„Erfitt að lýsa þessari stemningu sem við náðum upp í vörninni“ Ágúst Orri Arnarson skrifar 25. janúar 2026 19:34 Varnarleikurinn var lykillinn að sigri Íslands gegn Svíþjóð. vísir vilhelm „Mér líður ábælavelbala“ svaraði landsliðsmaðurinn Elliði Snær Viðarsson skælbrosandi þegar hann var spurður út í tilfinningu sem fylgir því að vinna Svíþjóð.
Klippa: Elliði gerir upp frábæran leik við Svía „Við grófum djúpt og fundum góðar lausnir. Einhvern veginn small bara allt saman. Allir sem komu inn áttu góða innkomu. Viktor gjörsamlega frábær. Arnar á frábæra innkomu eftir að hafa setið kaldur á bekknum, varnarlega gjörsamlega frábær. Ýmir var óaðfinnanlegur í dag, það var margt sem small hjá okkur“ sagði hinn hógværi Elliði svo og hrósaði liðsfélögum sínum í hástert. Góður varnarleikur var lykillinn að sigrinum í dag og Elliði átti stóran þátt í því. „Við sýndum bara mikil gæði. Þegar við misstum þá, þá var alltaf einhver kominn til að hjálpa. Það er erfitt að lýsa þessari stemningu sem við náðum upp í vörninni, hún var bara geggjuð.“ Elliði Snær lét líka til sín taka sóknarlega. Stuðningurinn úr stúkunni spilaði líka stóran þátt í sigrinum en íslensku stuðningsmannasveitinni tókst nánast að kaffæra þeirri sænsku í hávaða. „Ég hafði ekki endilega trú á því fyrirfram en við Íslendingar erum bilaðir og við bjuggumst kannski ekki heldur við því að vinna með átta mörkum. Þetta var gjörsamlega frábært og þau hjálpuðu okkur klárlega í dag. Ekkert nema þakklæti til þeirra.“
Landslið karla í handbolta EM karla í handbolta 2026 Mest lesið Létu leikmenn og stjórn Stjörnunnar heyra það: „Skandall, fáránlegt og ljótt“ Íslenski boltinn Kom inn á fyrir KR aðeins 14 ára Íslenski boltinn Harvey Elliott virðist ekki vera hluti af framtíð Liverpool Enski boltinn Baulað á Alvarez hjá Atletico Madrid Fótbolti Sjáðu sögulegt mark João Pedro í sigri Chelsea Enski boltinn Sjáðu sjö marka veisluna í sigri Fram Kópavogi í gær Íslenski boltinn Cody Gakpo orðaður við Manchester City Enski boltinn Er annar hestur kominn í hlaupið um heimsmeistaratitilinn? Formúla 1 „Maður var aldrei alveg rólegur“ Íslenski boltinn Ísak Andri nálgast sænsku úrvalsdeildina Fótbolti Fleiri fréttir Einn af strákunum okkar biðlar til Trump um samning Áfall í undirbúningi Íslands fyrir HM Gísli Þorgeir með níu mörk í níu skotum þegar Magdeburg vann Ofurbikarinn Díana varð meistari meistaranna eftir vítakeppni Fjórtán ára undrabarn spilar með Þorsteini Leó Landsliðskona í Val Breki nýtir sér ráð Viktors og er klár í harðan slag í Portúgal Mun Guðmundur reisa Holland við? Rekinn eftir óásættanleg samskipti við yngri leikmenn Elvar fer frá Magdeburg til Löwen: „Frábær bónus að spila með Hauki frænda“ Glænýtt gólf fyrir frumraun Arons en stúkurnar bíða Daníel með slitna hásin Kallar eftir naflaskoðun í norskum handbolta: „Bilið í fremstu þjóðir hefur aukist“ Rifu sig upp eftir vonbrigðin í gær og unnu Frakka eftir rosa endasprett Raunveruleiki sem þú getur ekki forðast Uppgjörið: Ísland - Þýskaland 31-33 | Þjóðverjar áttu alltaf svar Fylgist stoltur með litla bróður á EM: „Verið draumur hans í mjög langan tíma“ Með fullt hús stiga á leið í úrslitakeppni Mögnuð tilþrif Íslendingsins unga vekja athygli Viktor Gísli framlengir við Barcelona Stráklingarnir okkar fóru illa með Króata í fjórða sigrinum í röð á EM Costa-bræðurnir eftirsóttu völdu Flensburg Unnu leikina í riðlinum með samtals 32 mörkum og Króatar og Portúgalir bíða Strákarnir áfram með fullt hús Ungverjagrýlan hrjáir ekki U18 lið Íslands Yngsti Skipagötu-bróðirinn skoraði þrettán mörk í fyrsta leik á EM Fjórtán marka stórsigur í fyrsta leik Var sagt upp á stórafmælinu og er haldinn út í heim Besti handboltamaður heims fór í markið Hafnaði mörgum góðum tilboðum og fór frekar heim Sjá meira