Hægt að nálgast vottorð um að makinn hafi rangt fyrir sér Smári Jökull Jónsson skrifar 23. janúar 2026 21:52 Gunnar Þór er formaður Félags íslenskra heimilislækna. Vísir/Lýður Valberg Allt að þriðjungur vinnutíma heimilislækna fer í útgáfu ýmis konar vottorða. Formaður félags íslenskra heimilislækna gagnrýnir stjórnvöld fyrir skort á samráði í málinu.
Á læknadögum í Hörpu stóð Félag íslenskra heimilislækna fyrir gjörningi til að vekja athygli á öllum þeim fjölda læknisvottorða sem gefin eru út á hverju ári. Sinnum fólki en ekki pappírum var yfirskriftin og var meðal annars hægt að nálgast vottorð um að viðkomandi þyrfti á ferð til Tenerife að halda og makavottorð til að votta að handhafi hefði rétt fyrir sér í ágreiningi heima fyrir. Samkvæmt skýrslu frá árinu 2024 gáfu heimilislæknar á höfuðborgarsvæðinu út tæplega 200.000 vottorð árið þar á undan. Hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins og á einkareknum læknastofum voru vottorð vegna fjarveru frá vinnu langalgengust en vottorð vegna sjúkraþjálfunar og ökuleyfis einnig ofarlega á lista. Heildarfjöldi útgefinna vottorða hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins var rúmlega 145.000 og við það bætast nokkrir tugir þúsunda sem gefin eru út á Landspítalanum.Vísir/Hjalti „Við viljum sýna fram á að því miður eru vottorðamál hjá heimilislæknum í miklum ólestri. Þetta tekur mikinn tíma frá okkur þannig að við höfum minni tíma í móttöku til að sinna okkar skjólstæðingum,“ sagði Gunnar Þór Geirsson formaður Félags íslenskra heimilislækna. „Við komumst bara ekki að borðinu“ Heilbrigðisráðherra sagði í lok síðasta árs að breyta þyrfti vottorðakerfinu sem tæki mikinn tíma frá læknum. Gunnar segir vinnuna þurfa að vera markvissari og enn séu hlutir sem þurfi að breyta. „Það er mikilvægt að heimilislæknar komi að þessari vinnu og við í FÍH höfum ekki komist að borðinu og við erum fulltrúar allra heimilislækna á landinu. Það er mikilvægt að stjórnvöld fái að vita hvað það virkilega er sem er að trufla okkur og að við getum unnið að því í sameiningu að koma þessum málum í betri farveg.“ Læknarnir útbjuggu boli með slagorði fyrir viðburðinn.Vísir Skref hafi þó verið tekin í rétta átt. „Þessi stóru vottorð sem hafa með framfærslu fólks að gera þau eru óbreytt. Einnig vottorð sem eru til lögmanna tryggingafélaga og atvinnurekenda, þetta eru vottorð sem þurfa helst að fara út að stóru leyti. Heilbrigðisyfirvöld hafa ekki verið í samvinnu við okkur. Við sem erum á gólfinu vitum hvað það er sem þarf að laga og við komumst bara ekki að borðinu,“ bætir Gunnar við. Aðrir fagaðilar jafnvel hæfari Gunnar áætlar að allt að 30% af vinnutíma heimilislækna fari í vinnu tengda útgáfu vottorða. „Þetta er óbein vinna, hringja símtöl og ganga úr skugga um að allt hafi gengið eftir. Þetta er veruleg vinna og það myndi bæta aðgengi að heimilislæknum verulega ef það yrði unnið að því með markvissum hætti að bæta þetta kerfi.“ Aðrir fagðailar sem komi að meðferð sjúklings séu hæfir til að gefa út vottorð, jafnvel hæfari ef þeir hafi komið meira að meðferð sjúklings en læknirinn. „Það geta verið til dæmis sjúkraþjálfarar, sálfræðingar og félagsráðgjafar. Ég vil sérstaklega minnast á félagsráðgjafa þar sem þeir eru sérfræðingar í þessu tryggingakerfi. Ég myndi telja að þegar um er að ræða vottorð sem hefur að gera með framfærslu fólks að það ætti að vera meira á þeirra herðum.“ Þá séu dæmi um að heimilislæknir eigi að gefa út vottorð fyrir sjúkling sem hefur verið í meðferð hjá öðrum fagaðila og heimilislæknirinn jafnvel lítið sinnt. „Síðan á hann [heimilislæknirinn] að gefa út einhverja pappíra. Það er ekki góð nýting á hans tíma.“
Heilbrigðismál Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Geri málið tortryggilegt að neita að svara Innlent Fleiri fréttir Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Sjá meira