Boðar leiðtogaráðið á aukafund vegna hótana Trumps Agnar Már Másson skrifar 18. janúar 2026 20:41 Antonio Costa, forseti leiðtogaráðs ESB. Getty Forseti leiðtogaráðs Evrópusambandsins hefur ákveðið að kalla saman ráðið vegna hótana Donalds Trumps Bandaríkjaforseta er varða innlimun Grænlands. Trump boðaði í gær tolla á átta NATO-ríki sem höfðu sent hermenn til landsins.
António Costa, forseti leiðtogaráðs ESB, skrifar á X að ráðið muni koma saman á aukafundi í Brussel á „komandi dögum“. Í leiðtogaráðinu eiga sæti þjóðhöfðingjar eða leiðtogar ríkisstjórna í aðildarríkjum ESB, einn frá hverju ríki, auk forseta leiðtogaráðsins og forseta framkvæmdastjórnarinnar, sem er Ursula von der Leyen. Donald Trump Bandaríkjaforseti boðaði í gær tíu prósenta tolla á átta aðildarríki Atlantshafsbandalagsins (NATO) sem studdu ekki innlimunaráform Bandaríkjastjórnar um Grænland, sem heyrir undir dönsku krúnuna. Leiðtogar þessara átta landa – Bretlands, Þýskalands, Hollands, Frakklands og Norðurlanda að Íslandi undanskildu – brugðust ókvæða við en öll eiga löndin það sameiginlegt að hafa sent hermenn til Grænlands. Þýskir hermenn eru nú snúnir heim þar sem þýski herinn segir verkefni þeirra vera lokið. Talsmaður Keirs Starmer, forsætisráðherra Bretlands, sagði í dag að forsætisráðherrann hefði talað við Donald Trump Bandaríkjaforseta í síma. Starmer hefði sagt að það væri „rangt“ að leggja tolla á bandamenn sína fyrir það eitt að reyna að tryggja öryggi á norðurslóðum. Þótt útfærsla tollanna liggi ekki fyrir eiga þeir að óbreyttu að hækka í 25 prósent hinn 1. júní ef ekkert breytist í afstöðu ríkjanna, að sögn Trumps en forsetinn hefur í raun ekkert tjáð sig frekar um tollana frá því að hann tilkynnti þá í færslu á Truth Social í dag. Þar sem Evrópusambandsríki eru í tollabandalagi mun hann líklega þurfa að leggja toll á ESB eins og það leggur ef hann hyggst í raun leggja á þessa Grænlandstolla.
Grænland Hótanir Bandaríkjanna vegna Grænlands Evrópusambandið Donald Trump Mest lesið „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Innlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Geta notað drónana til fulls á ný Erlent Fleiri fréttir Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sjá meira