Féll eftir tuttugu ára edrúmennsku Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar 26. janúar 2026 12:10 Natasha Lyonne opnaði sig um erfitt fall á dögunum. Araya Doheny/Getty Images Leikkonan Natasha Lyonne opnaði sig upp á gátt á samfélagsmiðlum á dögunum þar sem hún segir frá því að hún hafi fallið eftir tæplega tuttugu ára edrúmennsku. Lyonne, sem fór í meðferð við heróínfíkn árið 2006, segir vonina alltaf vera til staðar.
Natasha Lyonne er fædd árið 1979 og byrjaði sex ára gömul að leika. Hún var sérstaklega vinsæl í kringum aldamótin fyrir hlutverk í költ-kvikmyndunum American Pie og But I'm a Cheerleader og átti svo rosalega endurkomu inn í senuna í hlutverki sínu sem Nicky í verðlaunaþáttunum Orange is the New Black. Þar fór hún með hlutverk fyrrum fíkils á afar sannfærandi hátt en Lyonne þurfti að gangast undir stóra hjartaaðgerð árið 2012 og ber stórt ör á bringunni eftir það. Á föstudagskvöld birti hún einlæga færslu á samfélagsmiðilinn X þar sem hún skrifar meðal annars: „Bataferlið er eitthvað sem fylgir mér alla ævi. Ef einhver þarna úti er að ströggla mundu þá að þú ert ekki ein. Ég er þakklát fyrir alla ástina. Ég ætla að ná tökum á þessu fyrir baby Bambo,“ segir Lyonne en Bambo vísar til kvikmyndar sem Lyonne er að leikstýra og skrifa handrit að um þessar mundir. „Verið hreinskilin, leyndarmálin okkar gera okkur veikari,“ heldur hún svo áfram. „Ef enginn sagði þér það í dag þá elska ég þig. Sama hversu djúpt við sökkvum þá mun reynsla hvers og eins okkar alltaf geta hjálpað öðrum. Haldið alltaf áfram og ekki hætta áður en kraftaverkið gerist. Veggfóðraðu hugann þinn með ást og umhyggju.“ Ef þú eða einhver sem þú þekkir er að glíma við fíknivanda er hægt að leita ráðgjafar hjá SÁÁ samtökunum.
Hollywood Fíkn Mest lesið Sögufrægt verslunarhús til sölu Lífið Hvað veistu um… textana hans Bubba? Lífið Lúpína verði fyrsta stopp fyrir veisluna eða afmælið Tíska og hönnun Stjörnulífið: Undir hárlengingum og bótoxi leynist íslenskur karlmaður Lífið Lést eftir mislukkaða typpastækkun í Taílandi Lífið Hélt allsherjar skilnaðarpartý: „Ég er frjáls“ Lífið Fjórtán manns hita upp fyrir Mos Def í Gamla bíó Tónlist Allir og amma þeirra mættu í þjóðbúningi Tíska og hönnun „Brúðkaup aldarinnar“ hjá Önnu Fríðu og Sverri Lífið Einn mánuður án áfengis breytti öllu Lífið Fleiri fréttir Hvað veistu um… textana hans Bubba? Engin ákvörðun tekin um Eurovision þátttöku Sögufrægt verslunarhús til sölu Hélt allsherjar skilnaðarpartý: „Ég er frjáls“ Lést eftir mislukkaða typpastækkun í Taílandi „Brúðkaup aldarinnar“ hjá Önnu Fríðu og Sverri Stjörnulífið: Undir hárlengingum og bótoxi leynist íslenskur karlmaður Eitt allra krúttlegasta mót ársins Ólíkt hafast þeir að forsetarnir fyrrverandi Einn mánuður án áfengis breytti öllu Krakkatía vikunnar: Pöndur, Instagram og Sveppi Augnablikið þegar fréttastofan sjálf varð að frétt Skrifaði gamanþætti um löggur á meðan hann var sjálfur að leika löggu Myndin tileinkuð mömmu Skrifaði sig í sögubækur Cambridge Fréttatía vikunnar: SÁÁ, pulsa og óharðnaðir unglingar Opnar sig um bótoxnotkunina Skipti máli að börn með krabbamein eigi sinn dag Gísli Marteinn syrgir þrjóskan Vesturbæing „Ætlarðu að lifa eða ætlarðu að deyja?“ Hættir með stefnumótaþættina vinsælu Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Hvað veistu um… London? Öskrandi nýnemar tolleraðir og busaballið handan við hornið Survivor-keppandi missti fót og krefst 100 milljóna dala í skaðabætur Gloria Steinem er látin Annað barn á leiðinni hjá Balta og Sunnevu Er hægt að kaupa hamingju fyrir íslenskar krónur? Greindu frá dánarmeini Tim Curry Eydís Elfa og Óli Gunnar eiga von á öðru barni Sjá meira