Innlit á Litla-Hraun í erlendri heimildarmynd Bjarki Sigurðsson skrifar 27. janúar 2026 20:13 Símar og eggvopn eru meðal gripa sem fangarverðir hafa tekið af föngum, og sýndir eru í heimildarþættinum. Free Documentary Ný þýsk heimildarmynd sýnir frá daglegu lífi fanga og fangavarða á Litla-Hrauni. Meðal fanga sem birtast í myndinni eru dæmdir morðingjar og fangar sem hlotið hafa þunga dóma fyrir gróf ofbeldisbrot.
Lausleg þýðing á nafni þáttarins er: „Á bak við lás og slá: Fangelsið á hjara veraldar“ en hann er hluti af þáttaröð þýska heimildarmyndaframleiðandans Free Documentary um fangelsi heimsins. Hægt er að horfa á þáttinn í heild sinni hér fyrir neðan. Fangavörðum er fylgt eftir og rætt við nokkra fanga, þar á meðal Ingólf Kjartansson sem afplánar átján ára dóm fyrir skotárás við Bergstaðastræti og fyrir að stinga samfanga sinn. Fleiri sem birtast í þættinum eru Maciej Talik, sem situr inni fyrir að stinga herbergisfélaga sinn til bana í Hafnarfirði 2023, Lúkas Geir Ingvarsson, sem afplánar sautján ára dóm vegna Gufunesmálsins, og Marco Blazinic sem var nýverið sakfelldur fyrir stórfelldan fíkniefnainnflutning. „Ég fann fyrir því frá byrjun að þetta færi illa. Ég vissi að eitthvað færi úrskeiðis. Ég hafði það á tilfinningunni. Tveir hundar voru inni í bílnum mínum. Þeir voru að leita en gátu ekki fundið það. En einhverjir bjánar höfðu hringt, sent myndir og þess háttar. Auðvitað fundu þeir það. Þeir vissu að það væri þarna. En svona er þetta bara. Ég nauðgaði engum, ég framdi ekki barnaníð eða slíkt. Við viljum ekki hafa slíkt fólk á okkar gangi,“ segir Marko í þáttunum. Markmið þáttanna er að veita áhorfendum sjaldséða innsýn í þau fjölbreyttu fangelsi sem finna má víða um heim og hversu krefjandi lífið getur verið, bæði fyrir fanga og fangaverði.
Fangelsismál Kvikmyndagerð á Íslandi Árborg Mest lesið Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Innlent Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Erlent Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Innlent Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Erlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Innlent Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Innlent „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Fleiri fréttir Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Sjá meira