Biður Dóru Björt afsökunar eftir deilur um vetrarþjónustu Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 24. janúar 2026 13:03 Þröstur kenndi Dóru um stöðu mála hvað varðar vetrarþjónustu Reykjavíkurborgar. Samsett Þröstur Ingólfur Víðisson, fyrrverandi verkstjóri hjá Reykjavíkurborg, hefur beðið Dóru Björt Guðjónsdóttur, borgarfulltrúa Reykjavíkurborgar, afsökunar á að hafa kennt henni um slæma stöðu mála í vetrarþjónustu borgarinnar. Dóra Björt segist hafa sætt hótunum fyrir verkefni sem hún kom sjálf aldrei að.
Svellhált var á höfuðborgarsvæðinu og víðar um landið á þriðjudag. Aldrei hafa jafn margir leitað á bráðamóttöku Landspítalans á einum degi vegna hálkuslysa. Þröstur skrifaði pistil um hálkuna í íbúahópi Miðborgarinnar á Facebook þar sem hann gagnrýnir aðferðir borgarinnar. „Ég vann í átta ár sem eftirlitsmaður/verkstjóri við vetrarþjónustu hjá Reykjavíkurborg. Fyrirkomulagið var þá að mínu mati eins gott og öruggt og það getur orðið. Borgarlandið var vaktað eins og ungabarn,“ segir Þröstur. „Ég fullyrði að þetta fyrirkomulag og áratuga samanlögð reynsla þessara sex manna minnkaði líkurnar verulega á mistökum og kom iðulega í veg fyrir heilsu- og fjárhagstjón í þeim mæli sem varð tuttugasta janúar 2026.“ Þröstur gagnrýnir harðlega að fyrirkomulaginu hafi verið breytt af Umhverfis- og skipulagssviði Reykjavíkurborgar og heldur því fram að farið hefði verið í breytingarnar undir forystu Dóru Bjartar Guðjónsdóttur, borgarfulltrúa Samfylkingarinnar, áður Pírata. „Dóra Björt barði sér á brjóst á sínum tíma og gortaði af öllu saman. Þetta kölluðu þau „heildarendurskoðun á handbók vetrarþjónustu“. Fyrirkomulagið er algjörlega óboðlegt og ávísun á stórslys eins og dæmin sanna,“ segir Þröstur. Hefur sætt hótunum vegna gímaldsins Eftir að fjallað var um orð Þrastar á bæði mbl og DV birti Dóra Björt sjálf pistil þar sem hún segist ekki hafa getað leitt vinnu að nýrri vetrarþjónustuhandbók Reykjavíkur þar sem að hún var í fæðingarorlofi á meðan sú vinna fór fram. „Burtséð frá inntaki gagnrýninnar þá er lágmarkskrafa að farið sé rétt með einfaldar staðreyndir, hvað þá þegar þær draga dilk á eftir sér fyrir fólk. Ég tel mikilvægt að gagnrýni í opinberri umræðu byggi á réttum forsendum. Ég tek ábyrgð á þeim verkefnum og ákvörðunum sem ég hef sjálf komið að og er tilbúin að ræða þau af hreinskilni,“ segir Dóra Björt. Hún segir það hins vegar óásættanlegt að vera gerð ábyrg fyrir verkum og ákvörðunum sem hún sjálf kom ekki að, þar á meðal vetrarþjónustuhandbókinni. Þá tekur hún líka fram að henni sé oft kennt um „Græna gímaldið“ við Álfabakka en sannleikurinn sé að hún sat ekki í skipulagsráði þegar það skipulag var samþykkt. „Samt hef ég í á annað ár þurft að þola stanslaust áreiti - og jafnvel hótanir - vegna máls sem ég bara enga ábyrgð á.“ Alexandra, ekki Dóra Nú í morgun birti Þröstur aðra færslu þar sem hann biður Dóru Björt afsökunar. „Ég fékk rangar upplýsingar um þetta,“ skrifar hann. „Hið rétta er að það var Alexandra Briem sem fór fyrir hópnum. Mér þykir þetta leitt og bið ég Dóru Björt afsökunar á þessum ummælum mínum.“
Borgarstjórn Reykjavík Veður Snjómokstur Mest lesið Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Útför Steins Ármanns Innlent „Fólk er bara slegið“ Innlent Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Innlent „Viljið þið gjöra svo vel að fyrirgefa mér af öllu hjarta“ Innlent Jarðsyngur sinn besta vin Innlent Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Innlent Selenskí kíkti á klakann Erlent Fæddi barn utan við verslun Elko Innlent Fleiri fréttir Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar Sjá meira