því sem ekki verður breytt“ Lífið samstarf Halla bað sáran áhrifavald um að ofgera sér ekki fyrir samfélagsmiðla Lífið Skemmtileg leið til að halda minningunni á lífi Menning Fleiri fréttir Fjórðungur ekki með bókasafnskort Skemmtileg leið til að halda minningunni á lífi Hlátrasköll hjá heitum hönnuðum Hlýtur Vigdísarverðlaunin 2026 Ofurfyrirsæta blæs nýju lífi í Life-tímaritið Í fyrsta sinn utan Úkraínu Ragnheiður Harpa hlaut Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar Gengst við dulnefninu en vill samt ekki kannast við það Hilmir Snær svarar gagnrýnendum „Borgarstjórnarmeirihlutanum er ekki viðbjargandi“ Ótrúleg saga fólks sem valdi mildi og mannúð í stað reiði Eignaðist barn, missti ömmu sína og erfði púðlusafnið Tímamót hjá Árna Má Opna „líklega minnsta“ tveggja hæða gallerý í heimi Norðmenn hrepptu öll verðlaun Norðurlandaráðs Eva Björg verðlaunuð í Frakklandi Stella í orlofi á stóra sviðið Menningarsprautur í hvísluleik Kát á kynfræðslukarnivali Boxar til að halda sjúkdómnum í skefjum Ástfangin pör á Djöflum Eiginmennirnir fá „ahhsonna aðeins“ útreið Anne Carson hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels Bein útsending: Hver hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels? Lækna-Tómas og Ármann skemmtu sér á safninu Sjá meira
Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“ Lífið
Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“ Lífið