Spyr hvort ekki sé tími á að Palestínumenn snúi aftur í friðinn heima Samúel Karl Ólason skrifar 28. janúar 2026 22:23 Jens Garðar Helgason, varaformaður Sjálfstæðisflokksins. Vísir/Vilhelm Jens Garðar Helgason, varaformaður Sjálfstæðisflokksins, velti vöngum yfir því á þingi í dag hvort Palestínumenn sem komið hafa hingað til lands sem flóttamenn fari aftur til síns heima. Kominn væri friður í Palestínu og mikil uppbygging í vændum á Gasaströndinni.
Þetta er meðal þess sem Jens Garðar sagði á Alþingi í dag þar sem frumvarp dómsmálaráðherra um afturköllun alþjóðlegrar verndar síbrotamanna var til umræðu. Hann sagði frumvarpið jákvæða þróun en vildi að gengið yrði lengra. „Ég hef líka velt því fyrir mér, þegar maður hefur hér horft upp á hælisleitendur skvetta málningu á fréttaljósmyndara, skemma eignir stjórnarráðsins eins og ráðuneyti og annað.“ Jens Garðar sagðist velta fyrir sér hvenær hægt yrði að vísa fólki úr landi fyrir slíkt. Sjá einnig: Óttast að útlendingafrumvarpið þjóni ekki tilgangi sínum Jens Garðar sagðist fagna því að Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra, hefði viðrað þá hugmynd í fjölmiðlum að þeir Sýrlendingar sem hefðu komið hingað til lands sem hælisleitendur gætu verið sendir til baka, þar sem aðstæður þar hefðu skánað. „Ég velti því fyrir mér, virðulegi forseti, en hvað með Palestínu, þá Palestínumenn sem hafa komið hér. Nú er kominn friður í Palestínu. Það er verið að skipa svokallaða uppbyggingarnefnd fyrir Gasa. Er ekki kominn tími á að þeir Palestínumenn sem hingað komu, að þeir fari heim aftur til þess að taka þátt í því uppbyggingarstarfi sem er fram undan þar?“ Sjá einnig: Draumur Trumps um „Rivíeru Mið-Austurlanda“ lifir enn Stórir hlutar Gasastrandarinnar eru í rúst og Ísraelar gera enn reglulega árásir þar. Frá því vopnahlé var gert í október hafa hundruð Palestínumanna fallið í þessum árásum og fjölmargir til viðbótar hafa særst. Al Jazeera sagði frá því á dögunum að aðstæðunar á Gasa væru verulega slæmar og að skortur á innviðum hefði leitt til sjúkdóma en fjölmargir íbúar halda til í tjaldbúðum við slæman aðbúnað. Sameinuðu þjóðirnar vöruðu við því í gær að aðstæður fyrir fólkið á Gasa væru enn verulega slæmar, þó búið væri að opna fyrir takmarkað flæði neyðaraðstoðar. Ástandið kæmi sérstaklega niður á börnum. Ísraelskir hermenn halda enn stóru svæði á Gasaströndinni og er nú til umræðu hvernig reyna eigi að afvopna Hamas-samtökin á Gasaströndinni. Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísrael, sagði í dag að herinn stæði frammi fyrir tveimur markmiðum. Afvopnun Hamas og að eyðileggja göng samtakanna á Gasaströndinni. Fyrr myndi uppbyggingin ekki hefjast. Þá ítrekaði hann að Ísraelar ætluðu að stjórna Gasaströndinni og Vesturbakkanum Jens Garðar sagðist einnig vona að brátt kæmist á friður í Úkraínu og þá gætu Úkraínumenn sem hefðu komið hingað einnig snúið aftur.
Alþingi Sjálfstæðisflokkurinn Flóttafólk á Íslandi Palestína Átök í Ísrael og Palestínu Sýrland Úkraína Innrás Rússa í Úkraínu Mest lesið Flugeldaverksmiðja sprakk í loft upp Erlent Báðu um að fá að grafa upp Jónas Hallgrímsson Innlent Fleiri bitnir af hundunum Innlent Enn ekkert spurst til Hákonar Innlent Lítið breyst á fimmtán árum Innlent Höggið verði mikið fyrir ríkisstjórnina segi þjóðin nei Innlent Flugmaður hjá Icelandair opnar bókhaldið Innlent Tvö á slysadeild eftir árás lausra hunda Innlent Vaknaði við hávaða og raddir úr næsta herbergi Innlent Miðvinstristjórn mynduð í Danmörku Erlent Fleiri fréttir Báðu um að fá að grafa upp Jónas Hallgrímsson Lítið breyst á fimmtán árum Flugmenn lagt fram fleytilausn og staðan sögð erfið Höggið verði mikið fyrir ríkisstjórnina segi þjóðin nei Engar vísbendingar um kvikusöfnun en ríflega sjö hundruð skjálftar Fleiri bitnir af hundunum Hagsmunir barna ágætlega tryggðir í „bagalegu óyndisúrræði“ „Þá þurfum við að gera miklu betur“ Flokkur fólksins mælist utan þings Skortur á aðstoð, mótmæli og höggstaður á ríkisstjórn Enn ekkert spurst til Hákonar Stærsti skjálfti á svæðinu síðan 2022 Mótmælendur trufluðu þingfund Má heita Freyjó og Sifjar en ekki Mikhael „Það þarf kjark til að viðurkenna mistök“ Myndataka í lágloftunum vekur athygli Grunaður barnaníðingur í varðhaldi á grundvelli almannahagsmuna Syngjandi dúx Snarpur skjálfti fannst á höfuðborgarsvæðinu Vaknaði við hávaða og raddir úr næsta herbergi Segir Ragnar Þór afhjúpa vanþekkingu á skólastarfi Flugmaður hjá Icelandair opnar bókhaldið „Andrúmsloftið er þungt og það eru allir slegnir“ Andlát á Hólmsheiði og skammtímasamningur á borðinu í flugdeilunni Nafn mannsins sem lést á Hólmsheiði Á fimmta hundrað skjálftar mælst í hrinunni Segir að honum hafi gengið illa að sofna vegna hræðslu Tveggja bíla árekstur á Suðurlandsbraut Tvö á slysadeild eftir árás lausra hunda Engin Icelandair-þota sást á flugsýningunni Sjá meira